Morgunblaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín hundafóðri á Kringlukasti 6. – 10. október 20% afslátt ur af Fjöldi farþega í millilandaflugi með Icelandair var 2,9 milljónir á fyrstu níu mánuðum ársins. Það er 19% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í upplýs- ingum sem Icelandair Group birti í Kauphöll Íslands í gær. Í september flutti Icelandair 388 þúsund farþega í millilandaflugi sem er 23% aukning á milli ára. Sæta- framboð flugfélagsins var 28% meira í liðnum mánuði en í september í fyrra þannig að sætanýting var örlít- ið lakari, fór úr 83,1% í 81,1%. Eins og fram kom í tilkynningu Icelandair Group til Kauphallar á mánudaginn áætlar félagið að far- þegar verði 4,2 milljónir á næsta ári og fjölgi um 450 þúsund á milli ára. Fjöldi farþega Flugfélags Íslands í innanlands- og Grænlandsflugi var 31 þúsund í september og fjölgaði þeim um 17% á milli ára. Alls nemur farþegafjöldi Flugfélagsins 246 þús- und það sem af er ári. Fraktflutningar Icelandair Cargo jukust um 14% í september á milli ára og hafa flutningar félagsins auk- ist um 8% það sem af er ári. Herbergjanýting á hótelum á veg- um Icelandair Group var 90% í sept- ember en var 83,4% í sama mánuði í fyrra. Fjöldi farþega Icelandair nálgast þrjár milljónir Flug Farþegum Icelandair fjölgaði um 19% á fyrstu níu mánuðum ársins. Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 9,6% á síðasta ári og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 7,9%, að því er fram kemur í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. Ráðstöfunartekjur heimilanna eru tekjur að frátöldum eigna- og til- færsluútgjöldum. Til tekna teljast launa- og eignatekjur, auk tilfærslu- tekna og reiknuðum rekstrarafgangi einstaklingsfyrirtækja. Ráðstöfun- artekjum er því ætlað að mæla það sem heimilin hafa til ráðstöfunar eft- ir að skattar hafa verið greiddir. Undanfarin tvö ár hafa ráðstöfun- artekjur hækkað meira en launavísi- talan, sem mælir þróun útgreiddra launa á hverja vinnustund, og segir Landsbankinn það benda til þess að skattar hafi lækkað og/eða að vinnu- stundum hafi fjölgað. Alls hækkuðu ráðstöfunartekjur heimila um tæp 11% á síðasta ári en einkaneyslan um 5%. Þetta gæti bent til þess að heimilin hafi aukið sparnað sinn, sem meðal annars gæti verið notaður til þess að minnka skuldabyrði, að mati Landsbankans. Morgunblaðið/Ómar Kaup Kaupmáttur ráðstöfunar- tekna á mann jókst um 7,9% í fyrra. Vaxandi kaupmáttur Vöruskiptajöfnuð- ur var neikvæður um 3,2 milljarða króna í septem- ber, samkvæmt bráðabrigðatölum sem Hagstofa Ís- lands gaf út í gær. Það sem af er árinu er vöru- skiptajöfnuður Ís- lands við útlönd neikvæður um 85,5 milljarða króna. Þetta er talsvert meiri halli en allt árið 2015, þegar vöruskiptajöfnuður var neikvæður um 27,6 milljarða króna. Frá ársbyrjun 2015 hefur gengi íslensku krónunnar styrkst mikið gagnvart helstu gjaldmiðlum en styrking krónu á móti evru nemur 16,2% yfir tímabilið og 9,5% gagnvart bandaríkjadal. Þess má geta að þjónustujöfnuður er jákvæður á þessu ári. Hann var 90,5 milljarðar fyrir fyrstu 6 mánuði ársins og vegur því upp halla á vöru- skiptum. olafur@mbl.is Vöruskipta- halli eykst Siglt Vöruskipti eru enn neikvæð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.