Morgunblaðið - 07.10.2016, Page 21
AFP
Nei Mótmæli spruttu upp í Póllandi
og víða um Evrópu vegna málsins.
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Pólska þingið hafnaði í gær banni við
fóstureyðingum eftir að konur efndu
til fjöldamótmæla víðs vegar um
Pólland. Landið hefur þegar eina
mest hamlandi löggjöf í Evrópu
hvað varðar fóstureyðingar enda er
kaþólska trúin afar sterk í Póllandi.
Lagafrumvarpinu sem hafnað var
kvað á um að fóstureyðingar yrðu
aðeins leyfðar ef líf móður væri í
hættu og þyngdi refsingar gegn
þeim sem framkvæma fóstureyð-
ingar úr tveimur árum í fimm.
Hægri og frjálslyndir þingmenn í
neðri deild þingsins, sem telur 450
þingmenn alls, tóku saman höndum
og höfnuðu hinu umdeilda laga-
frumvarpi með 352 atkvæðum gegn
58, að sögn fréttaveitunnar AFP í
gær.
Atkvæðagreiðslan fór fram í kjöl-
far viðamikilla mótmæla þar sem
konur klæddust svörtu og þustu út á
götur á mánudag. Mótmæli til stuðn-
ings málstað kvennanna spruttu
einnig upp víðs vegar um Evrópu,
þar á meðal hér á Íslandi, í Berlín,
London og París.
Jaroslaw Kaczynski, leiðtogi
hægrimanna í ríkisstjórn Póllands,
Pis, sagði í þingsal áður en atkvæða-
greiðslan fór fram að flokkur hans
yrði alltaf fylgjandi því að verja rétt-
inn til lífs. En hann tók fram að
bannið sem nú væri fyrir þinginu
„tæki ekki nógu vel á málinu“.
Löggjöf landsins er varðar fóstur-
eyðingar heimilar þær nú í
„ákveðnum tilfellum“.
Fóstureyðingabanni hafnað á þingi
Forystumaður í stjórn Póllands taldi ekki tekið rétt á málinu með frumvarpinu
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Haust- og jólalínan 2016
www.danco.is
Heildsöludreifing
Tímabókanir í sýningarsal í síma 575 0200
Opið 8.00-17.00
Viðar-
rugguhestur
Glerkúla m/fjöður
2 stk. í boxi 8 cm
Stjarna metal
m/glimmer 20 cm Gæra grá 60x90 cm
Snjósleði Wood
Tindáti m/ljósi
184 cm
Grenikrans m/ljósum
90 cm
Leðurstóll
Butterfly 87 cm
María Mey
50 cm
Jólakúlur, 4 teg. 8 cm
Viðararinn
140x110 cm
Hreindýr, svart,
2 teg. 12 cm
Jólatré í potti
Hnetubrjótur,
2 teg. 38 cm Kökustandur
140 cm
Fyrirtæki og verslanir
Vegghorn
hreindýr
65 cm
Glerkisa 13 cm
Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna
lýsti í gær yfir
stuðningi við
Antonio Guter-
res, sem næsta
framkvæmda-
stjóra Samein-
uðu þjóðanna en
hann hefur áður
gegnt stöðu for-
sætisráðherra Portúgal og farið
fyrir Flóttamannastofnun Samein-
uðu þjóðanna undanfarin tíu ár.
Þegar það var kynnt í Öryggis-
ráðinu að Guterres hlyti stuðning-
inn braust út mikið lófatak en
fundurinn fór fram fyrir luktum
dyrum. Verði farið að vilja Örygg-
isráðsins tekur Guterres við 1.
janúar næstkomandi. Þetta segir í
frétt AFP.
„Til að lýsa því hvernig mér líð-
ur á þessari stundu nægja mér tvö
orð: þakklæti og auðmýkt,“ sagði
Guterres sem var staddur í Lissa-
bon í Portúgal. Hét hann því að
sem framkvæmdastjóri SÞ myndi
hann þjóna sérstaklega „þeim sem
veikastir eru fyrir, þ.e. fórnar-
lömbum átaka, hryðjuverka,
mannréttindabrota og fórnar-
lömbum fátæktar og óréttlætis.“
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
Guterres verði fram-
kvæmdastjóri SÞ
Antonio Guterres
Steven Woolfe, Evrópuþingmaður
flokks breskra sjálfstæðissinna,
UKIP, hneig meðvitundarlaus niður
á gangi Evrópuþingsins í gærmorg-
un eftir að annar þingmaður flokks-
ins kýldi hann fyrir utan fundarstað
flokksmanna þegar reynt var að
lægja öldurnar eftir skyndilega af-
sögn nýs formanns hans.
Ástand Woolfe virtist alvarlegt í
fyrstu en hann var fluttur á sjúkra-
hús. Í yfirlýsingu sem hann gaf frá
sér í gær sagðist hann vera sæll og
kátur.
The Guardian nafngreindi árásar-
manninn í gær sem Mike Hookem,
Evrópuþingmann UKIP. Á hann að
hafa hreytt ónotum í Woolfe vegna
frétta um að hann ætlaði að ganga
til liðs við Íhaldsflokkinn. Woolfe
hafi beðið hann um að ganga af
fundi en þá hafi átökin átt sér stað.
BRETLAND
Þingmaður UKIP
kýldur af samherja
Kýldur Woolfe liggur á gólfinu.
Hin nýkrýnda
ungfrú Vene-
súela, Keysi Sa-
yago, hefur látið
sig varða ummæli
forsetaframbjóð-
andans Donalds
Trump sem hann
lét falla um for-
vera hennar,
Alicia Machado.
„Ég deili ekki skoðunum þessa herra-
manns, en við verðum að vera um-
burðarlynd og virða skoðanir allra,“
sagði hún en bætti við að hann hefði
óvirt Machado þegar hún bar titil
ungfrú Venesúela árið 1995 og sagt
hana feita. Þetta kemur fram í frétt
AFP en Sayago var krýnd í fyrradag.
Þessi ummæli Trump komust í
heimspressuna eftir að forseta-
frambjóðandi demókrata, Hillary
Clinton, vakti máls á þeim í fyrstu
kappræðum hennar við Trump á dög-
unum. Notaði hún ummæli hans sem
dæmi um fordóma hans í garð
kvenna.
VENESÚELA
Fegurðardrottning
gagnrýnir Trump
Keysi Sayago