Morgunblaðið - 07.10.2016, Page 13
Björns og að faðir þeirra bræðra,
Arnór Egilsson, langalangafi hans,
hafi verið atvinnuljósmyndari.
„Ég kynntist aldrei Birni lang-
afa mínum sem tók þessar fallegu
myndir, hann dó tuttugu árum áður
en ég fæddist. En ég hef heyrt sögur
af honum, langamma þurfti víst oft að
sýna mikla biðlund á ferðum þeirra
um landið, hann átti það til að stoppa
til að mynda eitthvað og þá þurfti
jafnvel að bíða í tvo eða þrjá tíma, þar
til rétta skýjafarið kom,“ segir Kjart-
an og bætir við að amma hans hafi
gefið Ljósmyndasafni Íslands allar
ljósmyndir Björns, sem voru vel yfir
tvö þúsund myndir.
Foss á Síðu Af þessum myndum Björns og Kjartans má sjá að þótt fossinn
sé samur við sig er gamli bærinn horfinn og nýtt hús komið í staðinn. Mynd
Björns er líka heimild um horfna búskaparhætti, fólk og tæki.
Sýningin er í tengigangi hjúkr-
unarheimilisins Markar, Suður-
landsbraut 66. Opnar á morgun
laugardag og stendur til 7. nóv.
Opið alla daga kl. 08– 20.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameinsfélagsins
til kaupa á nýjum tækjum til brjóstakrabbameinsleitar.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar
enn á ný með bleikum taxaljósum.
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili
árvekniátaks Krabbameinsfélagsins
í október og nóvember
Tökumbleikan
bíl!
Styrkjum starfsemi
Krabbameinsfélagsins
á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is
eða í App Store og Google Play
Sæktu þér Hreyfils appið
og pantaðu bleikan bíl.
SÆKTUAPPIÐ
Farsælt
samstarf
frá 2007
Hvalir eru magnaðar skepnur sem
fela sig í undirdjúpunum en koma þó
öðru hverju upp á yfirborðið og sýna
sig. Þá gleðjast nú mannskepnurnar
sem njóta þess að berja ferlíkin aug-
um, enda áhrifamikið að heyra í og
sjá þessa risa hafsins. Fyrirtækið
Ambassador, sem gerir út á hvala-
skoðun á Akureyri, ætlar nú að bjóða
upp á sérstaka hvalaskoðunarferð á
morgun, laugardag kl. 13, til styrktar
Fjölsmiðjunni. Öll innkoma rennur
óskipt til Fjölsmiðjunnar á Akureyri
sem rekur metnaðarfullt starf við að
hjálpa ungu fólki aftur upp á fæturna
sem hefur hrasað í lífinu. Fjölsmiðjan
rekur verslun með notuð húsgögn og
húsbúnað, matsölu, bílaþvottastöð,
tölvuviðgerðir og sitthvað fleira.
Nú er lag fyrir fólk að skella sér í
hvalaskoðun og styrkja gott málefni í
leiðinni. Það er mikið af hval í Eyja-
firði og góðar líkur á að fá að upplifa
þessi mögnuðu dýr í nánd.
Á morgun laugardag er lag að skella sér á sjó
Hvalur Í Eyjafirði er mikið af hval og góðar líkur á að sjá þessar skepnur þar.
Hvalaskoðun frá Akureyri
til styrktar Fjölsmiðjunni
Þær eru margskonar lýsingarnar
sem fólk hefur látið falla um Bóka-
kaffið á Selfossi, en það reka þau
og eiga heiðurshjónin Elín Gunn-
laugsdóttir tónskáld og Bjarni Harð-
arson, bóksali og rithöfundur. Sum-
ir segja það besta bókakaffi í heimi,
aðrir segja það vera andlega orku-
stöð á flatlendinu.
Bókakaffið lætur ekki mikið yfir
sér en þar er afar mikla andlega
næringu að finna sem og vöfflur,
kökur og kaffi fyrir kroppinn. Þar er
boðið upp á hina ýmsu menningar-
viðburði, sem eðli málsins sam-
kvæmt eru oft tengdir bókaútgáfu,
enda er bókaútgáfan Sæmundur til
húsa á sama stað. Bókakaffið byrj-
aði fornbókasölu 2009 og nú eru
um 24 þúsund titlar gamalla bóka á
skrá í netbókabúð.
Bókakaffið fagnar tíu ára afmæli
í dag, föstudag, og eru gestir vel-
komnir af því tilefni. „Á afmælis-
daginn verður formlega settur á
laggirnar bókaklúbbur sem heitir
einfaldlega Sæmundur á spariföt-
unum og af því tilefni verður fólki
boðið upp á þetta sögulega og
menningarlega kex, Sæmund á
sparifötunum, sem bragðast mjög
bókmenntalega og sögulega þó að
Kexverksmiðjan Esja sé ekki lengur
við lýði. Einn höfundanna sem lesa
hjá okkur á afmælinu þekkti Sæ-
mund persónulega og mun aðeins
segja frá honum,“ segir Bjarni og
bætir við að slegið verði upp af-
mælisveislu frá kl. 15-18 í Bóka-
kaffinu og klukkan 20 í kvöld sé
menningardagskrá í boði Bóka-
kaffisins og Uppbyggingarsjóðs
Suðurlands.
„Í afmælisveislunni klukkan þrjú
verður að sjálfsögðu afmæliskaffi í
boði hússins. Auk þess mæta rit-
höfundar víðs vegar að og lesa upp,
bóksalar bjóða upp kostagripi og
sérstök afsláttarkjör verða á bæði
nýjum og gömlum bókum. Rithöf-
undarnir sem mæta eru Ásdís Thor-
oddsen, Óskar Árni Óskarsson, Hall-
grímur Helgason, Pjetur Hafstein
Lárusson, Guðmundur Brynjólfsson,
Halldóra Thoroddsen, Guðrún Eva
Mínervudóttir og Hermann Stef-
ánsson. Þá les Heiðrún Ólafsdóttir,
rithöfundur og þýðandi, upp úr ný-
útkomnu verki grænlenska höfund-
arins Sørine Steenholdt.
Í kvöld er einnig dagskráin Ljóð-
færi, en þar koma fram feðgarnir
Þórarinn Eldjárn, ljóðskáld og rit-
höfundur, og Halldór Eldjárn, tón-
listarmaður og tölvufræðingur. Þeir
gramsa í ljóða- og hljóðasörpum
sínum, spinna og tvinna, með hjálp
ritvéla-, hljómborða og lyklaborða.
Einnig koma við sögu segulbönd,
hljóðgervlar, bækur, fetlar, blöð,
hristur, burstar, snerill og blýantur.“
Allir eru velkomnir í afmælið og
aðgangur er ókeypis.
Vefsíðan www.bokakaffid.is
Fyrsta bóksalan Bjarni seldi fyrstu bókina 2006. Sá sem keypti var Sigurður
Harðarson, hjúkrunarfræðingur frá Holti, eða Siggi pönk, hér með dóttur sinni.
Bókakaffið á Selfossi er
andleg orkustöð á flatlendinu
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.