Morgunblaðið - 07.10.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Samfylkingin beið afhroð eftirkjörtímabil þar sem leiðtoga-
hæfileikar Jóhönnu nutu sín til fulls
og sígur enn.
En Vef-Þjóðviljinn seg-
ir að ekki sé allt sem
sýnist á stjórn-
málahimninum:
AndstæðingarSamfylking-
arinnar kunna að
brosa góðlátlega yfir
fylgi hennar í könn-
unum undanfarið
sem mælst hefur 6 –
9%.
En þá gleymaþeir því að
tveir afleggjarar úr flokknum ætla
að bjóða fram með sömu stefnu og
Samfylkingin og að hluta til með
mannskap úr Samfylkingunni.
Björt framtíð gerði þetta í síðustukosningum og nú hefur Við-
reisn bæst í hópinn.
Hryggjarstykkið í stefnu þessaraþriggja flokka er aðild Íslands
að Evrópusambandinu.
Helstu frambjóðendur þessaraflokka eiga það sömuleiðis
flestir sameiginlegt að hafa barist af
mikilli óbilgirni fyrir því að Íslend-
ingar yrðu gerðir ábyrgir fyrir Ice-
save-skuldum einkabanka.
Viðreisn virðist hreinlega stofnuðaf fólki sem felldi hugi saman
við þá iðju í sérstökum Já-Icesave
samtökum.
Samkvæmt könnunum er sam-anlagt fylgi þessara þriggja
flokka að mælast um og yfir 25%.“
Oddný
Harðardóttir
Sameinir á ferð
STAKSTEINAR
Benedikt
Jóhannesson
Veður víða um heim 6.10., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 12 skýjað
Akureyri 13 skýjað
Nuuk 0 heiðskírt
Þórshöfn 10 heiðskírt
Ósló 10 léttskýjað
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Stokkhólmur 11 léttskýjað
Helsinki 10 heiðskírt
Lúxemborg 11 léttskýjað
Brussel 13 skýjað
Dublin 13 heiðskírt
Glasgow 13 heiðskírt
London 13 skýjað
París 15 heiðskírt
Amsterdam 13 skýjað
Hamborg 13 alskýjað
Berlín 13 rigning
Vín 7 rigning
Moskva 10 alskýjað
Algarve 26 alskýjað
Madríd 26 heiðskírt
Barcelona 18 rigning
Mallorca 21 rigning
Róm 14 rigning
Aþena 22 heiðskírt
Winnipeg 3 skýjað
Montreal 17 heiðskírt
New York 18 heiðskírt
Chicago 19 rigning
Orlando 29 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:56 18:36
ÍSAFJÖRÐUR 8:05 18:37
SIGLUFJÖRÐUR 7:48 18:19
DJÚPIVOGUR 7:27 18:04
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis-
ráðherra sagði á málstofu Nýs Land-
spítala (NLSH) í gær að hann hefði
heimilað að fram færi forval á hönn-
un á nýju rannsóknarhúsi sem hluti
af uppbyggingu nýs Landspítala við
Hringbraut í Reykjavík.
„Ég hef samþykkt að heimila í
samræmi við stjórnsýslu verkefnis-
ins að fram fari forval vegna fulln-
aðarhönnunar rannsóknarhússins.
Samstarfsnefnd um opinberar fram-
kvæmdir hefur farið yfir allar áætl-
anir og forvalsgögn NLSH í sam-
ræmi við lög um skipan opinberra
framkvæmda. Það er gleðilegt að ég
hef sem ráðherra komið að ákvörð-
unum varðandi útboð og samninga
um fullnaðarhönnun sjúkrahótelsins
en bygging þess er í fullum gangi,
einnig að fullnaðarhönnun meðferð-
arkjarnans og nú að fulllnaðarhönn-
un rannsóknarhússins. Allt eru þetta
mikilvægir áfangar,“ er haft eftir
Kristjáni á vef Nýs Landspítala.
Auk Kristjáns fluttu erindi á mál-
stofunni Gunnar Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri NLSH, Jón Atli Bene-
diktsson, rektor HÍ, Ásbjörn
Jónsson, verkefnastjóri NLSH,
Helgi Már Halldórsson, arkitekt
Spítal, og Kristín Jónsdóttir frá
LSH.
Verkefnið á fullri ferð
Gunnar sagði meðal annars að
staða Hringbrautarverkefnisins
væri góð. Hönnun nýs meðferðar-
kjarna gengi vel og senn yrði sjúkra-
hótelið tekið í notkun. Nú tekur við
að auglýsa nú þegar forvalið á hönn-
un rannsóknarhússins sem mun ger-
breyta aðstöðu starfsmanna þegar
starfsemi rannsóknarstofa LSH
flyst á einn stað.
„Það er hugur í okkur hjá NLSH
og Hringbrautarverkefnið er á fullri
ferð,“ sagði Gunnar.
Rannsóknarhús í hönnun
Sjúkrahótel Landspítala við Hring-
braut bráðlega tekið í notkun
Á ráðstefnu Frá ráðstefnu Nýs Landspítala í gær þar sem boðað var forval á
hönnun rannsóknarhúss sem reisa á í tengslum við Hringbrautarverkefnið.
Framundan er lokasprettur Alþingis
áður en gengið verður til kosninga 29.
október næstkomandi.
Á vef Alþingis má sjá tilkynningar
um að þessa daga verða alls 10 alþing-
ismenn uppteknir í alþjóðastarfi víðs
vegar um heiminn.
Framkvæmdastjórn þingmanna-
nefndar EFTA fundar dagana 3.-7.
október í Manila og Hanoi. Þátttak-
endur fyrir Íslands hönd eru Valgerð-
ur Bjarnadóttir og Vilhjálmur
Bjarnason. Þau hafa bæði kallað inn
fyrir sig varamenn meðan þau sækja
fundinn, Önnu Margréti Guðjónsdótt-
ur og Óla Björn Kárason.
Norrænn samráðsfundur Alþjóða-
þingmannasambandsins fer fram í
dag, 7. október, í Helsinki. Ragnheið-
ur Ríkharðsdóttir sækir fundinn.
Forsætisnefnd Vestnorræna ráðs-
ins tekur þátt í Hringborði norður-
slóða 6.-9. október. Hringborðið fer
fram í Reykjavík og það sækir Unnur
Brá Konráðsdóttir.
Fimm alþingismenn sækja 71. alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna í
New York dagana 9.-21. október.
Þátttakendur verða Ásmundur Einar
Daðason, Elín Hirst, Hanna Birna
Kristjánsdóttir, Helgi Hrafn Gunn-
arsson og Katrín Júlíusdóttir.
Loks verður fundur Evrópuráðs-
þingsins haldinn í Strassborg dagana
10.-14. október. Ögmundur Jónasson
sækir fundinn fyrir hönd Íslands.
Engar tilkynningar eru á vefnum um
að aðrir þingmenn en Valgerður og
Vilhjálmur ætli að kalla inn vara-
menn. sisi@mbl.is
Á faraldsfæti
Tíu þingmenn í alþjóðastarfi, þar af
fimm á allsherjarþingi SÞ í New York