Morgunblaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 1
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu vann ævintýralegan sigur á
Finnum, 3:2, í undankeppni heims-
meistaramótsins á Laugardalsvelli í
gærkvöld eftir að hafa verið marki
undir þegar uppbótartími var að
hefjast. Ísland og Króatía eru efst í
riðlinum og Ísland mætir Tyrklandi
á sunnudagskvöld. » Íþróttir
Ótrúlegur endir og
sigur gegn Finnum
Morgunblaðið/Golli
F Ö S T U D A G U R 7. O K T Ó B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 235. tölublað 104. árgangur
NÝJUSTU
STRAUMAR
Í TÍSKUNNI
FRELSISTIL-
FINNING AÐ
VERA KARL
32 SÍÐNA BLAÐAUKI HANNES OG SMÁRI 38
„Það hefur tekið mannkynið hálfa öld að bregðast við þessari
yfirvofandi ógn. Ógn sem nú er komin vel á veg og óhætt að
segja að skollið sé á hættuástand. Langt er liðið á leikinn, þann-
ig að við erum í kapphlaupi við tímann. Parísarsáttmálinn er
vitaskuld risastórt skref en hann hefur ekki leyst vandann enn
þá. Ásetningurinn er góður en nú ríður á að fylgja honum eft-
ir,“ segir þýski haf- og loftslagsfræðingurinn Stefan Rahmstorf
um hlýnun jarðar en hann verður meðal frummælenda á ráð-
stefnunni Hringborð norðurslóða, sem sett verður í Hörpu í
dag.
Meðal þeirra sem reynt hafa hlýnun jarðar á eigin skinni eru
íbúar á freðmýrum Síberíu sem Ragnar Axelsson, ljósmyndari
Morgunblaðsins, sótti heim í tvígang fyrr á þessu ári. Hermt er
af ferðum hans í blaðaukanum Blikur á lofti sem fylgdi Morg-
unblaðinu í gær. Túndran er að bráðna og meðal vandamála
sem innfæddir, Nenenar, glíma við þessi misserin af þeim sök-
um er miltisbrandsfaraldur og til stendur að slátra 250 þúsund
hreindýrum á árinu vegna bakteríusýkingarinnar sem komið
hefur undan frostinu, að sögn Siberian Times.
Meðal gesta á Hringborði norðurslóða verður Ban Ki-moon,
aðalritari Sameinuðu þjóðanna. orri@mbl.is
Hlýnun jarðar farin að segja til sín á freðmýrum Síberíu
Morgunblaðið/RAX
Anna Lilja Þórisdóttir
Kristján H. Johannessen
Sjálfstæðisflokkurinn fær 26% at-
kvæða í komandi alþingiskosning-
um, Píratar 20% og Vinstri græn
17% samkvæmt nýrri könnun Fé-
lagsvísindastofnunar Háskóla Ís-
lands, sem unnin var fyrir Morgun-
blaðið dagana 23. september til 5.
október síðastliðinn.
Viðreisn fær 12% atkvæða, Fram-
sóknarflokkurinn 10% og Samfylk-
ingin 6%. Björt framtíð mælist með
4% fylgi og næði samkvæmt því eng-
um manni á þing.
Formaðurinn færi ekki inn
Þegar rýnt er í tölur eftir kjör-
dæmum kemur m.a. í ljós að Oddný
G. Harðardóttir, formaður Samfylk-
ingarinnar og oddviti flokksins í Suð-
urkjördæmi, kæmist, samkvæmt
könnuninni, ekki inn á þing.
Sjálfstæðisflokkur
fengi 26% atkvæða
Á eftir fylgja Píratar með 20% og Vinstri græn með 17%
Fylgi
flokkanna
D
P
V
C
B
S
A F E
19,8%
16,5%
11,7%
6,3%
3,2% 2,2%
4,1%
9,7%
26%
MFormaður Samfylkingar...