Morgunblaðið - 07.10.2016, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
www.heild.isfyrirspurn@heild.is
Til leigu
HEILD
fasteignafélag
Um er að ræða skrifstofurými á 2. hæð á góðum stað á Höfðanum.
Leigurýmið er 720 fm en mögulegt er að skipta því upp í minni rými.
• 720 fm skrifstofurými.
• Góð staðsetning.
• Næg bílastæði.
Höfðabakki 3, 110 Reykjavík
Hraunhellirinn Leiðarendi er um
4.000 metra langur og ör-
skammt frá veginum sem tengir
saman Krýsuvíkurleið sunnan
við Hafnarfjörð og Bláfjöll,
skíðasvæðið vinsælla. Leiðar-
endi er nokkurs konar á einskis-
mannslandi og liggur beinlínis
landamæralínu Grindavíkur og
Hafnarfjarðar. Þykir þó fremur
tilheyra síðarnefnda sveitarfé-
laginu og því hafa Hafnfirðingar
gripið boltann á lofti og hafa
tekið Leiðarenda í fóstur, ef svo
má segja
Munni hellisins er í jarðfalli
beint suður af Helgafelli. Þegar
niður er komið tekur við rauð-
leitur geimur í mikilli hraunrás,
sem einkennist af flögum á
veggjum og lofti og í rásinni má
sjá dropasteina, sepa,
hraunstrá og aðrar jarðmynd-
anir. Óvíða annarsstaðar er að-
gengi að svona jarðundrum
betra og af því skapast álagið.
Steinar, sep-
ar og stráin
JARÐFALL VIÐ HELGAFELL
Djásn Fallegir dropasteinar í rauð-
um bruna í lofti Leiðarenda.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Umhverfis- og framkvæmdaráð
Hafnarfjarðarbæjar hefur óskað
eftir því við Umhverfisstofnun að
hellinum Leiðarenda við Blá-
fjallaveg verði lokað tímabundið
fyrir öllum heimsóknum. Á hverju
ári skoða þúsundir ferðamanna
hellinn, sem nú liggur undir
skemmdum vegna mikil álags. Það
er í valdi Umhverfisstofnunar að
taka ákvörðun um lokun, en með-
an á henni stæði yrði tíminn not-
aður til að fara í nauðsynlegar
framkvæmdir.
„Aðgerðir við
Leiðarenda
mega ekki bíða.
Hvort sem hell-
inum verður lok-
að eða ekki
verður farið í
framkvæmdir
þar, auk þess
sem við viljum
innheimta hóf-
legt gjald af gestum. Mér finnst
ekki forsvaranlegt að fólk fari
þarna niður og brjóti niður dropa-
steina eða skilji eftir sig rusl, seg-
ir Helga Ingólfsdóttir, sem er for-
maður umhverfis- og
framkvæmdaráðs. Til stendur að
koma upp afgreiðsluhúsi skammt
frá munna hellisins, stækka bíla-
stæði og leggja stíga. Merkingar á
staðnum eru þegar komnar.
Úrbætur og innheimta
Ferðaþjónustufyrirtæki gera út
í reglulegar ferðir að Leiðarenda,
enda er hellirinn mjög aðgengileg-
ur. Selt er í þessar ferðir og í því
ljósi segir Helga ekki nema sann-
gjarnt að gestir greiðir fyrir heim-
sókn. Með því fáist peningar í
nauðsynlegar framkvæmdir svo og
landvörslu. Ekki liggur fyrir hvað
uppbygging á svæðinu gæti kost-
að, en það yrðu að minnsta kosti
nokkrar milljónir króna.
„Lokun vegna þessara nauðsyn-
legu úrbóta gæti tekið nokkra
mánuði. Vonandi getum við þó
komist hjá henni svo gestir geti
áfram sótt staðinn meðan á fram-
kvæmdum stendur. En þetta má
ekki bíða; úrbætur og innheimta
eru á dagskrá,“ segir Helga. Hún
bætir við að einnig sé áhugi hjá
Hafnarfjarðarbæ að gera brag-
arbætur á umhverfi og aðstöðu við
Seltún í Krýsuvík. Þar fjölgar
gestum ár frá ári, enda eru
kraumandi hverirnir áhugaverðir
að sjá.
Leiðarenda verði lokað
Hellir er í hættu og Hafnarfjarðarbær vill framkvæmdir Beðið eftir
Umhverfisstofnun Hófleg gjaldtaka er á dagskrá Áhugi á Krýsuvík
Helga Ingólfsdóttir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Leiðarendi Hellismunninn og í baksýn er Helgafell, Hafnarfjarðarfjallið.
Krýsuvík Margir koma að hverasvæðinu við Seltún. Margt að sjá og skoða.