Morgunblaðið - 07.10.2016, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Brauð dagsins alla föstudaga
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
7. október 2016
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 113.59 114.13 113.86
Sterlingspund 144.48 145.18 144.83
Kanadadalur 86.01 86.51 86.26
Dönsk króna 17.067 17.167 17.117
Norsk króna 14.111 14.195 14.153
Sænsk króna 13.197 13.275 13.236
Svissn. franki 116.05 116.69 116.37
Japanskt jen 1.0964 1.1028 1.0996
SDR 158.0 158.94 158.47
Evra 127.01 127.73 127.37
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 158.794
Hrávöruverð
Gull 1265.5 ($/únsa)
Ál 1662.5 ($/tonn) LME
Hráolía 51.22 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Landsbankinn
hyggst innheimta
fast lántökugjald,
eða 52.500 krón-
ur, af hverju íbúð-
arláni til ein-
staklinga í stað
þess að lántöku-
gjald nemi tilteknu
hlutfalli af láns-
fjárhæð.
Í tilkynningu frá
Landsbankanum segir að breytingin
muni í langflestum tilfellum leiða til
þess að lántakendur greiða mun lægra
lántökugjald en áður. Bankinn nefnir
sem dæmi lántökugjald og kostnað af
20 milljóna króna íbúðaláni sem var áð-
ur 155.000 krónur, en lækkar nú niður í
52.500 krónur.
Sem fyrr verður lántökugjald fellt
niður hjá þeim sem eru að kaupa sína
fyrstu fasteign. Fyrir þá sem taka einnig
allt að 15% viðbótarlán umfram íbúð-
arlán sem nemur 70% af kaupverði,
verður lántökugjald innheimt eins og
um eitt lán sé að ræða.
Lántökugjald Lands-
bankans óháð fjárhæð
Landsbanki Fast
gjald fyrir lántöku.
STUTT
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Orkusalan, sem er dótturfyrirtæki
RARIK, hefur ákveðið að færa öllum
sveitarfélögum á Íslandi hleðslustöð
fyrir rafmagnsbíla að gjöf. Magnús
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Orkusölunnar, segir að með þessu
vilji fyrirtækið leggja sitt af mörkum
til að stuðla að aukinni rafmagnsvæð-
ingu bílaflotans hérlendis.
„Það þurfa allir að leggja sín lóð á
vogarskálarnar og við mátum það
þannig að við gætum stuðlað að upp-
byggingu innviða kerfisins með þess-
um hætti. Þess vegna bjóðum við öll-
um sveitarfélögum, hversu stór sem
þau eru, eina stöð til uppsetningar og
með því mun okkur vonandi takast að
byggja upp net hleðslustöðva um land
allt. Það skiptir verulegu máli að þessi
möguleiki sé aðgengilegur sem víðast
því það eykur notkunarmöguleika
þeirra sem kjósa að aka um á bílum
sem annaðhvort ganga að öllu leyti
eða nokkru fyrir rafmagni.“
Mjög góðar viðtökur nú þegar
Magnús segir að viðtökurnar hafi
reynst mjög góðar og að mörg sveit-
arfélög hafi bæði lýst ánægju sinni
með framtakið en einnig hafi nokkur
þeirra nú þegar aflað sér upplýsinga
um tæknileg atriði varðandi uppsetn-
ingu stöðvanna.
„Við fórum þá leið að panta inn
hleðslustöðvar frá þýska framleiðand-
anum Schneider sem er mjög fram-
arlega á þessu sviði. Auk þess
ákváðum við að stöðvarnar yrðu
þannig úr garði gerðar að þær eru
festar á húsvegg en það er mun hag-
kvæmari kostur en ef þær væru sjálf-
standandi.“
Ekki hefur fengist uppgefið hver
kostnaður Orkusölunnar er af þessu
framtaki en Magnús segir að hann
hlaupi á tugum milljóna króna. Það sé
hins vegar ekki mikið í heildarsam-
henginu og í ljósi þeirra hagsmuna
sem felist í því að byggja upp innviði í
kringum rafbílavæðinguna.
Möguleiki á stækkun
Hleðslustöðvarnar sem Orkusalan
hyggst gefa sveitarfélögunum eru
svokallaðar stæðisstöðvar (e. parking
stations). Þær gera bifreiðaeigendum
kleift að tengjast með eigin straum-
breytum og þar með er komið í veg
fyrir þann vanda sem tengist þeirri
staðreynd að bílaframleiðendur hafa
notast við ólíka staðla þegar kemur að
tenglum sem leiða inn á rafhlöður
bílanna.
„Stöðvarnar verða settar upp með
þeim hætti að á hverjum tíma geti
einn bíll verið tengdur í hleðslu. Hins
vegar er hægt að breyta stöðvunum
með tiltölulega litlum tilkostnaði og
þá er hægt að tengja tvo bíla við stöð-
ina á hverjum tíma. Þá mun hvert og
eitt sveitarfélag ráða aðgengi að
stöðvunum og hægt er að koma upp
aðgangsstýringarkerfi á þeim ef vilji
er til þess,“ segir Magnús. Samkvæmt
upplýsingum frá Orkusölunni felst lít-
ill tilkostnaður í því fyrir sveitarfélög-
in að koma stöðvunum upp. Hann
kann helst að felast í útseldri vinnu við
uppsetninguna og takmarkaða lagna-
vinnu. Þá segir fyrirtækið að ef miðað
er við efri mörk viðmiða á Norður-
löndunum yfir notkun stöðva af þessu
tagi þá gæti rafmagnsnotkun í gegn-
um stöðvarnar náð allt að 20.000 kWh
á ári. Það fæli í sér rafmagnskostnað í
kringum 250.000 krónur árlega.
Fyrsta skrefið stigið í raf-
bílavæðingu alls landsins
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Framtíð Gríðarleg framþróun hefur orðið í smíði rafbíla á undanförnum árum og enn er von á frekari nýjungum.
Hröð framþróun
» Hleðslustöðvarnar sem
Orkusalan gefur nú munu ekki
hlaða jafnhratt inn á bíla og
svokallaðar hraðhleðslu-
stöðvar.
» Stöðvarnar eru 22 kílówött
og þriggja fasa 32 ampera.
» Hleðslutíminn mun ráðast af
tegund bíla og rafhlaða.
» Frá árinu 2010 hafa tæplega
600 rafbílar verið fluttir inn til
landsins.
» Frá 2013 eru tengitvinnbíl-
arnir orðnir ríflega 500.
Orkusalan gefur 74 sveitarfélögum landsins hleðslustöðvar til uppsetningar
Fjármálaeftirlitið varar á heimasíðu
sinni við svokölluðum jafningjalán-
um sem farið var að bjóða upp á síð-
astliðið sumar. Vill FME benda á að
veiting jafningjalána og starfsemi
jafningjalánamiðlana sé almennt
ekki leyfisskyld og lýtur því ekki eft-
irliti. Slíkar fjárfestingar njóti held-
ur ekki lágmarksverndar í samræmi
við lög um innstæðutryggingar.
Aktiva lausnir ehf. hófu síðastliðið
sumar að bjóða upp á jafningjalán
þar sem fyrirtækið leiðir saman lán-
takendur og lánveitendur í gegnum
svokallað lánatorg. Þjónusta
félagsins lýtur einnig að flokkun lán-
takenda eftir greiðslumati, sem og
móttöku og miðlun greiðslna á milli
lántakanda og lánveitanda. FME hóf
í kjölfarið að skoða hvort Aktiva hafi
verið að stunda leyfisskylda starf-
semi samkvæmt lögum um fjármála-
fyrirtæki. Einnig skoðaði FME
hvort meðferð fjármuna lánveitenda
og lántaka bryti í bága við lög um
greiðsluþjónustu.
Niðurstaða FME , sem birt var í
gær á heimasíðu þess, er sú að
Aktiva hafi stundað greiðsluþjón-
ustu án tilskilins leyfis. Hefur FME
beint þeim fyrirmælum til Aktiva að
það hætti að stunda leyfisskylda
starfsemi þegar í stað.
Fram kemur í niðurstöðu FME að
Aktiva hefur farið að fyrirmælum
eftirlitsins og fært greiðsluþjónustu
fyrirtækisins yfir til aðila sem er
með starfsleyfi til að stunda slíka
þjónustu. Jafnframt hafi félagið sótt
um starfsleyfi til Fjármálaeftirlits-
ins sem greiðslustofnun. Ekki náðist
í forsvarsmenn Aktiva við vinnslu
fréttarinnar. olafur@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Lánsfé Fjármálaeftirlitið varar við
áhættu sem fylgir jafningjalánum.
FME varar við
jafningjalánum
Aktiva stundaði
greiðsluþjónustu
án tilskilins leyfis