Morgunblaðið - 07.10.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30
Guðm. Sv. Hermannsson
Þorsteinn Ásgrímsson
Hæstiréttur sakfelldi í gær alla sak-
borningana níu, sem ákærðir voru fyr-
ir markaðsmisnotkun og umboðssvik í
starfsemi Kaupþings á tímabilinu frá
1. nóvember 2007 til 8. október 2008.
Hæstiréttur dæmdi Hreiðar Má
Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra
Kaupþings, í sex mánaða refsiauka við
dóm héraðsdóms í málinu. Með því er
heildarrefsing Hreiðars Más, í málum
tengdum starfsemi Kaupþings, komin
upp í sex ár. Hann hafði áður fengið
fimm ára og sex mánaða dóm í Al-
thani-málinu svonefnda.
Í héraði í markaðsmisnotkunarmál-
inu var Hreiðar Már fundinn sekur en
ekki gerð aukin refsing. Hæstiréttur
staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um
refsingu Sigurðar Einarssonar, fyrr-
verandi stjórnarformanns Kaupþings,
sem dæmdur var í 1 árs fangelsi, Ing-
ólfs Helgasonar, fyrrverandi forstjóra
Kaupþings á Íslandi, sem var dæmdur
í 4 ára og 6 mánaða fangelsi, Einars
Pálma Sigmundssonar, fyrrverandi
forstöðumanns eigin viðskipta Kaup-
þings, sem var dæmdur í 2 ára fang-
elsi, Birnis Sæs Björnssonar og Pét-
urs Kristins Guðmarssonar,
fyrrverandi starfsmanna eigin við-
skipta, sem voru dæmdir í 18 mánaða
fangelsi og Bjarka Diego, fyrrverandi
framkvæmdastjóra útlána Kaup-
þings, sem var dæmdur í 2 ára og 6
mánaða fangelsi.
Björk Þórarinsdóttir, fyrrverandi
lánafulltrúi í lánanefnd bankans, og
Magnús Guðmundsson, fyrrverandi
forstjóri Kaupþings í Lúxemborg,
voru sýknuð í héraðsdómi. Hæstirétt-
ur sakfelldi þau hins vegar en gerði
þeim ekki sérstaka refsingu.
Með alvarlegustu brotum
Í niðurstöðu sinni segir Hæstirétur,
að við ákvörðun refsingar verði að líta
til þess að brotin hafi verið umfangs-
mikil, þaulskipulögð og drýgð í sam-
verknaði og af einbeittum ásetningi.
Hafi þau beinst í senn að öllum al-
menningi og fjármálamarkaðnum hér
á landi í heild og verður tjónið sem
leiddi af þeim beint og óbeint ekki
metið til fjár. Hafi brotin verið með
þeim alvarlegustu sem dæmi séu um í
íslenskri dómaframkvæmd varðandi
efnahagsbrot.
Hreiðar Már var, auk fangelsisrefs-
ingarinnar, dæmdur til að greiða tæp-
ar 13 milljónir í sakarkostnað fyrir
Hæstarétti en um er að ræða
greiðslur til verjanda hans. Sigurður
Einarsson var dæmdur til að greiða
verjanda sínum tæpar 6,5 milljónir,
Ingólfur tæpar 16,7 milljónir, Einar
Pálmi 5,3 milljónir, Pétur Kristinn 6,3
milljónir, Bjarni tæpar 5,6 milljónir,
Magnús rúmar 2,5 milljónir og Björk
1,4 milljónir. ¾ hlutar málsvarn-
arkostnaðar Magnúsar og Bjarkar
greiðist úr ríkissjóði.
Sex af sakborningunum voru
ákærðir fyrir að hafa í sameiningu
stundað markaðsmisnotkun, með
hlutabréf útgefin af bankanum sjálf-
um, með því að setja fram tilboð og
eiga viðskipti í viðskiptakerfi NAS-
DAQ OMX sem tryggðu óeðlilegt
verð, bjuggu til verð á hlutabréfunum
og gáfu eða voru líkleg til að gefa eft-
irspurn og verð hlutabréfanna rang-
lega og misvísandi til kynna.
Þá voru sex sakborningum gefin að
sök umboðssvik með því að hafa mis-
notað aðstöðu sína hjá Kaupþingi
banka hf. og stefnt fé bankans í veru-
lega hættu þegar þau hafi farið út fyr-
ir heimildir sínar til lánveitinga.
Þetta eru allir að gera
Í mjög ítarlegum dómi Hæstaréttar
er vitnað til tölvubréfa og endurrita
símtala milli stjórnenda eigin við-
skipta bankans á fyrrgreindu tímabili
sem sögð eru varpa ljósi á atvik máls-
ins. Meðal annars er vitnað til viðtals,
sem starfsmenn innri endurskoðunar
Kaupþings tóku við Einar Pálma 20.
nóvember 2007, sem var hljóðritað og
síðar endurritað.
Í viðtalinu sagði Einar Pálmi meðal
annars að „aðalstaðan okkar í dag,
80% af stöðunni í dag er bara Kaup-
þing. Það helgast bara af því að Kaup-
þing hefur verið svona, hvað eigum við
að segja, við höfum verið að sjá til
þess að bréfin lækki ekki of mikið og
of hratt [...] Það er ekki út af því að
okkur langi að kaupa Kaupþing svo
mikið. Alls ekki [...] Þegar krísan byrj-
aði 18. júlí, þá áttum við nánast ekkert
í Kaupþingi en síðan eigum við allt í
einu orðið marga milljarða.“ Spurður
hvort tapið væri alltaf að aukast svar-
aði ákærði Einar Pálmi: „Já, í sjálfu
sér, í þeirri stöðu [...] og ég vinn það til
dæmis bara með Ingólfi til dæmis og
hann er þá bara í sambandi við Hreið-
ar og SPK.“
Spurður um hvort þeir gætu tækni-
lega séð haldið uppi verði þegar eigin
viðskipti keyptu eða seldu í Kaup-
þingi, svaraði Einar Pálmi: „Tækni-
lega get ég það.“ Spurður í viðtalinu
hvort markaðurinn væri þá tæknilega
blekktur svaraði Einar Pálmi: „Já, ég
get haldið [...] og [...].“ Þegar hann var
spurður hvort ekki væri þá komið inn
á grátt svæði var svarið: „Jú, jú, það,
sko, hvað þú á [...] Þetta eru allir að
gera.“
Allir sakborningar sakfelldir
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, dæmdur í Hæstarétti í 6 mánaða refsiauka
við fyrri refsingar Tveir sakborningar, sem voru sýknaðir í héraði, sakfelldir en ekki gerð refsing
Morgunblaðið/Golli
Hæstiréttur Dómarar ganga í salinn þegar dómur í málinu var kveðinn upp í gær. Í málinu dæmdu Markús Sig-
urbjörnsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson, Viðar Már Matthíasson, Þorgeir Örlygsson og Ingveldur Einarsdóttir.
„Það virðist vera fallist á sjónarmið ákæruvaldsins í
öllum aðalatriðum. Þannig að ég er mjög sáttur með
niðurstöðuna.“ sagði Björn Þorvaldsson saksóknari.
Björn sagði við fjölmiðla eftir að Hæstiréttur kvað
upp dóm sinn að um væri að ræða stærsta saka-
málið sem tengdist fjármálahruninu í október 2008.
Í málinu fór ákæruvaldið farið fram á að Hæsti-
réttur myndi horfa til refsihækkunar, en hægt er að
bæta helmingi við refsirammann ef um ítrekuð brot
er að ræða. Hæstiréttur féllst ekki á það. Spurður
um þetta sagði Björn ljóst að Hæstiréttur væri að
setja ákveðið hámark í hrunmálunum. „Þá er útséð
um að það verði hærri en sex ára refsing fyrir þessi
hrunbrot, þá liggur það bara ljóst fyrir,“ sagði hann. Segir Björn að
dómurinn sé tvímælalaust fordæmisgefandi í tengslum við komandi
dóma í hrunmálum. „Eftir því sem málunum fjölgar verða fordæmin
skýrari. Þetta hefur allt verið að falla á sömu lund. Þetta hjálpar til við
að túlka seinni mál.“
Fallist á sjónarmið ákæruvalds
SAKSÓKNARI
Björn
Þorvaldsson
Fulltrúar allra þingflokka hafa
fundað að undanförnu til að kom-
ast að samkomulagi um þinglok,
en mikil óvissa hefur ríkt um dag-
setningu þingloka og einnig hvaða
mál verði afgreidd innan tíma-
rammans.
Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pí-
rata, segir endanlegt samkomulag
um þinglok geta legið fyrir um og
eftir hádegi í dag. „Þá verður hald-
inn fundur með formönnum þing-
flokka,“ segir hún og bendir á að
stjórnarflokkarnir vinni enn í því
að forgangsraða þeim málum sem
þeir vilja helst ná í gegnum þingið.
Meðal stórra mála sem bíða af-
greiðslu þingsins má t.a.m. nefna
frumvarpið um Lánasjóð íslenskra
námsmanna og samgönguáætlun.
Þinglok gætu ráðist í dag