Morgunblaðið - 07.10.2016, Síða 35
Hallgrímur var formaður
unglingaráðs ÍA í nokkur ár og bad-
mintonþjálfari á Akranesi í áraraðir.
Hann var Akranesmeistari í bad-
minton nokkrum sinnum, hefur tek-
ið þátt í félagsstarfi frímúrara frá
1964 og hefur verið virkur félagi í
Kvæðamannafélaginu Iðunni.
Hallgrímur hefur ávallt haft mik-
inn áhuga á söng og íþróttum. Hann
byrjaði að syngja með karlakórnum
Svönum 18 ára, hjá Geirlaugi, bróð-
ur sínum, sem stjórnaði kórnum.
Karlakórinn Svanir starfar á Akra-
nesi í dag og syngur Hallgrímur þar
enn með félögum sínum. Hann söng
með Karlakór Reykjavíkur um 10
ára skeið, Skagfirsku söngsveitinni í
Reykjavík, kirkjukór Akraness og
kirkjukór Saurbæjar- og Innra-
Hólmskirkju. Hann fór í kórferðir
innan- og utanlands, m.a. til Ísraels,
Egyptalands, Kanada, Þýskalands,
Austurríkis og Færeyja.
Hallgrímur hefur alla tíð verið
jafnaðarmaður og haft mikinn áhuga
á stjórnmálum. Hann stundaði
stangveiði um árabil, einkum í Fá-
skrúð og Haukadalsá. Þá hefur hann
verið liðtækur bridsspilari allt fram
á þennan dag.
Fjölskylda
Eiginkona Hallgríms er Sigur-
björg Halldórsdóttir, f. 20.8. 1941,
hjúkrunarforstjóri. Foreldrar henn-
ar voru Halldór Benjamín Jörgens-
son, f. 24.6. 1911, d. 25.3. 1988, húsa-
smíðameistari og útfararstjóri á
Akranesi, og Steinunn Ingimars-
dóttir, f. 19.5. 1917, d. 26.9. 1962,
húsfreyja.
Börn Hallgríms og Sigurbjargar
eru 1) Halldór Benjamín, f. 26.4.
1959, húsasmíðameistari á Akranesi
en kona hans er Guðrún Hróðmars-
dóttir og eru barnabörnin Hróðmar,
f. 1983, Sigurbjörg, f. 1987, og Hilm-
ar, f. 1999; 2) Harpa, f. 9.6. 1962,
kokkur í Guðbrandsdal í Noregi en
maður hennar er Kristinn Ólason og
eru barnabörnin Hallgrímur Viðar,
f. 1979, Hallsteinn, f. 1983, og Ásta,
f. 1989; 3) Steinunn, f. 31.1. 1967,
starfsmaður í Fjöliðjunni á Akranesi
og er sonur hennar Ingibergur, f.
2003; 4) Árni Þór, f. 10.3. 1968, bad-
mintonþjálfari hjá TBR í Reykjavík
og eru börn hans Jóhann Páll, f.
1990, María, f. 1993, Sigríður, f.
1996, og Sigurbjörg, f. 2006. Lang-
afabörnin eru 11 talsins.
Systkini Hallgríms: Einar, f.
23.12. 1921, d. 8.11. 2000, málara-
meistari á Akranesi; Sigurður, f.
24.7. 1923, d. 14.5. 1999, forstjóri í
Reykjavík; Þuríður, f. 24.3. 1925, d.
18.1. 1989, húsfreyja á Akranesi;
Geirlaugur Kristján, f. 24.8. 1926, d.
13.7. 1981, hárskerameistari á Akra-
nesi og organisti í Árbæjarsókn í
Reykjavík; Árni Þórir, f. 27.4. 1930,
d. 5.5. 2003, vélsmíðameistari í
Bandaríkjunum og í Reykjavík;
Hreinn, f. 30.8. 1931, d. 12.9. 2007,
málarameistari í Reykjavík; Rut, f.
19.1. 1939, húsfreyja og kaupmaður í
Reykjavík; Margrét Ósk, f. 6.2. 1944,
ritari í Reykjavík; Svanhvít, f. 21.6.
1947, ritari í Hafnarfirði, og Fjóla
Kristín, f. 31.3. 1956, textílhönnuður
og húsfreyja í Reykjavík.
Foreldrar Hallgríms voru Árni
Björgvin Sigurðsson, f. 23.7. 1895, d.
19.6. 1968, bakari, málari og rakari á
Akranesi og hafði meistararéttindi í
öllum þessum greinum, auk þess
kaupmaður, síðast í Reykjavík, og
Þóra Einarsdóttir, f. 20.7. 1898, d.
7.6. 1939, húsfreyja á Akranesi.
Fósturmóðir Hallgríms var Vikt-
oría Markúsdóttir frá Þykkvabæ, f.
2.8. 1912, d. 13.7. 1996, húsfreyja á
Akranesi og í Reykjavík.
Hallgrímur heldur upp á afmælið
sunnudaginn 9.10. í Feban-salnum,
Kirkjubraut 40 á Akranesi, kl. 15-18.
Afmælisbarnið afþakkar gjafir en
baukur verður á staðnum til styrkt-
ar góðu málefni. Hallgrímur vonast
til að vinir og vandamenn fagni með
honum í tilefni dagsins.
Úr frændgarði Hallgríms Viðars Árnasonar
Hallgrímur
Viðar Árnason
Þóra Jónsdóttir
húsfr. á Akranesi
Kristján Símonarson
skipstj. og hreppsn.m.
á Akranesi
Geirlaug Kristjánsdóttir
húsfr. á Akranesi
Einar Ásgeirsson Möller
b. á Akranesi
Þóra Einarsdóttir
húsfr. á Akranesi
Petrína
Regína Rist
húsfr. á
Geldingaá
Ásgeir K. Möller
silfursm. og b. á
Geldingaá og Læk
Þuríður Árnadóttir
húsfr. á Akranesi
Pálína Sigurðardóttir
húsfr. á Akranesi
Petrína
Regína Rist
Einarsdóttir
Jóhann Pétur
Jakob Rist
b. í Botni í
Eyjafirði
Elín Sigurðardóttir
húsfr. í Rvík
Geirlaugur
Árnason
rakari á
Akranesi
og í Rvík
Hörður
Geirlaugsson
fyrrv. starfsm.
Sements-
verksmiðju
ríkisins
Guðni Már
Harðarson
prestur í
Linda-
kirkju
Matthías Hallgrímsson
knattspyrnumaður
Sigþóra
Karlsdóttir
húsfr. á
Akranesi
Páll
Friðriksson
Lárus J. Rist
sund- og
fimleika-
kennari á
Akureyri
Guðbjartur Þorleifsson
gullsmiður og listmálari
Karl Þórðar
knattspyrnu-
maður á
Akranesi
Stefán
Jóhann
Pálsson
Sigurjón Rist
vatnamælingam.
Greta Salóme
Stefánsdóttir
tónlistarkona
Rannveig Rist
forstj.
Kári
Geirlaugsson
forstjóri í
Garðabæ
Rannveig
og
Erla Björg
Káradætur
söngkonur
Ragnheiður Ísleifsdóttir
húsfr. á Innra-Hólmi
Árni Þorvaldsson
útvegsb. á Innra-Hólmi
Þuríður Árnadóttir
húsfr. á Eystri-Rein
Sigurður Jónsson
trésmiður á Eystri-Rein
í Innri-Akraneshreppi
Árni Björgvin Sigurðsson
bakari, málari og rakari á
Akranesi
Valgerður Eyjólfsdóttir
húsfr. á Eystri-Rein
Jón Jónsson
b. á Eystri-Rein
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Ásgeir Þorsteinsson fæddist7.10. 1898 og ólst þar upp.Hann var sonur Þorsteins
Jónssonar, járnsmiðs í Reykjavík,
og k.h., Guðrúnar Bjarnadóttur hús-
freyju.
Föðurforeldar Ásgeirs voru Jón
Jónsson, sjómaður í Reykjavík, og
k.h., Guðrún Guðmundsdóttir hús-
freyja, en móðurforeldrar hans voru
Bjarni Kolbeinsson, útvegsbóndi í
Bakkakoti á Seltjarnarnesi, og
Margrét Illugadóttir húsfreyja.
Eiginkona Ásgeirs var Elín Jó-
hanna Guðrún Hafstein, dóttir
Hannesar Hafstein, skálds og ráð-
herrra, og k.h., Ragnheiðar Stef-
ánsdóttur Thordersen húsfreyju.
Ásgeir og Elín Jóhanna Guðrún
eignuðust fjögur börn, Sigríði lög-
mann, Þorstein sem lést í barnæsku,
Ragnheiði Guðrúnu sjúkraliða og
Þorstein Ásgeir tækjavörð.
Ásgeir lauk stúdentsprófi frá MR
1917 og prófi í efnaverkfræði frá
DTH í Kaupmannahöfn 1924.
Ásgeir var fulltrúi hjá Samtrygg-
ingu íslenskra botnvörpunga 1924-
25 og forstjóri fyrirtækisins 1925-69.
Hann var mikill frumkvöðull í nú-
tíma lýsisvinnslu, vann að stofnun
Lýsissamlags íslenskra botnvör-
punga 1929 og var síðan fram-
kvæmdastjóri þess fyrirtækis til
1969. Hann vann að endurbótum á
lýsisvinnslu, m.a. með nýrri gerð
bræðslukers, lýsisskilvindu og tæt-
ara 1930-35, setti upp kaldhreins-
unarstöð Lýsissamlagsins 1933,
herslustöð 1948 og vítamínvinnslu
árið 1954. Þá fékk hann einkaleyfi á
aðferð til að vinna lýsi úr lifur með
lútarverkun 1940.
Ásgeir var fulltrúi vinnuveitenda í
slysatryggingu ríkisins 1927-69, sat í
Rannsóknarráði ríkisins 1939-65, sat
í stjórn Stríðstrygginga íslenskra
skipshafna sem síðar urðu Íslenskar
endurtryggingar, 1939-69 og var
ræðismaður Tékkóslóvakíu á ár-
unum 1929-45.
Ásgeir var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu.
Ásgeir lést 1.1. 1971.
Merkir Íslendingar
Ásgeir
Þorsteinsson
90 ára
Anna Jensína Olsen
Ásta Kristín Þorleifsdóttir
Guðrún Guðlaugsdóttir
85 ára
Anna Ólína Jóhannesdóttir
Gunnar Sveinbjörn Jónsson
Jóna S. Kristjánsdóttir
Rúdólf Pálsson
Soffía H. Friðriksdóttir
Þórdís Halldórsdóttir
80 ára
Guðlaug D. Jónsdóttir
Gunnlaug H. Kristjánsdóttir
Sjöfn Friðriksdóttir
Sonja Diego
75 ára
Gísli Magnússon
Hanný Inga Karlsdóttir
Hrönn Hjaltadóttir
Jóhann Örn Guðmundsson
Kristinn Egilsson
70 ára
Bjarnfríður Gunnarsdóttir
Helgi Helgason
Hildur Rúna Hauksdóttir
Hólmfríður Steinþórsdóttir
Ólafur Frederiksen
Sigurður Ólafsson
60 ára
Albina Lucun
Áslaug Jóhannsdóttir
Benedikt Benediktsson
Björg Óskarsdóttir
Brynjar Guðmundsson
Elísabet Ingvarsdóttir
Guðfinna Gústavsdóttir
Guðrún Ásta Kristjánsdóttir
Hannes Kristinsson
Ingólfur K. Þorsteinsson
Jóhann Ríkharðsson
Jóhann Vilhjálmur Ólason
Jóna Ólafía Sigurvinsdóttir
Ragnhildur Gísladóttir
Róbert Þór Guðbjörnsson
Rúnar Þór Bjarnason
Sigrún Jóna Héðinsdóttir
50 ára
Andrea Sigurðardóttir
Baldvin Þór Baldvinsson
Björg Kristín Gísladóttir
Gísli Már Vilhjálmsson
Guðmundur S. Ólafsson
Guðrún Á. Ásmundsdóttir
Hjördís Björk Magnúsdóttir
Hreiðar Hreiðarsson
Ólína Þóra Friðriksdóttir
Ómar Guðmundsson
Stefano Caputi
40 ára
Aldís Stefánsdóttir
Árni Martin Guðlaugsson
Berglind Guðmundsdóttir
Ellen Dóra Guðbjargardóttir
Eydís Bjarnadóttir
Hera Elfarsdóttir
Íris Tosti
Kári Geirsson
Kolbrún Jóhannsdóttir
Sigríður H. Magnúsdóttir
Vífill Prunner
30 ára
Arnar Steinn Ólafsson
Aron Þór Hjartarson
Atli Rútur Þorsteinsson
Davíð Örn Hallgrímsson
Elísa Einarsdóttir
Guðbrandur Jóhannesson
Gunnar Már Elíasson
Gunnar Nielsen
Hallur Ingi Hallsson
Ian Phillip McDonald
Ingibjörg Karlsdóttir
Ingunn Sif Höskuldsdóttir
Stefanía B. Ólafsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Theódór ólst upp í
Kópavogi og á Siglufirði,
býr í Reykjavík, lauk próf-
um í matreiðslu frá MK og
er yfirkokkur á Burro sem
opnar eftir tvær vikur í
Veltusundi í Reykjavík.
Foreldrar: Árni Frey-
steinsson, f. 1966, fram-
kvæmdastjóri eigin fyrir-
tækis og verktaki, og
Hrafnhildur Theodórs-
dóttir, f. 1969, fram-
kvæmdastjóri Félags
íslenskra leikara.
Theódór
Árnason
30 ára Jóna Sigríður ólst
upp í Hafnarfirði, býr þar
og rekur snyrtistofuna
Carita Snyrtingu.
Maki: Ragnar Böðvars-
son, f. 1986, starfsmaður
hjá Trefjum.
Börn: Böðvar Snær
Ragnarsson, f. 2007, og
Aðalheiður Viktoría Ragn-
arsdóttir, f. 2011.
Foreldrar: Aðalheiður
Birgisdóttir, f. 1959, og
Angantýr Agnarsson, f.
1957.
Jóna Sigríður
Angantýsdóttir
30 ára Jenný ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
BSc-prófi í viðskiptafræði
og starfar hjá Lífeyrissjóði
verslunarmanna.
Maki: Hrafn Davíðsson, f.
1984, verkfræðingur hjá
Össuri.
Synir: Hinrik Aron, f.
2010, og Elías Davíð, f.
2014.
Foreldrar: María Hlín Sig-
urðardóttir, f. 1964, og
Jóhann Eyfjörð Hreiðars-
son, f. 1954.
Jenný Ýr
Jóhannsdóttir