Morgunblaðið - 07.10.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Árvakur hf., útgefandi Morgun-
blaðsins og mbl.is, hefur fest kaup á
öllum útvarpsrekstri Símans. Með
kaupunum tekur Árvakur yfir
rekstur útvarpsstöðvanna K100 og
Retro. Fyrst um sinn verður út-
sendingum haldið úti frá núverandi
stúdíói í Ármúlanum.
Þá hefur Árvakur einnig fest
kaup á öllu hlutafé Eddu – útgáfu
ehf. Fyrirtækið gefur meðal annars
út hin klassísku Andrésblöð og
myndasögubækur Syrpu og heldur
úti áskriftarklúbbunum Disney
kríli og Disneyklúbbnum. Starf-
semi Eddu – útgáfu mun flytjast í
húsnæðið sem hýsir ritstjórnar-
skrifstofur Morgunblaðsins. Selj-
endur fyrirtækisins eru þeir Jón
Axel Ólafsson, Jóhann Garðar
Ólafsson og Bjarni Ármannsson.
Kaupin á fyrirtækjunum eru háð
samþykki Samkeppniseftirlitsins
og munu ekki koma til fram-
kvæmda fyrr en að því fengnu.
Kaupverð er trúnaðarmál.
Mikil samlegðaráhrif
Í ræðu sem Haraldur Johannes-
sen, framkvæmdastjóri Árvakurs
og ritstjóri Morgunblaðsins, hélt á
fundi með starfsmönnum fyrirtæk-
isins í gær sagði hann að með kaup-
unum stefndi Árvakur að því að
bæta þjónustuframboð sitt og
treysta undirstöður rekstrarins til
framtíðar.
„Við teljum mikil tækifæri í því
að tengjast þeim góðu vörum og
vörumerkjum sem Edda – útgáfa
hefur boðið upp á, Andrésblöðunum
og öðru af því tagi sem tengist Disn-
ey. Þá höfum við séð á þróun fjöl-
miðla á liðnum árum, bæði hér
heima og erlendis, að útvarp hefur
haldið sínu þrátt fyrir hraðar og
miklar tæknibreytingar. Þar eru
því tvímælalaust tækifæri og alveg
sérstaklega fyrir fjölmiðil sem rek-
ur stærstu og öflugustu fréttastofu
landsins og getur nú boðið upp á
fréttir á öðru formi en áður. Við
teljum líka að það séu margvísleg
önnur jákvæð samlegðaráhrif á
milli miðlanna og munum nýta þau
til að ná til enn fleiri notenda og
örva vöxt í hverjum miðli fyrir sig
og öllum saman.“
Sterk vörumerki á markaði
Af sama tilefni sagði Magnús E.
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
markaðs- og sölumála hjá Árvakri,
að fyrirtækið stigi nú ákveðið skref
til sóknar á markaði þar sem mörg
fyrirtæki væru að pakka í vörn.
„Það er erfitt að sækja tekjur á fjöl-
miðlamarkaði en við finnum fyrir
því að fjölmiðlar Árvakurs eru gríð-
arlega sterk vörumerki. Með þess-
um kaupum styrkjum við fyrirtæk-
ið enn frekar og getum náð með
fjölbreyttari hætti á ólíka mark-
hópa,“ sagði Magnús.
Jón Axel, sem stýrt hefur Eddu á
síðustu árum, segir að sameiningin
við Árvakur sé heillaskref.
„Það eru mikil tækifæri fram
undan og með sameiningu við Ár-
vakur verður slagkraftur í mark-
aðsverkefnum, prentun og öðru
slíku mun meiri en við höfum getað
náð upp.“
Svali Kaldalóns, dagskrárstjóri
K100 og Retro, segist spenntur fyr-
ir uppbyggingu útvarpsrekstrar á
vettvangi Árvakurs.
„Í þessu eru mikil tækifæri til að
dreifa efni með markvissari hætti.
K100 er fjögurra ára gamalt vöru-
merki en Morgunblaðið ríflega 100
ára. Það verður spennandi að
tvinna saman þessa fjölmiðla þótt
þeir séu á ólíkum aldri.“
Batnandi rekstrarhorfur
Á starfsmannafundinum kynnti
Haraldur einnig fyrir starfsfólki af-
komu Árvakurs á síðasta ári en þá
reyndist tæplega 164 milljóna
króna tap af rekstrinum.
„Eins og tölurnar bera með sér
var reksturinn mjög þungur í fyrra.
Árið byrjaði ágætlega, en þegar leið
fram á vorið hófust kjaradeilur sem
höfðu mikil áhrif á andrúmsloftið á
auglýsingamarkaði. Auglýsendur
kipptu að sér höndum eins og yfir-
leitt gerist við slíkt óvissuástand og
tekjurnar duttu niður. Við þetta
bættist svo að samið var um miklar
hækkanir í kjarasamningum og voru
þær töluvert umfram áætlanir okk-
ar. Gróflega má segja að hvor þess-
ara þátta skýri um helming tapsins,
segir Haraldur.
Hann segir þó að reksturinn það
sem af er þessu ári sé mun betri og
útlit sé fyrir mikinn rekstrarbata á
milli ára. „Engu að síður eru líkur á
einhverjum hallarekstri í ár. Áætl-
anir okkar höfðu gert ráð fyrir að
reksturinn yrði í jafnvægi á þessu
ári en líklegt er að þegar upp verður
staðið verði halli af rekstrinum sem
nemur um það bil þeim viðbótar-
launahækkunum sem samið var um í
byrjun árs, það er að segja þegar
ákveðið var að launahækkanir þessa
árs skyldu taka gildi í janúar en ekki
í maí, eins og gengið hafði verið út
frá í kjarasamningum í fyrra.“
Rekstrartekjur fyrirtækisins
námu tæpum 3,2 milljörðum á árinu
2015 og aðrar tekjur voru tæpar 128
milljónir. Rekstrarkostnaður nam
tæpum 3,3 milljörðum og þá voru
bókfærðar afskriftir að fjárhæð
tæplega 100 milljónir króna. Stærst-
ur hluti rekstrarkostnaðar voru laun
og annar starfsmannakostnaður og
nam hann tæpum tveimur milljörð-
um króna. Að meðaltali voru 184
starfsmenn hjá fyrirtækinu á árinu
2015 og að auki tæplega 500 blaðber-
ar víðs vegar um landið.
Við síðustu áramót námu eignir
Árvakurs tæpum 1.940 milljónum
króna. Eigið fé þess stóð á sama
tíma í tæpum 855 milljónum og eig-
infjárhlutfall var því 44%.
Boðar sókn á fjölmiðlamarkaði
Árvakur kaupir útvarpsrekstur Símans og allt hlutafé Eddu - útgáfu Mikil tækifæri sögð í sameiningu
Fjölmenni Á fundinum voru m.a. Sigurbjörn Magnússon, stjórnarformaður
Árvakurs, Davíð Oddsson ritstjóri og Katrín Pétursdóttir stjórnarmaður.
Samstarf Frá vinstri: Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri Árvakurs
og ritstjóri Morgunblaðsins, Sigurbjörn Magnússon, stjórnarformaður Árvak-
urs, Svali Kaldalóns dagskrárstjóri og Jón Axel Ólafsson hjá Eddu - útgáfu.
Samstarfsfólk Starfsmenn Eddu - útgáfu og útvarpsstöðvanna K-100 og
Retro mættu á starfsmannafundinn í gær ásamt starfsfólki Árvakurs.
Samlegðaráhrif Þeir Magnús E. Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðs-
og sölumála hjá Árvakri og Jón Axel Ólafsson hjá Eddu - útgáfu á spjalli.
Morgunblaðið/Golli
Tilkynning um kaup Árvakurs á
fyrirtækjunum tveimur kemur í
kjölfar þess að tilkynnt var um
opnun tveggja nýrra vefsíðna sem
reknar verða undir hatti mbl.is.
Þannig var ný alhliða frétta- og
upplýsingaveita um allt sem teng-
ist sjávarútvegi opnuð í tengslum
við sjávarútvegssýninguna í Laug-
ardalshöll í síðustu viku. Á síð-
unni, sem ber heitið 200 mílur, er
hægt að nálgast nýjustu upplýs-
ingar um afurðaverð, gengisþróun
og línuverð, skipa- og útgerða-
skrá, hafnaskrá, kvótatölur, stað-
setningu skipa og margt fleira.
Umsjónarmaður vefjarins er Þor-
valdur B. Arnarsson. Hann segir
vefinn fara mjög vel af stað.
„Við erum gríðarlega ánægð
með þær viðtökur sem vefurinn
hefur fengið. Mér hefur lengi
fundist vanta heildstæðan frétta-
og upplýsingavef um sjávarútveg
og er stoltur af því að fá að taka
þátt í þessu verkefni,“ segir Þor-
valdur.
Þá mun í lok október fara í loft-
ið nýr og ferskur matarvefur. Um-
sjónarkona hans er Þorbjörg Mar-
ínósdóttir, fjölmiðlafræðingur og
ástríðukokkur. Vefurinn er hugs-
aður sem miðstöð matarunnenda
en þar verður að finna mikið
magn uppskrifta við allra hæfi.
Efnið verður fjölbreytt og má
þá helst nefna matreiðsluþætti,
greinar um bestu veitingahús er-
lendra stórborga, veitinga-
húsarýni, eldhúsráð og verðkann-
anir í bland við skemmtilegt og
óhefðbundið efni á borði við upp-
skriftir úr þekktum kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum. Matarvef-
urinn mun birta frumsamdar upp-
skriftir sem eldaðar verða í nýju
eldhúsi í stúdíói Árvakurs en þar
verða einnig teknir upp mat-
reiðsluþættir.
„Þetta er virkilega spennandi
þróun og af nægu að taka enda
hefur matarmenning hérlendis
blómstrað síðustu ár. Ný veitinga-
hús virðast opna vikulega, mat-
vælaframleiðsla hérlendis er með
frumlegasta móti og íslenskir mat-
reiðslumenn láta til sín taka út um
víða veröld. Við munum fylgja því
vel eftir í bland við okkar eigin af-
rek í eldhúsinu,“ segir Þorbjörg
sem fengið hefur til liðs við sig úr-
valsmatgæðinga og -kokka til að
auka enn á fjölbreytni efnisins.
Öflugir sérvefir í loftið
Þorvaldur Birgir
Arnarsson
Þorbjörg
Marínósdóttir
Fyrirtækin sem Árvakur hefur keypt
hafa snertifleti við ólíka og stóra mark-
hópa. Jón Axel hjá Eddu bendir á að
bókaflokkurinn Syrpa
sé langvinsælasta
efnið á bókasöfnum
landsins. Þannig eru
Syrpubækurnar að
jafnaði teknar langt
yfir 100 þúsund sinn-
um að láni á ári hverju
á söfnunum. Til sam-
anburðar nefnir hann
að vinsælasta barnabók-
in á hverjum tíma sé tek-
in um 3.000 sinnum að
láni á ári. Sendingar fyr-
irtækisins inn á íslensk
heimili eru um 200 þúsund
talsins á ári hverju. Þá hafa
margar af bókum fyrirtækisins notið
mikilla vinsælda og nefnir hann sér-
staklega Disney-matreiðslubækurnar í
því sambandi. „Við höfum hlotið við-
urkenningu erlendis fyrir þessa útgáfu
á síðustu árum og fyrirtækið
hefur byggt upp öflug
tengsl við Disney um allan
heim.“
Útvarpsstöðin K100 hef-
ur verið í loftinu í fjögur
ár. Samkvæmt nýjustu
mælingum Gallup á raf-
rænum ljósvakamiðlum
er K100 fimmta vinsæl-
asta útvarpsstöð lands-
ins, hvort sem litið er til
markhópanna 12-80
ára eða 12-49 ára. Í síð-
arnefnda hópnum er
hlutdeildin um 7,4%.
Retro var komið fyrst
í loftið fyrir tveimur árum og sækir
fyrirmynd í útvarpsstöðina Smooth í
Bretlandi sem er vinsælasta útvarps-
stöðin þar í landi.
Snertiflötur við stóra
og ólíka markhópa