Morgunblaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
✝ Magnúsína Sig-urðardóttir
fæddist á Akureyri
19. desember 1929.
Hún andaðist á
líknardeild Land-
spítala, Kópavogi,
25 september 2016.
Foreldrar Magn-
úsínu, eða Bíu eins
og hún var kölluð,
voru hjónin Klara
Jóhanna Ingibjörg
Nielsen, húsfreyja frá Akureyri,
f. 5.6. 1905, d. 9.2. 1992, og Sig-
urður Pétur Eiríksson, verka-
maður frá Vopnafirði, f. 16.11.
1907, d. 13.10. 1989.
Systkini hennar eru: Sólveig
Fanney, f. 2.10. 1927, maki
Gunnar Bjartmarz, Siguróli
Magni, f 10.12. 1932, maki Sig-
urlaug Jónsdóttir, Valgarður
Jóhann, f 29.7. 1934, Steinþór,
f. 25.12. 1940, d. 17.2. 1941,
Inga Sigríður, f 27.8. 1946, d.
Kim Brigit Sorning, f. 16.12.
1961, maki Guðmundur Bald-
ursson og eignuðust þau fjögur
börn: Magnús Joachim, Gunnar
Jón, d. 1.4. 2001, Valdísi Klöru
og Guðmund Karl.
Fyrri eiginmaður Magnúsínu
var Joachim B. Sorning, d. 11.9.
1974.
Magnúsína giftist aftur 19.12.
1979 Vilhjálmi Þ. Vilhjálmsyni
bifreiðastjóra, foreldrar hans
voru Vilhjálmur Jón Þórarins-
son, f 11.9. 1897, d. 22.4. 1970,
og Guðlaug Jónsdóttir, f. 17.9.
1901, d. 1.3. 1981.
Vilhjálmur á þrjú börn frá
fyrra hjónabandi, þau eru: Lára
Guðmunda, Vilhjálmur Þór,
maki hans er Elsa Kristín
Helgadóttir, og Hjördís, maki
hennar er Anton Sigurðsson.
Magnúsína ólst upp á Akur-
eyri en fluttist ung til Reykja-
víkur. Hún vann hin ýmsu störf
í gegnum tíðina svo sem við
fiskvinnslu, verslun, matreiðslu
og hin ýmsu umönnunar- og
þjónustustörf.
Útför Magnúsínu fer fram í
Kópavogskirkju í dag, 7. októ-
ber 2016, og hefst athöfnin kl.
15.
8.11. 2007, eftirlif-
andi maki Finnur
Óskarsson.
Magnúsína eign-
aðist fjórar dætur
þær eru: Anna
Fríða Ottósdóttir,
f. 25.8. 1946, d.
17.2. 2009, hún var
gift Vilhjálmi
Ingvarssyni, sem
lést 18.8. 1988, þau
áttu þrjú börn sem
eru: Ottó Valur, Valdís og Ingv-
ar.
Klara Sveinbjörnsdóttir, f.
15.7. 1951, maki Helgi Val-
geirsson og eiga þau þrjá syni:
Magnús, Valgeir Theódór og
Jóhann Steinar.
Sigríður Sveinbjörnsdóttir, f.
31.8. 1952, var gift Aðalgeiri
Olgeirssyni, d. 6.4. 2006, þau
áttu fjögur börn sem eru: Þóra
Ragnheiður, Ollý Sveinbjörg,
Hjalti Már og Elvar Hrafn.
Elsku besta amma Bía.
Það er mér ótrúlega sárt að
þurfa að kveðja þig, enda hefur
þú alltaf verið stór partur af
mínu lífi.
Ég get þó hlýjað mér við allar
minningarnar sem ég á um þig
og okkar tíma saman. Það var
undarlegt að vera í Stokkhólmi
nú í sumar þegar þú þurftir að
takast á við veikindin þín.
Krabbameinið kom skyndi-
lega einn hlýjan sumardag og sá
ég þá hversu mikið æðruleysi þú
hafðir. Þú hefur aldrei verið fyr-
ir það að kvarta eða láta vita ef
eitthvað angraði þig og gerðir
það ekki heldur þarna þínar síð-
ustu vikur.
Það sem var þér efst í huga
var hvort okkur hinum liði ekki
ágætlega, fengjum nóg að borða
og keyrðum ekki of þreytt í Þor-
lákshöfn.
Ég á svo margar góðar minn-
ingar um þig. Allar heimsókn-
irnar til ykkar afa í Kópavoginn
lífguðu svo sannarlega upp á til-
veru okkar systkinanna þegar
við vorum yngri. Eftir að ég
varð eldri og flutti í bæinn var
ávallt svo gott að koma til ykkar.
Þið tókuð mig undir ykkar
verndarvæng og verð ég ávallt
þakklát fyrir það. Þú varst ekki
lengur bara amma mín heldur
myndaðist þessi fallegi vinskap-
ur, mikið urðum við góðar vin-
konur. Ég hlakkaði alltaf til að
kíkja til þín því við áttum alltaf
svo dásamlegar stundir saman.
Ég gat alltaf komið og leitað til
þín.
Við veltum fyrir okkur lífinu,
vinnumálum, gátum rætt allt
milli himins og jarðar. Ég leit
mikið upp til þín, þú varst svo
hlý og góð, mikill dugnaðarfork-
ur og slakaðir aldrei á. Þú settir
alla í fyrsta sæti og var þér svo
annt um að láta öðrum líða vel.
Við eyddum ófáum mínútunum í
að ræða tísku og fannst mér það
svo gaman. Þú hafðir mikla
tískuvitund og gátum við eytt
ófáum mínútum í að ræða fal-
lega skó eða yfirhafnir hjá hvor
annarri.
Þú hefur alltaf haft mikla trú
á mér og er það mér svo dýr-
mætt.
Þú varst svo glöð að mér gekk
vel í Stokkhólmi. Allar Skype-
stundirnar sem við áttum saman
eftir að ég flutti út eru mér
ógleymanlegar. Þegar ég kom
heim í sumar og náði svo dýr-
mætum gæðastundum með þér
eru mér efst í huga. Mikið sem
ég er þakklát fyrir þær.
Það verður skrítið að geta
ekki faðmað þig í þessari Ís-
landsferð en þú verður ávallt í
mínum huga.
Ég veit að þú ert komin á
góðan stað þar sem Gunnar Jón
hefur tekið á móti þér. Núna
færðu að hvílast.
Minningin um þig lifir.
Ég elska þig, elsku besta
amma mín.
Valdís Klara.
Elsku amma Bía.
Það er með söknuði sem ég
sest niður og skrifa þessi orð.
Það er sárt að þurfa að kveðja
þig. Þú varst alltaf til staðar fyr-
ir mig, tókst mér alltaf vel og
með opnum örmum. Það eru ófá-
ar stundirnar sem við áttum
saman og hlógum saman. Ég
veit ekki hvar ég á að byrja að
telja upp allt það skemmtilega
sem við gerðum saman. Gleymi
aldrei þegar þú kenndir okkur
systkinunum að spila Svarta
Pétur og settir sót á nefbrodd-
inn okkar. Gleymi heldur aldrei
þegar við fengum hjá þér „ham
ń cheese“ samlokur, það var svo
fyndið og skemmtilegt hvernig
þú sagðir þetta. Ég gleymi held-
ur aldrei þegar þú pússaðir
vinnuskóna mína. Þeir voru hág-
lans þegar ég mætti í vinnuna
og strákarnir vissu strax að
amma Bía væri komin í heim-
sókn. Ég gleymi heldur aldrei
hvað þú gerðir gott hakk og spa-
gettí.
Þegar Darri Hrafn fæddist sá
ég strax hvað þú varst hrifin af
honum og með ykkur tókust góð
vinabönd. Það eru ófáar stund-
irnar þar sem hann talar um þig
og spyr hvort við eigum ekki að
elda „ömmu Bíu súpu“. Hann á
eftir að sakna þín jafn mikið og
ég sakna þín. Það er erfitt að
hugsa til þess að við eigum aldr-
ei eftir að fá aftur hakk og spa-
gettí hjá þér.
Amma Bía, þú varst yndisleg
manneskja og fáir sem komast
með tærnar þar sem þú varst
með hælana. Þú varst svo mikil
pæja, alltaf fín og flott. Ég veit
að þú ert á góðum stað núna og
líður vel. Við munum alltaf halda
uppi heiðri þínum og minningu.
Hvíldu í friði, elsku amma
Bía.
Þinn,
Magnús Joachim.
Elsku stjúpmóðir mín er far-
in; Bía hans pabba er farin;
elsku amma Bía er farin. Mér
þykir það mjög sárt, það meiðir
hjarta mitt og ég sakna hennar
mjög. Þessi flotta kona, sem ég
var viss um að yrði ávallt full-
frísk og minnst 100 ára gömul,
er farin frá okkur. Dauðinn er
mér afar sár og erfiður. Ég finn
mikið til með elsku pabba mín-
um að hafa Bíu sína ekki lengur
hjá sér. Ég finn mikið til með
dætrum hennar og þeirra mök-
um, börnum og barnabörnum.
Ég finn mikið til með systkinum
hennar og fjölskyldum þeirra.
Ég finn mikið til með systkinum
mínum og þeirra fjölskyldum.
Ég finn mikið til með sonum
mínum og þeirra fjölskyldum.
Ég finn mikið til með okkur
Antoni mínum.
Missir okkar, sorg og sökn-
uður er mjög mikill. Bía var
yndisleg kona á allan hátt og
einstaklega góð við pabba minn
alla tíð og við syni mína og mig
og Anton minn og fyrir það er
ég henni afar þakklát. Bía var
hraustasta og flottasta kona sem
ég hef kynnst. Það var ekki að
sjá á nokkurn hátt að hún væri á
87. aldursári, það var ekkert
gamalt við hana, aðeins hárið
var fallega silfrað ásamt nokkr-
um fallegum lífsrákum í húð
hennar. Krabbameinið tók Bíu
frá okkur á ógnarhraða, hún
fann ekkert fyrir því fyrr en
daginn sem yngsta sonardóttir
mín, hún Ellý, var skírð 22. maí
sl. Eftir það var hún greind og
áfallið var mikið fyrir alla. Hún
lá á LSH og svo á líknardeild og
við heimsóttum hana mikið og
þær stundir eru dýrmætar. Ég
man enn eins og það hefði verið í
gær, þegar pabbi fór með mig til
að kynna okkur upp á Árbæj-
arsafn í Dillonshúsið þar sem
hún sá um veitingasöluna. Ég
fékk heitt súkkulaði með rjóma,
pönnuköku og kleinu og hún
spjallaði og stjanaði við okkur.
Mér leist strax vel á þessa ró-
legu, hógværu, hlýju og glæsi-
legu konu. Og ég var ánægð fyr-
ir hönd pabba að hann hefði
kynnst hamingjunni og ástinni á
ný og fann að hún yrði góð við
hann og myndi annast hann vel.
Ég vann með henni í Dillonshúsi
sumarið 1982 og sá þá enn betur
kraftinn í henni og dugnað.
Minningar um allan góða matinn
hennar og matarboðin eru ótelj-
andi. Ég minnist þess þegar hún
og pabbi komu til Svíþjóðar að
heimsækja okkur syni mína og
föður þeirra.
Ég minnist sumarbústaða-
ferðar sem ég fór ein með þeim í
nokkra daga og þótti það mjög
krúttlegt, litla dóttir hans pabba
var 47 ára. Ég minnist allra sím-
talanna þegar ég var í NY-ríki
og svo árin í Svíþjóð, þau voru
afar kærkomin.
Bía klæddi sig ávallt fallega
og stíll hennar og fágað yfir-
bragð var alla tíð umtalað og eft-
irtektarvert.
Hún var alltaf snyrtileg, stíl-
hrein, smart, skvísa, pæja og
töffari, allt í senn með Ray Ban-
sólgleraugu og á háum hælum
þegar við átti. En um leið mjög
kvenleg og tignarleg og henni
tókst að blanda þessu öllu sam-
an á einstakan og mjög vel
heppnaðan hátt.
Hún dýrkaði Tinu Turner,
Tinu Törn eins og hún sagði allt-
af svo sætt. Góður Guð sé með
pabba mínum á þessum erfiðu
tímum og okkur öllum sem elsk-
uðum hana. Takk fyrir góð-
mennsku þína, kærleik og pláss-
ið sem þú gafst mér og sonum
mínum í hjarta þínu og bættir
glöð Antoni mínum við. Sorg
okkar allra og missir er bæði
þungbær og mikill. Bless, elsku
Bía mín, ég elska þig og ég veit
að þú elskaðir mig og okkur fjöl-
skyldu mína, það bæði fann ég
alla tíð og þú sagðir mér það í
sumar. Hvíldu í Guðs friði, þín,
Meira: mbl.is/minningar
Hjördís (Hjödda).
Elsku hjartans stjúpa mín,
Bía, nú hefur þú kvatt okkur og
við tekur lífsins ganga míns
elskulega föður að ganga veginn
með þig í hjarta.
Margar minningar koma upp í
hugann þegar ég sest niður og
fer að hugsa til þín, efst eru
fyrstu kynni ykkar pabba, því ég
vissi mjög fljótt þegar þið höfð-
uð hist því jú, pabbi bjó hjá mér
og elstu dóttur minni Lindu sem
þá var lítil tveggja ára snót. Já,
pabbi kom heim með ástarg-
lampa í augum og gat alls ekki
leynt því að eitthvað gott var að
bærast innra með honum. Svona
er ástin, hún leynir sér ekki
hvorki í framkomu né ásjónu.
Þið fóruð fljótt að búa saman í
Ljósheimum í litlu fallegu íbúð-
inni ykkar Kim, yngstu dóttur
þinnar af fjórum. Hún þá 16 að
verða 17 ára. Við Kim erum
fæddar sama ár, 1961, ég í jan-
úar og hún í desember. Við er-
um nánar þó að við hittumst
ekki á hverjum degi en virðing
og kærleikur hefur alla tíð verið
sannur á milli okkar.
Að vel hugsuðu máli hefði
hann faðir minn ekki getað feng-
ið betri og traustari eiginkonu
sér við hlið og fyrir það er ég
þakklát. Þú hugsaðir ætíð vel
um heimilið ykkar og ofdekraðir
pabba alla tíð, ég veit að hann
kunni vel að meta það þó að
hann hefði ekki mörg orð um
það, elsku Bía mín. Þegar þú
veiktist þá sagði pabbi við mig:
„Ekki átti ég von á að mér yrði
falið þetta hlutverk,“ því hann
var alveg viss um að þú, Bía
mín, myndir lifa hann. Þú varst
alla tíð hraust og kvartaðir aldr-
ei, fékkst varla kvef í nös, lipur
og spræk eins og ung ballerína
uppi á eldhúsbekk alveg undir
það síðasta að setja upp hreinar
eldhúsgardínur og fleira. Af-
burðakokkur og bakaðir bestu
pönnukökur og brúnar lagtertur
sem ég og börnin mín höfum
smakkað og við hreinlega elsk-
uðum að fá lagtertu frá þér fyrir
jólin enda bakaðir þú margar og
færðir öllu unga fólkinu sem
kunni ekki að gera eins vel og
þú, elskan.
Þú elskaðir að ferðast og þá
helst til sólarlanda. Flest árin
ykkar fóruð þið yfir jólin, sem
voru nokkuð margar ferðir.
Komuð sólbrún og sæt heim
pinklum hlaðin af gjöfum til
allra barna og barnabarna. Þú
varst einstaklega smekkleg og
lunkin að velja réttar stærðir og
fallegar gjafir sem voru ekki fá-
ar.
Ég veit að það varst þú sem
sást um þetta öll árin þó að ég
bæði þig að hætta þessu og
versla bara á sjálfa þig. Þá
brosti pabbi og sagði: „Ég er svo
gott burðardýr“ og þar við sat.
Ég er þakklát fyrir hvað
pabbi sýndi mikla hlýju og
mjúka framkomu við þig allan
tímann sem þú dvaldir á sjúk-
húsi og síðustu vikurnar á líkn-
ardeildinni í Kópavogi. Elsku
pabbi minn, þú leynir á þér þeg-
ar á reynir, getur annast og að-
stoðað ef þarf.
Ég vil skila hlýrri kveðju frá
Hildi dóttur minni og fjölskyldu
sem eru búsett á Seyðisfirði.
Hvíl í friði.
Lára, Linda, Hildur, Agnar,
Ester Rut, Eva María og
fjölskyldur.
Magnúsína
Sigurðardóttir
✝ Sighvatur Jón-asson var
fæddur á Helga-
stöðum í Reykja-
dal, S-Þing., 19.
maí 1922. Hann lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Hömrum í
Mosfellsbæ 27.
september 2016.
Foreldrar hans
voru hjónin Jónas
Friðriksson, bóndi
á Helgastöðum, f. á Kraunastöð-
um í Aðaldælahreppi, S-Þing.,
16. nóvember 1896, d. 16. febr-
úar 1983, og kona hans María
Sigfúsdóttir, f. á Bjarnastöðum í
Skútustaðahreppi, S-Þing., 17.
febrúar 1898, d. 13. apríl 1978.
Systkini Sighvats: Sigfús
Pálmi Jónasson, f. 1918, d. 2005.
Hrafnhildur Jónasdóttir, f.
1920, d. 2015. Friðrik Reynir
Jónasson, f. 1920, d. 1923. Egill
Jónasson, f. 1924, d. 2008. Frið-
rik Jónasson, f. 1925, d. 1998.
Arnhildur Jónasdóttir, f. 1929,
d. 1964. Reynir Jónasson, f.
1932. Úlfhildur Jónasdóttir, f.
1938. Kristján Elís Jónasson, f.
1940.
Sighvatur lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskólanum á
Akureyri og starfaði eftir það í
eitt ár, 1940 til 1941, hjá frænda
sínum í Kaupfélaginu á Borð-
eyri. Þaðan lá leiðin til Reykja-
víkur þar sem hann vann sem
hjúkrunarmaður á Kleppi í eitt
ár, en þá réð hann sig til Lands-
banka Íslands og starfaði þar
þangað til Seðlabanki Íslands
var stofnaður, en þá réðst hann
þangað og vann þar til starfs-
loka, lengst af sem afgreiðslu-
stjóri.
Áhugamál Sighvats alla tíð
var tónlist. Hann söng með
karlakórnum Fóstbræðrum og
seinna í mörg ár með Þjóðleik-
húskórnum og tók þá m.a. þátt í
fyrstu óperuuppfærslu Þjóðleik-
hússins, Rigoletto. Síðar á æv-
inni gerðist hann organisti,
fyrst í Lágafellskirkju og seinna
varð hann fyrsti
organisti í Seltjarn-
arneskirkju. Oft
greip hann í nikk-
una og var í nokk-
ur ár í starfi hjá
Grafarvogskirkju í
félagsstarfi aldr-
aðra þar. Þá var
hann gerður
heiðursfélagi Við-
eyingafélagsins
fyrir tónlistarstörf
í þágu félagsins.
Árið 1951 kvæntist Sighvatur
eftirlifandi eiginkonu sinni, Val-
borgu Lárusdóttur frá Brúar-
landi í Mosfellssveit. Valborg er
dóttir hjónanna Lárusar B.
Halldórssonar skólastjóra og
konu hans, Kristínar Magnús-
dóttur.
Valborg og Sighvatur eign-
uðust tvo syni, þá Lárus Sig-
hvatsson, f. 1952, kvæntur Ástu
Egilsdóttur og eiga þau einn
son ,Vilhjálm Egil og tvo son-
arsyni, þá Jóel Orra og Veigar
Lár. Halldór Sighvatsson, f.
1962, kvæntur Lilju Pálsdóttur
og eiga þau tvö börn, þau Sig-
hvat, sem er kvæntur Sunnu
Ósk Ómarsdóttur, synir þeirra
Halldór Elí og Nökkvi Freyr.
Dóttir Halldórs og Lilju er
Bryndís Lára í sambúð með
Tómasi Gunnari Tómassyni.
Dóttir Valborgar, sem ólst
upp hjá þeim hjónum, er Kristín
Kjartansdóttir Issa, f. 1947, gift
Sameh Salah Issa og eignuðust
þau fjögur börn: Samieh Vala, f.
1969, d. 2004. Hennar maki var
Izzat Dajani og dóttir þeirra er
Yasmin. Nadia, gift Soheil Galal
og eiga þau tvö börn, Omar og
Lailu. Salah S. Issa og Salma,
gift Cris Kerr.
Sighvatur var alla tíð heima-
kær og hugsaði fyrst og síðast
um sína nánustu og var óþreyt-
andi að sinna fjölskyldu sinni og
vinum alla tíð.
Útför Sighvats verður gerð
frá Áskirkju í dag, 7. október
2016, og hefst athöfnin kl. 13.
Enn fækkar í röðum kærra
vina og vandamanna. Merkur vin-
ur og bandamaður hefur nú lagt
upp í sína hinstu för eftir langa og
farsæla ævigöngu. Sighvatur
hlaut gott veganesti á merku
æskuheimili sínu sem er Helga-
staðir í Reykjadal norður. Þar óx
hann úr grasi við málvöndun og
tilfinningu fyrir hrynjandi tung-
unnar. Þar kom einnig við sögu
Friðrik afi hans sem var kunnur
hagyrðingur og víðförull vegna
ábyrgðarstöðu, hann kunni góð
skil á hugarþeli samlanda sinna.
Ungur maður leitar Sighvatur til
Reykjavíkur að freista gæfunnar.
Í ókyrru og oft öfgakenndu
mannlífi borgarinnar reynist
hann eiga góða kjalfestu og hin
góðu innri viðmið hans úr íslensku
sveitinni eru honum hollur leiðar-
vísir. Meðal góðra hæfileika Sig-
hvats er næmt tóneyra, hann lær-
ir nótnalestur og píanóleik og nær
einnig góðum tökum á dragspili,
hinar flóknari inngönguleiðir í
æðri tónlistarheim eru honum
leikur einn. Í mörg ár syngur Sig-
hvatur með hinum afbragðsgóða
karlakór Fóstbræðra en einnig
um skeið í þjóðleikhúskórnum.
Reynt er fyrir sér við ýmiss
konar störf í borginni en snemma
á ævinni er Sighvatur fenginn til
starfa í Landsbankanum og er
þar fljótlega sýndur trúnaður
vegna auðsærra mannkosta hans,
seinni hluta starfsævi sinnar er
hann í starfsliði Seðlabankans og
einnig þar í trúnaðarstöðum.
Þegar Sighvatur svo kynnist
og kvænist Valborgu, æskuvin-
konu minni og skólasystur, dóttur
Lárusar Halldórssonar skóla-
stjóra á Brúarlandi og konu hans
Kristínar Magnúsdóttur frá Mos-
felli, bætist enn við innsigli á
kunningsskap okkar og vináttu.
Samgangur var af gildum ástæð-
um oft stopull en endurfundir
ávallt í anda trygglyndis og óbil-
andi vinaþels.
Sighvatur var ekki einasta
framúrskarandi heimilisfaðir og
leiðtogi tveggja efnilegra sona,
hann var einnig verðmætur liðs-
maður í þeirri fylkingu sem vildi
lyfta menningarviðleitni í höfuð-
borginni okkar einu eða tveimur
þrepum upp á við. Það mátti einu
gilda úr hvaða átt menn nálguðust
Sighvat Jónasson, þeir fundu
ávallt heilsteyptan heiðursmann
sem ekki mátti vamm sitt vita.
Emil Als.
Sighvatur
Jónasson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar