Morgunblaðið - 07.10.2016, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Við erum að taka upp talsetningu fyrir Visa í Danmörku í beinni,“segir Jónas Björgvinsson sem rekur sitt eigið stúdíó, en hann á45 ára afmæli í dag. „Þá erum við með annað hljóðver og leik-
stjóra úti í beinu netsambandi við leikara sem eru staddir hjá okkur.“
Jónas er eigandi að fyrirtækinu Minor7 ehf. sem rekur www.hljod-
ver.is og www.fuglavarnir.is. „Við gerum alls konar verkefni í hljóð-
verinu, talsetjum auglýsingar og fyrir símkerfi og hitt og þetta eins og
að gera hljóðleiðsagnir
fyrir listasöfn. Svo er-
um við auðvitað að taka
upp músík líka. Ég ætla
að eyða afmælisdeg-
inum og helginni í að
taka upp fyrir Ívar Pál
Jónsson, en hann er að
byrja að vinna plötu og
við ætlum að taka upp
grunna. Það stendur
ekkert meira til á
afmælisdaginn en svo
erum við hjónin að fara
til Parísar í næstu viku.
Það á að vera afmæl-
isferð og ætlum við að
taka rómantíska af-
slöppun.“
Jónas er sjálfur tón-
listarmaður og hefur
gefið út eina hljóm-
plötu. „Ég er alltaf eitt-
hvað að grufla og hef samið eitt og eitt lag síðan ég gerði plötuna Haust
með Ummhmm árið 1998 og það stendur alltaf til að gera aðra plötu
þegar ég finn tíma í það. Það má segja að ég sé búinn að vera með plötu
í skúffunni í nokkur ár.“
Hvað Fuglavarnir.is varðar þá er Jónas með lausnir fyrir landbúnað,
sjávarútveg, bæjarfélög, flugvelli og fleira. „Þetta hefur gengið ágæt-
lega og við höfum náð fínum árangri í að halda mávum og öðrum fugl-
um frá og erum með aðvörunarhljóð fyrir hverja fuglategund fyrir sig
eins og gæsir og álftir fyrir landbúnaðinn. Fuglavarnir eru gargandi
snilld. Það er samt meira að gera í þessu yfir sumarið og ég starfa einn-
ig sem verktaki hjá Nýherja við tækniþjónustu sem er tengd prent-
smiðjum og fleiru.“
Eiginkona Jónasar er Guðfinna Helgadóttir, viðskipta- og alþjóða-
markaðsfræðingur, og vinnur hún hjá Arion banka. Synir þeirra eru
Óliver Rafn 7 ára og Jason Hagalín 12 ára og dóttir Jónasar frá fyrra
sambandi er Vera Kristín 22 ára.
Framleiðir bæði
hljóð og óhljóð
Jónas Björgvinsson er 45 ára í dag
Þróttarafeðgar Á N1-móti á Akureyri.
H
allgrímur Viðar Árna-
son fæddist í Nýhöfn
á Akranesi 7.10. 1936
og ólst upp á Akra-
nesi. Hann gekk í
barnaskóla Akraness og stundaði
nám í Reykholtsskóla 1950-53. Í
æsku var hann í Vesturholtum í
Þykkvabæ í mörg sumur og á Mel í
Hraunhreppi. Hann nam húsasmíði
við Iðnskóla Akraness og útskrif-
aðist með sveinspróf 1958.
Hallgrímur tók við söluskálanum
Þórsmörk af föður sínum 1958 og
rak söluskála á Akranesi í mörg ár.
Hann stofnaði Skaganesti sem hann
rak í 10 ár og framleiddi poppkorn
og seldi víða á Akranesi og nágrenni
og fékk þá viðurnefnið Halli popp.
Þá var hann kokkur á Víkingi AK
100 nokkrar vertíðir.
Hallgrímur vann að iðn sinni hjá
Gunnlaugi Jónssyni, Halldóri Jörg-
enssyni og Jóni Guðmundssyni og
fékk meistarabréf í greininni 1964.
Hann var sjálfstætt starfandi húsa-
smíðameistari og rak fyrirtækið
Húsverk ásamt tveimur öðrum.
Hann bjó í Reykjavík á árunum
1984-2004 og var hann byggingar-
eftirlitsmaður hjá Byggingareftirliti
ríkisins í Reykjavík í nokkur ár.
Hallgrímur Viðar Árnason húsasmíðameistari – 80 ára
Hjónin Hallgrímur á knattspyrnuvelli ÍA, með eiginkonu sinni, Sigurbjörgu Halldórsdóttur hjúkrunarforstjóra.
Skagakrati – í kórsöng,
badminton og brids
Hallgrímur og Helgi Dan Fyrstu tvíliðameistarar í badminton á Skaganum.
Akranes Óliver Hafsteinn fæddist 14. september 2015 kl. 9.32 á Akranesi. Hann
vó 3.890 g og var 52 cm langur. Móðir hans er Guðlaug Sif Hafsteinsdóttir.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is