Morgunblaðið - 07.10.2016, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Osta fondue-veisla
Komdu þínum á óvart
4.990,-ámann
bóka þarffyrirfram
Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is
Vertu upplýstur!
blattafram.is
SUMUM LEYNDARMÁLUM
Á EKKI Að ÞAGA YFIR.
GEYMIR ÞÚ MÖRG SLÍK?
HVAÐ MEÐ
KYNFERÐISOFBELDI?
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
RUGGED
170x240 cm
kr. 52.650
MARVEL
170x240 cm
RU
G
G
ED
MOT TU R
SEM SETJA SVIP Á HEIMILIÐ
kr. 61.200
Laugavegi 52 | 101 Reykjavík
Sími 552 0620 | gullogsilfur.is
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Flottar buxur
Str. 36-48
Litir: Svart, dökkblátt, grátt, galla
Háar í mittið
kr. 13.900
Fögnum afmæli!
Upplestur, uppboð og afmæliskaka
Bókakaffið á Selfossi fagnar 10 ára afmæli föstudaginn 7. október.
Við blásum til veislu frá klukkan 15 þennan dag, veitum ríflega afslætti,
setjum afmælisköku og kaffi fram fyrir gesti og gangandi auk þess sem
bóksalarnir bjóða upp kostagripi og bændur fara með gamanmál.
Eftirtaldir rithöfundar lesa úr verkum sínum:
Ásdís Thoroddsen | Óskar Árni Óskarsson | Hallgrímur Helgason
Sørine Steenholdt (lesari Heiðrún Ólafsdóttir) | Pjetur Hafstein Lárusson
Guðrún Eva Mínervudóttir | Halldóra Thoroddsen | Guðmundur Brynjólfsson
Hermann Stefánsson
Kvölddagskráin Ljóðfæri
Um kvöldið mæta svo í Bókakaffið þeir feðgar Þórarinn Eldjárn, ljóðskáld
og rithöfundur, og Halldór Eldjárn, tónlistarmaður og tölvunarfræðingur,
með einstaka dagskrá sína sem nefnist Ljóðfæri.
Þar gramsa þeir í ljóða- og hljóðasörpum sínum, spinna, og tvinna með hjálp ritvéla-,
hljóm- og lyklaborða. Einnig koma við sögu segulbönd, hljóðgervlar, bækur,
fetlar, blöð, hristur, burstar, snerill og blýantur.
Kvölddagskráin hefst klukkan 20 – aðgangur ókeypis
2006–2016
Afsláttur á afmælisdegi
Nýjar bækur 10%
Gamlar bækur 30%
Bókakaffið á Selfossi | Austurvegi 22 | 800 Selfoss | Sími 482 3079
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Samþykkt var á fundi borgarráðs í
gær að úthluta Hjálpræðishernum
lóð við Suðurlandsbraut 72-74 í
Reykjavík, en samtökin hyggjast
reisa þar hús fyrir starfsemi sína.
Við meðferð málsins hafa borgar-
ráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknar og flugvallarvina látið
þá skoðun í ljós að vegna starfsemi
Hjálpræðishersins sé rétt að undan-
þiggja hann byggingarréttargjaldi.
Sú tillaga var hins vegar felld með
fjórum atkvæðum Samfylkingar,
Bjartrar framtíðar, Pírata og
Vinstri grænna og þurfa samtökin
því að greiða rúmlega 22,5 milljónir
króna í gatnagerðargjald og 21,6
milljónir í byggingarréttargjald, eða
samtals yfir 44,1 milljón króna.
Veitt aðstoð sína í yfir 120 ár
„Hjálpræðisherinn hefur í meira
en 120 ár staðið fyrir umfangsmikilli
hjálpar- og góðgerðastarfsemi í
Reykjavík. Samtökin hófu að veita
heimilislausu fólki mat og húsaskjól
auk margvíslegrar annarrar þjón-
ustu löngu áður en eiginlegri vel-
ferðarþjónustu var komið á í borg-
inni og hafa gert það með öflugum
hætti allar götur síðan. Í ljósi þess-
arar starfsemi er því rétt að sam-
tökin verði undanþegin byggingar-
réttargjaldi,“ segir m.a. í bókun
Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna
vegna málsins.
„[Á]rið 2013 ákvað meirihluti
Samfylkingar og Bjartrar framtíðar
að úthluta öðru skráðu trúfélagi,
Félagi múslima, lóð undir mosku-
byggingu við sömu götu og var sú
lóðarúthlutun undanþegin bæði
byggingarréttargjaldi og gatna-
gerðargjaldi, ásamt því að í því til-
viki voru engar kvaðir um skil lóðar
ef frestir væru ekki virtir,“ segir
einnig í sömu bókun.
Ámælisverður málflutningur
Í gagnbókun Samfylkingar,
Bjartrar framtíðar, Pírata og
Vinstri grænna segir að sá „mál-
flutningur að úthlutun lóðar til
Hjálpræðishersins sé sambærileg
við úthlutun lóðar til Félags músl-
ima undir tilbeiðslustarf sé það vill-
andi að hann hljóti að teljast ámæl-
isverður. Málin eigi fátt sammerkt
annað en að um skráð trúfélög sé að
ræða og að lóðirnar séu á svipuðum
stað. [...] Starfsemi Hjálpræðishers-
ins er annars eðlis og að auki hefur
félagið ekki farið fram á niðurfell-
ingu byggingarréttargjalds, heldur
hafa samningar náðst um eðlilegt
endurgjald sem allir aðilar eru sáttir
við.“
Þá bentu fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknar á að
tveimur skráðum trúfélögum hefur
nú verið úthlutað sambærilegum
lóðum á eftirsóttum stað miðsvæðis
í borginni. „[A]nnað trúfélagið fékk
lóðina ókeypis, þ.e. án nokkurs end-
urgjalds, en hitt trúfélagið, sem
sinnt hefur hjálpar- og góðgerðar-
starfi í borginni í meira en 120 ár,
þarf að greiða Reykjavíkurborg fullt
verð fyrir, bæði gatnagerðargjald
og sérstakt gjald fyrir byggingar-
rétt,“ segir í bókun.
Morgunblaðið/Heiddi
Ráðhús Hjálpræðisherinn fær ekki
sama afslátt og önnur trúfélög.
Hjálpræðisherinn
greiði 44 milljónir
Annað trúfélag fékk sína lóð gefins
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ís-
lenska ríkið í gær til þess að greiða
manni 120 þúsund krónur í miska-
bætur vegna líkamsleitar sem gerð
var á honum á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum í fyrra.
Í dómsorði segir að lögregla hafi
haft afskipti af manninum og krafist
þess að framkvæma líkamsleit vegna
viðbragða fíkniefnahunds sem hefðu
gefið til kynna að hann gæti haft í fór-
um sínum fíkniefni. Maðurinn neitaði
leit og var því handtekinn og á hon-
um leitað við þvingun. Ekkert sak-
næmt fannst á manninum og voru
honum greiddar bætur á grundvelli
þess að hann var ekki ákærður.
Dæmdar miskabæt-
ur fyrir líkamsleit