Morgunblaðið - 07.10.2016, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
CURCUMIN
Gullkryddið
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og
starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún
hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í
yfir 25 ár eftir að hún lenti í slæmu bílslysi og er komin
með liðagigt.
„Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum
og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín
sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika
sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan
mánuð þegar égmissti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að
Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.”
LIÐIR – BÓLGUR – GIGT
Nánar á balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Í Evrópusambandinu og í Evrópu
almennt þá þurfum við að hafa ein-
hvers konar sameiginlega stefnu til
að framkvæma þetta. Evrópusam-
bandið hefur tekið ákvarðanir varð-
andi endurflutning fólks, þar sem
því er komið fyrir á nýjum stað, en
mörg lönd hafa ekki gert það sem
samið var um og það veldur mikilli
áskorun,“ segir Timo Soini, utan-
ríkisráðherra Finnlands, í samtali
við Morgunblaðið í gær, spurður út
í áhrif flóttamannavanda Evrópu á
Finnland. Soini er formaður flokks
þjóðernissinna, Sannra Finna, en
flokkurinn nær fimmfaldaði fylgi
sitt í síðustu þingkosningum.
Soini er í opinberri heimsókn hér
á landi í boði Lilju Alfreðsdóttur,
utanríkisráðherra Íslands, og átti
með henni fund í gær. Þau ræddu
meðal annars um tvíhliða samskipti
Íslands og Finnlands, efnahagsmál,
norðurslóðir og öryggismál.
Soini ávarpar einnig Hringborð
norðurslóða í dag. „Okkar áherslur
á því sviði eru umhverfismál, veður-
fræði, menntun og sjálfbær þróun.
Það eru margar áskoranir í þessu
umhverfi þar sem náttúru- og ör-
yggisaðstæður eru erfiðar,“ segir
hann um vettvang norðurslóða en
Finnland tekur við forsæti í sam-
tökunum á næsta ári.
Ekkert réttlætir ofbeldi
„Við tókum við fleira fólki nú en
mörg önnur lönd samanlagt og höf-
um samþykkt að taka við fleirum,
eða 4.000 manns í endurflutnings-
áformum Evrópusambandsins,“
segir hann einnig og tekur fram að
það sem Finnar samþykki að gera í
þessum málum muni þeir standa
við.
Spurður um viðbrögð heima-
manna við fjölgun flóttamanna í
landinu segir hann meirihluta
Finna vera hófsama í þessum mál-
um. „Það eru öfgamenn sem setja
sig upp á móti þessum áformum og
þeir myndu gera það hvort sem um
væri að ræða 100 manns eða 5.000
manns,“ bætir hann við en tekur
fram að öfgamenn séu mikill minni-
hluti.
Nýlegar árásir með rót í kyn-
þáttahatri hafa átt sér stað í Finn-
landi undanfarið og segir Soini að
allar tegundir ofbeldis séu óásætt-
anlegar. „Flóttamannavandinn er
mjög alvarlegur og það verður að
taka á honum í samræmi við það.
Við verðum að hafa reglur og við
verðum að hafa skynsama stefnu í
þeim málum. En ekkert réttlætir
ofbeldi af neinu tagi, óháð því hverj-
um það beinist gegn og hver fremur
það.“
Þá hefur Rússland verið að láta
til sín taka á Balkanskaganum und-
anfarið og segist Soini hafa áhyggj-
ur af því. „Já, því það sem gerist í
Úkraínu og það sem gerðist á
Krímskaganum, með ólöglegri inn-
limun landsins, hefur áhrif hvað
varðar öryggi. Eystrasaltslöndin
hafa styrkt varnir sínar og við höf-
um áhuga á því sem gerist á þessu
svæði,“ sagði hann og bætti við að
Finnland muni gera sitt til að draga
úr spennu á svæðinu. „Ég myndi
ekki segja að það væri hætta á
stríði.“
Soini tók einnig fram að Finnland
væri ekki á leið inn í Atlantshafs-
bandalagið og stefna ríkisstjórnar-
innar væri skýr þar um. „En við
höfum dyrnar opnar.“
Finnar standi við það
sem þeir samþykkja
Timo Soini, utanríkisráðherra Finna, heimsækir Ísland
Heimsókn Timo Soini, utanríkisráðherra Finnlands, og Lilja Alfreðsdóttir,
utanríkisráðherra Íslands, funduðu hér á landi í gær og ræddu ýmislegt.
Sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna
varaði við því í gær að austurhluti
Aleppo yrði rústir einar innan
skamms ef ekkert yrði gert til að
stöðva átökin og koma hjálpar-
gögnum til íbúa. Þetta segir í frétt
AFP. „Það er þannig að með þessu
áframhaldi, eftir tvo mánuði, tvo
og hálfan mánuð, verður austur-
hluti Aleppo gjörónýtur,“ sagði
Staffan de Mistura á fundi með
fréttamönnum í Genf, að því er
BBC greinir frá.
„Þúsundir sýrlenskra borgara,
ekki hryðjuverkamenn, munu
verða drepnir og margir munu
einnig særast,“ sagði hann einnig.
Sýrlenski stjórnarherinn, með að-
stoð Rússa, hefur staðið fyrir
miklum og stöðugum árásum á
austurhluta borgarinnar sem er á
valdi uppreisnarmanna og hafa
sjúkrahús meðal annars orðið fyrir
árásum.
De Mistura biðlaði einnig til
Rússa og sýrlenskra stjórnvalda
að eyðileggja ekki borgina til þess
eins að útrýma uppreisnarmönn-
um. Þá sendi hann einnig skilaboð
til uppreisnarmannanna. „Ef þið
ákveðið að yfirgefa svæðið með
reisn, þá er ég persónulega tilbú-
inn að fylgja ykkur á brott.“
AFP
Sorg Margir borgarbúar í Aleppo
hafa látið lífið í átökunum.
Stutt í algera eyði-
leggingu Aleppo
Biðlar til stríðandi fylkinga að hætta
Heiðursmorð hafa verið bönnuð í
Pakistan samkvæmt breytingu á lög-
um sem samþykkt voru í gær. Þetta
kemur fram í frétt breska ríkisút-
varpsins, BBC.
Fram til þessa var glufa í lögum
Pakistan sem gerði einstaklingum
sem frömdu heiðursmorð kleift að
ganga lausir ef ættingjar fórnar-
lambsins höfðu fyrirgefið þeim. Gáfu
þeir yfirleitt þær skýringar að þeir
hefðu aðeins verið að vernda heiður
fjölskyldu sinnar.
Lögin marka tímamót í pakist-
önsku samfélagi en lengi hefur verið
barist fyrir breytingunni. Er þetta
því álitið skref í rétta átt í landi þar
sem árásir á konur, sem fara gegn
íhaldssömum reglum um ástina og
hjónaband, eru algengar. Nær 1.100
konur voru myrtar af ættmennum
sínum í Pakistan í fyrra en mörg mál
koma aldrei á borð lögreglu og eru
því ekki talin með. Þetta kemur fram
í upplýsingum frá Mannréttindaráði
Pakistan (HRCP).
Banna heiðursmorð
Tímamótalög
sett í Pakistan
AFP
Bann Fórnarlömb heiðursmorða í
Pakistan, konan og ástmaðurinn.
Yfir 100 manns létust þegar fellibyl-
urinn Matthew gekk yfir Haíti fyrir
tveimur dögum. Þetta sagði Fran-
cois Anick Joseph, innanríkisráð-
herra landsins, í samtali við AFP-
fréttastofu í gær. Þar af létust fimm-
tíu manns í bænum Roche-a-Bateau
á suðurströnd Haíti en yfirvöld á
staðnum sögðu bæinn hafa eyðilagst
í náttúruhamförunum.
Fellibylurinn er sagður vera af
fimmta stigi sem er næsthæsta stig
fellibylja og er sá sterkasti í áratug.
Í gær gekk hann yfir Bahama-eyj-
ar og stefnir hraðbyri að Flórídaríki
í Bandaríkjunum. Matthew olli mik-
illi eyðileggingu á Bahama-eyjum og
einu byggingarnar sem voru enn
með rafmagn voru þær sem búnar
voru neyðarrafali. Fréttir af svæðinu
herma að gluggar hafi brotnað, þök
fokið af húsum og fallin tré lokað
vegum, auk þess sem fellibylnum
fylgdi mikið úrhelli og flóð.
Fellibylurinn stefndi að suð-
austurströnd Bandaríkjanna og um
þremur milljónum manna var því
skipað að yfirgefa heimili sín í gær.
AFP
Eyðilegging Fellibylurinn gekk yfir Haítí og stefnir að Bandaríkjunum.
Matthew kostaði yfir
hundrað manns lífið
Fellibylurinn stefnir hratt að Flórída