Morgunblaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 6
Kynjahlutföll í hugsanlegum
þingflokkum eru, samkvæmt
könnuninni, afar mismunandi á
milli flokka. Kynjahlutfallið er
jafnt í þremur flokkum: Samfylk-
ingunni sem fengi tvær konur og
tvo karla á þing, Viðreisn sem
fengi fjórar konur og fjóra karla
og Framsóknarflokknum sem
fengi þrjár konur og þrjá karla
kjörin á þing samkvæmt könn-
uninni. Átta konur og sjö karlar
yrðu í þingflokki Pírata og í
þingflokki Vinstri grænna yrðu
átta konur og fjórir karlar. Sjálf-
stæðisflokkurinn er sá flokkur
sem yrði hlutfallslega með fæstar
konur á þingi, en þær yrðu fimm
af 18 þingmanna hópi.
Yrði þetta niðurstaðan myndu
30 konur og 33 karlar setjast á
þing. Hlutur kvenna yrði þá tæp
48%, sem yrði hæsta hlutfall
kvenna á þingi.
Á Alþingi yrðu 30
konur og 33 karlar
Verði niðurstöður kosninganna á
sama veg og könnunin sýnir myndu
þingflokkar stjórnmálaflokkanna
líta svona út:
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Gunnar Bragi Sveinsson. Lilja Dögg
Alfreðsdóttir. Sigurður Ingi Jó-
hannsson. Silja Dögg Gunnarsdóttir.
Eygló Harðardóttir.
Benedikt Jóhannesson. Gylfi Ólafs-
son. Þorsteinn Víglundsson. Þorbjörg
Sigríður Gunnlaugsdóttir. Hanna
Katrín Friðriksson. Pawel Bartoszek.
Jóna Sólveig Elínardóttir. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir.
Kristján Þór Júlíusson. Njáll
Trausti Friðbertsson. Haraldur
Benediktsson. Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir. Teitur Björn
Einarsson. Guðlaugur Þór Þórð-
arson. Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir. Birgir Ármannsson. Ólöf
Nordal. Brynjar Níelsson. Sigríður
Á. Andersen. Páll Magnússon. Ás-
mundur Friðriksson. Vilhjálmur
Árnason. Bjarni Benediktsson.
Bryndís Haraldsdóttir. Jón Gunn-
arsson. Óli Björn Kárason.
Logi Einarsson. Erla Björg Guð-
mundsdóttir. Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir. Árni Páll Árnason.
Steingrímur J. Sigfússon. Bjarkey
Olsen Gunnarsdóttir. Lilja Rafney
Magnúsdóttir. Katrín Jakobsdóttir.
Steinunn Þóra Árnadóttir. Svandís
Svavarsdóttir. Kolbeinn Óttarsson
Proppé. Hildur Knútsdóttir. Ásta
Guðrún Helgadóttir. Gunnar Hrafn
Jónsson. Rósa Björk Brynjólfsdóttir.
Ólafur Þór Gunnarsson.
Einar Aðalsteinn Brynjólfsson.
Guðrún Ágústa Þórdísardóttir. Eva
Pandora Baldursdóttir. Gunnar
Ingiberg Guðmundsson. Birgitta
Jónsdóttir. Björn Leví Gunnarsson.
Ásta Guðrún Helgadóttir. Gunnar
Hrafn Jónsson. Halldóra Mogensen.
Smári McCarthy. Oktavía Hrund
Jónsdóttir. Jón Þór Ólafsson. Þór-
hildur Sunna Ævarsdóttir. Andri
Þór Sturluson. Sara Þórðardóttir
Oskarsson.
Þessi komast á þing
samkvæmt könnuninni
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Anna Lilja Þórisdóttir
Kristján H. Johannessen
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 26% at-
kvæða, Píratar 20% og Vinstri græn
17% ef gengið yrði til alþingiskosn-
inga nú. Er þetta niðurstaða nýrrar
könnunar Félagsvísindastofnunar
Háskóla Íslands, sem unnin var fyrir
Morgunblaðið dagana 23. september
til 5. október síðastliðinn.
Viðreisn fengi 12% atkvæða,
Framsóknarflokkurinn 10% og Sam-
fylkingin 6%. Aðrir flokkar næðu
ekki inn þingmönnum.
Af þeim stjórnmálaflokkum sem
ekki næðu inn mönnum á þing má
nefna Bjarta framtíð, sem mælist í
könnun með 4% fylgi, Flokk fólksins,
með 3% og Íslensku þjóðfylkinguna,
en sá flokkur fengi 2% atkvæða.
Össur og Karl ekki inn
Þegar rýnt er í tölur í einstökum
kjördæmum kemur m.a. í ljós að
Oddný G. Harðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar og oddviti
flokksins í Suðurkjördæmi, kemst
samkvæmt könnuninni ekki inn á
þing. Sömu sögu er að segja um Öss-
ur Skarphéðinsson, oddvita Sam-
fylkingarinnar í Reykjavíkurkjör-
dæmi suður, Guðjón Brjánsson,
oddvita Samfylkingar í Norðvestur-
kjördæmi, og Karl Garðarsson, odd-
viti Framsóknarflokksins í Reykja-
víkurkjördæmi norður.
Tvær leiðir voru notaðar til að ná
til kjósenda, alls í 1.750 manna úr-
taki. Annars vegar var hringt í 750
manna tilviljunarúrtak úr þjóðskrá
og hins vegar var send netkönnun til
1.000 manna úrtaks úr netpanel Fé-
lagsvísindastofnunar. Alls fengust
svör frá 977 svarendum og var svar-
hlutfall 57%.
Leitað var viðbragða við könnun-
inni hjá fulltrúum þeirra flokka sem
nú eiga sæti á þingi, auk Viðreisnar.
Ekki náðist í fulltrúa Vinstri
grænna.
Formaður Samfylkingar yrði utan þings
Sjálfstæðisflokkur og Píratar stærstir Nokkrir oddvitar komast ekki á þing samkvæmt könnun
Fylgi flokka fyrir alþingiskosningar
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Úrslit kosninga 2013
Heimild: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
Niðurstöður skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið
Annar flokkur
eða listi
5,
1%
3,
2%
2,
2%
0,
3%
0,
3%
0,
0
%
8,
2%
10
,9
%
12
,9
%
3,
1%
0,
1%
0,
1%
3,
0
%
0,
0
%
Sjálfst.flokkur
D
Píratar
P
VG
V
24
,4
%
Frams.flokkur
B
Samfylking
S
Björt framtíð
A
Flokkur fólksins
F
Ísl. þjóðfylkingin
E
Dögun
T
Alþýðufylkingin
R
Húmanistafl.
H
Fl. heimilanna
I
Viðreisn
C
26
%
26
,7
%
19
,8
%
16
,5
%
11
,7
%
9,
7%
6,
3%
4,
1%
0,
0
%
Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata, segir niðurstöður könn-
unarinnar leggjast „ljómandi vel“ í sig.
„Ég er mjög ánægð með að við njótum mun meira trausts
meðal kjósenda fyrir kosningarnar nú en síðast,“ segir Birg-
itta, en Píratar fengju 15 þingmenn samanborið við þá þrjá
sem flokkurinn hefur nú. „Þótt þetta væri auðvitað frábær
niðurstaða, þá hef ég alltaf talað fyrir því að maður eigi ekki
að gera sér of miklar væntingar fyrir fram,“ segir Birgitta.
Yrði frábær niðurstaða
Birgitta
Jónsdóttir
Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, segist ánægður
með það fylgi sem flokkur hans mælist með í könnun Fé-
lagsvísindastofnun Háskóla Íslands, en samkvæmt henni
fengi flokkurinn átta þingmenn kjörna og 12% atkvæða.
„Mér finnst þessi niðurstaða vera nokkuð í takt við það
sem verið hefur í könnunum að undanförnu og erum við auð-
vitað mjög þakklát fyrir þennan góða meðbyr,“ segir Bene-
dikt.
Þakklátur fyrir meðbyrinn
Benedikt
Jóhannesson
Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, segir að könn-
unin sýni ekki hvernig komandi þingkosningar muni fara.
Samkvæmt könnuninni mælist Björt framtíð með 4% og fengi
því engan þingmann.
„Ég geri nú ekki ráð fyrir því að þetta verði niðurstaðan,
enda höfum við fundið fyrir miklum meðbyr að undanförnu
og mælst ofar í öðrum könnunum,“ segir Óttarr og bætir við
að baráttuhugur sé í flokknum.
Eru í baráttuhug
Óttar
Proppé
Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir
það 6% fylgi sem flokkur hennar mælist með í könnuninni
ekki koma til með að verða niðurstaða komandi alþing-
iskosninga, en fylgið myndi tryggja þeim fjóra þingmenn.
„Þetta verður ekki niðurstaða kosninganna. Ég hef fulla
trú á því að við munum koma mun betur út en þetta,“ segir
Oddný og heldur áfram: „Við munum a.m.k. halda okkar og
stefnum auðvitað að því að gera miklu betur en það.“
Ekki niðurstaða kosninga
Oddný G.
Harðardóttir
„Ég er ánægður að sjá flokkinn leiða á landsvísu, en vonast
enn eftir því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn
eftir kosningar. Slíkt hefur reynst okkur Íslendingum best
þegar kemur að því að tryggja stöðugleika í landinu,“ segir
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og bæt-
ir við að kannanir hafi að undanförnu verið nokkuð misvís-
andi. „Við skulum sjá hvað setur, en ég tel Sjálfstæðisflokk-
inn vera á réttri leið,“ segir hann.
Leggur áherslu á tveggja flokka stjórn
Bjarni
Benediktsson
„Við eigum mikið inni, enda kosningabaráttan rétt að hefj-
ast,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Fram-
sóknarflokksins, um niðurstöður skoðanakönnunarinnar.
Hún segir flokksmenn vera fulla tilhlökkunar til að
kynna megináherslur Framsóknarflokksins.
„Við erum sannfærð um að við munum njóta þess góða
árangurs sem náðst hefur á kjörtímabilinu,“ segir Lilja
Dögg enn fremur.
Kosningabaráttan er rétt að hefjast
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir