Morgunblaðið - 07.10.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Sigurður Ólafsson, meltingar- og
lifrarlæknir á Landspítalanum, seg-
ir að um 360 manns hafi hafið eða
lokið lyfjameðferð við lifrarbólgu C.
Meðferðaraðilar hafa sett sig í
samband við á fimmta hundrað
manns og boðið þeim meðferð en
talið er að á bilinu 800-1000 manns
séu smitaðir af lifrarbólgu C á Ís-
landi.
Átakið hófst í febrúar en ákvörð-
un um að ráðast í það var tekin ár-
ið 2014. Hvatinn að því er ný bylt-
ingarkennd lyfjameðferð sem er í
töfluformi og þykja aukaverkanir
almennt fremur litlar þó að á því
séu undantekningar. Að meðferð-
inni standa meltingardeild LSH,
smitsjúkdómadeild Borgarspítala
og meðferðarheimilið Vogur. Að
sögn Sigurðar stendur lyfjameðferð
í flestum tilvikum yfir í 8-12 vikur.
Af þeim 360 sem hófu meðferð hafa
um 250 lokið henni. „Við höfum
ekki niðurstöður varðandi það
hvort allir úr þessum hópi séu
læknaðir. Það líður nokkur tími eft-
ir að meðferð lýkur þangað til
hægt er að kveða upp úr um hvort
viðkomandi er læknaður. Það er
gert með blóðprufu sem gerð er 12
vikum eftir að meðferð lýkur. Ef
veiran er ekki mælanleg í blóði þá,
telst viðkomandi læknaður,“ segir
Sigurður.
Hann segir þó að almennt hafi
átakið gengið í samræmi við vænt-
ingar. „Reynslan erlendis frá sýnir
okkur að langflestir læknast eftir
meðferð, vel yfir 90%.“
Hefur vakið athygli erlendis
Að sögn Sigurðar hefur átakið
vakið mikla athygli erlendis. Það
þyki einstakt að öllum í landinu sé
boðin þessi meðferð „Við áætlum
að 800-1.000 einstaklingar þjáist af
þessum sjúkdómi í samfélaginu og
það er einsdæmi að hægt hafi verið
að bjóða svo háu hlutfalli upp á
þessa meðferð,“ segir Sigurður.
Áætlað er að átakið taki 2-3 ár
en Sigurður segir að miðað við
hversu vel hafi gengið sé vonast til
þess að hægt verði að ljúka með-
ferðarátakinu strax á næsta ári.
„Ég vil nota þetta tækifæri til að
hvetja alla þá sem eru smitaðir af
lifrarbólgu C, og hafa ekki sett sig
í samband við okkur, að hafa sam-
band,“ segir Sigurður.
Bæði er hægt að hringja í 800-
1111 og heimsækja vefsíðu átaks-
ins, www.landspitali.is/medferdara-
tak.
250 hafa lokið með-
ferð við lifrarbólgu C
Of snemmt að segja til um hve margir hafi læknast
Morgunblaðið/Eggert
Meðferðarátak Sigurður Ólafsson á blaðamannafundi við kynningu átaks-
ins. Átta mánuðir eru síðan það hófst en það mun standa í 2-3 ár.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mjög fá dauðsföll hafa orðið vegna
eldgosa á Íslandi síðustu 100 árin,
þrátt fyrir fjölda eldgosa á 20. öld og
það sem af er 21. öld. Langflest
dauðsföll sem tengjast eldgosum
urðu vegna Skaftárelda 1783 - 1784.
Áætlað er að þá hafi um 8.700 manns
látist af ýmsum orsökum. Þetta
kemur fram í grein í Læknablaðinu,
„Áhrif eldgosa á heilsu manna á Ís-
landi. Yfirlitsgrein“ eftir Gunnar
Guðmundsson lækni og Guðrúnu
Larsen jarðfræðing.
Þar kemur m.a. fram að íslenskir
vísindamenn hafi reynt að meta
fjölda dauðsfalla af völdum eldgosa á
Íslandi. Þar birtist einnig tafla úr
grein (Volcanic Hazards in Iceland)
eftir Magnús Tuma Guðmundsson,
Guðrúnu Larsen, Ármann Hösk-
uldsson og Ágúst Gunnar Gylfason
(Jökull 2008; 58: 251-68).
Fram kemur í útdrætti greinar-
innar í Jökli að jökulhlaup sem verða
vegna eldgosa eða jarðhita undir
jöklum séu helsta orsök hættu-
ástands sem rekja má til eldfjalla.
Gjóskufall og flúoreitrun frá eld-
gosum hafi auk þess valdið felli bú-
fénaðar og hallærum sem leiddu til
dauða þúsunda manna fyrir upphaf
19. aldar.
Öræfajökulsgosið 1362 eyddi
Litlahéraði þar sem voru um 30 bæir
og var eldgosið það mannskæðasta
sem orðið hefur hér á landi, þótt
ekki sé vitað með vissu hve margir
fórust. Áætlað er að þeir hafi getað
verið á bilinu 50-300.
Einnig kemur fram í útdrættinum
að hættan á því að fólk farist í
sprengigosum sé að aukast. Ástæð-
an er sú að nú er orðið vinsælt að
ganga á eldfjöll sem gjósa oft og er
Hekla nefnd í því sambandi. Þá má
bæta því við að Heklugos hefjast
gjarnan með stuttum fyrirvara.
Í samantekt greinarinnar í
Læknablaðinu kemur fram að Ís-
lendingar hafi þurft að búa við hætt-
una af eldgosum frá því að land
byggðist. Eldgos hafa valdið marg-
víslegu tjóni, meðal annars á heilsu-
fari. Skaftáreldar 1783-1784 eru það
eldgos sem haft hefur mest áhrif á
heilsufar Íslendinga svo vitað sé og
valdið flestum dauðsföllum. Þá er
það sagt nauðsynlegt fyrir Íslend-
inga að vera stöðugt á varðbergi
vegna eldgosa og áhrifa þeirra á
heilsufar.
Enn er unnið að rannsóknum á
heilsufarsáhrifum gosmengunar-
innar frá Holuhraunsgosinu. Eink-
um er litið til þeirra sem voru mjög
nálægt eldstöðvunum vinnu sinnar
vegna.
Dauðsföll vegna eldgosa á Íslandi
Eldfjall Ár Dauðsföll Dauðsföll Athugasemdir
á gostíma eftir gostíma
Eldfell 1973 1 Eitruð lofttegund
Hekla 1947 1 Áverki
Grímsvötn 1861 1 Drukknun
Laki 1783 Um 8.700 Fjölþættar orsakir
Katla 1755 1 Elding
Öræfajökull 1727 3 Drukknun, jökulhlaup
Grímsvötn 1684 1 Drukknun, jökulhlaup
Grímsvötn 1629 4+ Drukknun, jökulhlaup
Hekla 1510 1 Áverki
Öræfajökull 1362 50-300? Ekki vitað Fjöldi óljós
Heimild: Læknablaðið, 10. tbl. 2016
Fá dauðsföll vegna
gosa eftir 18. öld
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að margir
þeirra sem eru nýsmitaðir af lifrarbólgu C komi inn á
Vog. „Okkar sjúklingar eru þeir sem eru í mestri hættu á
að smitast og eru nýkomnir inn í heilbrigðisþjónustuna.
Við höfum lengi skimað fyrir þessum sjúkdómi og erum
því mjög nærri þessum sjúklingahópi. Okkar sjúklingar
eru himinlifandi yfir þessu. Í fyrsta lagi hafa margir vit-
að af þessari sýkingu, og í sumum tilvikum ekki verið
ráðist í meðferð, eða þá að þeir hafi farið í meðferð sem
ekki hefur virkað. Margir tala um að þeim létti mikið að
fá slíka meðferð sem lofar góðum bata,“ segir Þórarinn.
Sjúklingarnir „himinlifandi“
ÞÓRARINN TYRFINGSSON, YFIRLÆKNIR Á VOGI
Þórarinn
Tyrfingsson
Norska skipasmíðastöðin Fisker-
strand Verft AS sem Vegagerðin og
Ríkiskaup töldu að væru með hag-
stæðasta tilboðið í smíði nýrrar
Vestmannaeyjaferju dró tilboð sitt
til baka í fyrradag, skömmu fyrir
skýringafund með fulltrúum kaup-
enda. Sigurður Áss Grétarsson,
framkvæmdastjóri siglingasviðs
Vegagerðarinnar, segir að engar
skýringar hafi fengist.
Lægstu tilboð í smíði nýrrar
Vestmannaeyjaferju voru á bilinu
2,7 til 2,8 milljarðar króna, nærri
því 800 milljónum undir kostnaðar-
áætlun Vegagerðarinnar.
Tilboðin endurmetin
Lægsta tilboðið var frá kín-
versku skipasmíðastöðinni Nan-
tong Rainbow Offshore and Eng-
ineering en tilboð Fiskerstrand var
litlu hærra. Næst voru tilboð frá
Tyrklandi, Póllandi og Eistlandi,
um 500 milljónum kr. hærri en hin
tvö.
Við yfirferð tilboðanna og mat á
aukakostnaði við eftirlit og heim-
siglingu auk afhendingaröryggis og
annarra atriða mátu sérfræðingar
Vegagerðarinnar og Ríkiskaupa til-
boð Fiskerstrand hagstæðast.
Sigurður Áss gefur ekki upp
hvernig önnur tilboð röðuðust eftir
mat á viðbótarkostnaði. Hann segir
ekki búið að ákveða við hvaða bjóð-
anda verði samið, eftir að Norð-
mennirnir gengu úr skaftinu. Það
sé enn í vinnslu.
Óljóst með skaðabætur
Tilboðin áttu að vera bindandi.
Sigurður Áss segir að það verði
skoðað hvort krafist verði skaða-
bóta frá norsku skipasmíðastöðinni
sem ekki stóð við tilboð sitt.
helgi@mbl.is
Ekki staðið við
hagstæðasta boð
Rætt við bjóðendur um smíði ferju
Morgunblaðið/Eggert
Tilboð Enn er verið að vinna úr til-
boðum í nýja Vestmannaeyjaferju.
Bíla- og vélavörur
...sem þola álagið!
Það borgar sig
að nota það besta!
Viftur
HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir
Stýrisendar
og spindilkúlurViftu- og tímareimar
Kúplingar- og höggdeyfar
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is