Morgunblaðið - 07.10.2016, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Hamraborg 10 – Sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18, laugardaga 11-14
Verið velkomin
í sjónmælingu
Traust og góð þjónusta í 20 ár
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
og á leiðinni
Sími 4 80 80 80
2016 Ford F-150 Platinum
3.5L Ecoboost Bensín.
VERÐ
11.990.000.-
2016 GMC Denali 3500
6.6L Diesel.
VERÐ
11.690.000.-
2016 Dodge Ram 1500
Laramie 3L EcoDiesel,
8 gíra skifting.
VERÐ
11.900.000.-
2016 Ford F-350 Lariat
Ultimate 6.7L Diesel.
VERÐ
10.390.000.-
2016 Chevrolet Silverado
3500 High Country 6.6L
Diesel.
VERÐ
11.390.000.-
Fæðuviðbótin Saga-
Pro hefur verið seld
hér á landi í mörg ár.
Þetta eru töflur, sem
eru sagðar innihalda
100 mg hver af 5:1
vatnsextrakti úr lauf-
um ætihvannar (Ange-
lica archangelica) auk
ýmissa „óvirkra“
hjálparefna en mörg
þeirra eru tilbúin
gerviefni.
Framleiðandi mælir með að tekn-
ar séu 1-2 töflur á dag við tíðum
þvaglátum vegna skertrar blöðru-
rýmdar, ofvirkrar blöðru og/eða
góðkynja stækkunar blöðruhálskirt-
ils. Varan á að vinna gegn nætur-
migu; hún hefur líka í seinni tíð ver-
ið auglýst fyrir hlaupara og fólk á
ferðalögum, í fundarsetum o.fl., sem
á þá að geta haldið lengur í sér
þvaginu. Hún á að gagnast körlum
og konum. Framleiðandi hefur bent
á, að flavónóíðið ísókversítrín, sem
hann taldi vera til staðar í plönt-
unni, væri mögulega það efni, sem
ylli þessum áhrifum. Auglýsinga-
áróður er mikill og stundum svæs-
inn, á prenti, rafrænt, í útvarpi og
sjónvarpi. Verð í apótekum er nú
um 2.500 kr. fyrir 30 töflur, eða um
30-60 þúsund kr. á ári ef þær eru
teknar að staðaldri. Þetta er dýrt
miðað við læknismeðferð.
Innihaldsefni ætihvannar hafa
lengi verið vel þekkt og hafa athug-
anir framleiðanda SagaPro ekki
bætt neinu við þá vitneskju. Yfir 20
fúranókúmarín (eiturefni) eru
þekkt, þ. á m. angelísín, arkangel-
ísín, bergapten, imperatórín, ísóim-
peratórín, xantótoxín, 2’-angelóýl-3’-
ísóvalerýlvagínat, heraklenól-2’-O-
senesíóat og heraklenól-2’-O-
ísóvalerat svo og kúmarínin ostól og
umbellíferón. Ilmolíur eru til staðar,
sem innihalda m.a. alfa- og beta-
fellandren, alfa- og beta-pínen, sab-
ínen, alfa-tújón, límonen, línalóól,
borenól og 4 stórhringja laktón.
Önnur innihaldsefni eru m.a. ark-
angelenón (flavónóíð), palmitínsýra,
kaffínsýra, klórógensýra, frúktósi,
glúkósi, súkrósi og umbellíferósi. Til
viðbótar var svo flavónóíðið ís-
ókversítrín nýlega sannkennt 1).
Ekkert þessara efna er þekkt að því
að hafa áhrif á tíð þvaglát, sam-
kvæmt vísindaritum.
Fyrir þremur árum birtist grein 2)
eftir framleiðanda SagaPro um klín-
íska rannsókn á því á hópi karl-
manna, sem þurfti að pissa minnst
tvisvar á nóttu. Skammtur var 2
töflur á dag. Skemmst
af að segja var niður-
staðan sú, að enginn
munur var á virkni
SagaPro og lyfleysu.
Höfundar tóku þá út
mjög lítinn undirhóp
(tíu menn í SagaPro-
hópnum) til undirhóps-
greiningar er leiddi í
ljós hugsanlega jákvæð
áhrif á næturmigu hjá
einstaklingum með
meinta skerta blöðru-
rýmd. En það er mjög
mikilvægt að gera sér ljóst, að nið-
urstöður úr slíkum eftir á grein-
ingum verður að túlka með ýtrustu
varúð og er ekki hægt að meta sem
staðfestingu á sönnum áhrifum.
Sagt með öðrum orðum: Hér voru
höfundar aðeins að setja fram til-
gátu um hugsanlega virkni taflanna
á þennan undirhóp. Virknin er enn
vísindalega ósönnuð og engar rann-
sóknir hafa verið gerðar á konum.
Nýlega lauk rannsókn 1), sem
beindist að „virkum“ innihalds-
efnum taflanna, einkum flavónóíðinu
ísókversítríni auk aðaleiturefnanna
tveggja, xantótoxíni og imperatór-
íni. Öll þessi efni reyndust vera til
staðar í töflunum en í sáralitlu
magni og var því beitt afar næmri
mæliaðferð, þ.e. háskerpu vökva-
greiningu + massagreiningu (e.
UPLC/MS).
Í rannsókninni reyndist magn ís-
ókversítríns vera 0,16 mg í hverri
töflu. Það er alveg fráleitt að svona
lítill skammtur geti haft nokkur ein-
ustu áhrif á þvaglát í mönnum eða
önnur lyfjafræðileg áhrif. Þess má
annars geta að ísókversítrín í
stórum skömmtum hefur þvagræs-
andi áhrif (eykur þvagmyndun) í
rottum 3), sem er þveröfug verkun
við þá sem framleiðandi SagaPro
heldur fram!
Magn eiturefnanna xantótoxíns
og imperatóríns reyndist vera 0,28
mg og 0,002 mg í töflu. Það er mjög
ólíklegt að þessi efni geri nokkurt
gagn eða ógagn í svo litlu magni.
Ýmis önnur „virk“ efni mátti greina
í töflunum, en í enn minna magni en
þau, sem nefnd hafa verið þannig að
það er útilokað að þau hafi einhver
líffræðileg áhrif. Yfirgnæfandi
magn efna úr ætihvönn í töflunum
reyndust vera óvirkar sykurteg-
undir, þ.e. glúkósi (þrúgusykur),
súkrósi (sykur), frúktósi (ávaxtasyk-
ur) o.fl. efni úr þeim flokki.
Ég hef áður haft áhyggjur af inni-
haldi SagaPro af eitruðum fúranók-
úmarínum en þær eru ástæðulausar
í ljósi þessarar rannsóknar. Vís-
indalega er ekki hægt að halda öðru
fram um SagaPro-töflurnar en að
þær séu verkunarlausar, þ.e. að þær
séu sambærilegar við töflur, sem
innihalda bara sykur og virka því
ekkert, burtséð frá væntingar-
áhrifum en um þriðjungur fólks er
næmur fyrir þeim.
1)Kowal, N.M. et al.: Investigations on the
constituents of SagaPro tablets, a food
supplement manufactured from Angelica
archangelica leaf. Pharmazie, í prentun
(2016).
2)Sigurdsson, S. et al.: A parallel, random-
ized, double-blind, placebo-controlled
study to investigate the effect of SagaPro
on nocturia in men. Scand. J. Urol.
Nephrol. 47, 26-32 (2013).
3)Gasparotto, J. et al.: Mechanisms under-
lying the diuretic effects of Tropaeolum
majus L. extracts and its main component
isoquercitrin. J. Etnopharmacol. 141, 501-
508 (2012).
SagaPro – dýrt
og gagnslaust kukl
Eftir Reyni
Eyjólfsson » Samkvæmt nýrri
rannsókn er ekki
hægt að halda öðru fram
um SagaPro töflurnar
en að þær séu verk-
unarlausar, þ.e. ómerki-
legt, gagnslaust kukl.
Reynir Eyjólfsson
Höfundur er doktor í
náttúruefnafræði með
diplómu í jurtalækningum.
Er ekki almenningur farinn að nota
of mikið forsetninguna „á“ þar sem
miklu eðlilegra er og íslenskulegra
að nota forsetninguna „til“? Sumum
þætti ef til vill í lagi að segja að fara
á útlönd í staðinn fyrir til útlanda og
jafnvel fara á Kína. Ekki þykir mér
slíkt málfar til fyrirmyndar. Þessum
blindu málskussum er trúandi til
alls. Um áratuga bil var Jón Frið-
jónsson höfundur Orð skulu standa,
þess stórmerka rits, með vikulegan
pistil um íslenskt mál í Morgun-
blaðinu uns ritstjórinn Ólafur Steph-
ensen sagði honum upp. Það voru
ljót mistök af hans hálfu. Enn frem-
ur þykist ég vita að Jón hafi tekið
þetta mjög nærri sér.
Halldór Þorsteinsson,
fv. skólastjóri Málaskóla Halldórs.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Er forsetningin „á“ ofnotuð?
– með morgunkaffinu
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Keppnin um Oddfellow-skálina
Keppni um Oddfellow-skálina
hófst í októberbyrjun. Átján pör
mættu til leiks og styrktu félagsauð-
inn á vindasömu haustkvöldi.
Mörg skemmtileg spil komu upp
úr spilabökkum og reyndu misflókin
sagnkerfi félagsmanna meðan lauf-
blöðin fuku af trjánum um borgina.
Þetta er í fimmta skiptið sem spil-
að er um Oddfellow-skálina.
Hér er lokastaða kvöldsins.
Helgi G. Jónsson - Hans Óskar Isebarn 243
Hreinn Ó. Sigtryggs. - Ragnar Halldórs. 241
Guðm. Ágústsson - Friðrik Sigurðsson 239
Jón Guðmss. - Þorvaldur Þorsteinsson 207
Jóhannes Sverriss. - Óskar Karlsson 205
Meðalskor 192 stig.
Helgi og Hans enduðu með 63,3%
skor og tóku heim verðlaun kvölds-
ins en þeir höfðu leitt toppbaráttuna
lungann úr kvöldinu.
Spilaðar verða 6 lotur og telja
fjögur bestu skorin.
Næst verður spilað 7. nóvember.