Morgunblaðið - 07.10.2016, Side 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú nýtur þess að ferðast. Þú færð
hugmynd. Ekki spá í hvort hún sé rétt eða
ekki – ef hún bætir líf þitt skaltu halda þínu
striki, ef ekki losaðu þig þá við hana.
20. apríl - 20. maí
Naut Það gengur náttúrlega ekki að ræða
ekki málin við þá sem þú þarft að eiga sam-
starf við. Eitthvað sem einhver segir mun
hugsanlega minna þig á mikilvægi lífsins.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nýttu þær auðlindir sem þú hefur
aðgang að til að bæta umhverfi þitt, bæði í
vinnunni og á heimilinu. Reyndu að fá sem
mest út úr umskiptunum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú átt það alltaf á hættu að vera mis-
skilinn, nema þú talir tæpitungulaust þannig
að allir skilji. Leggðu þig fram við að sýna
dýpt tilfinninga þinna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert friðsæll og í góðu jafnvægi og
hefur því góð áhrif á alla í kringum þig. Svarið
er: þú kemur hreint fram. Samræður um
verkaskiptingu og skyldur eru líklegar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er erfitt að standa undir þeirri
ábyrgð sem fylgir því að vera maður. Sein-
asta skrefið er að gefa eitthvað til að skapa
rými fyrir það nýja.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert til í að leggja mikið á þig til þess
að ná settu marki núna, hvort sem er heima
fyrir eða í vinnunni. Sýndu væntumþykja á
nýja vegu og hagnastu á nýjan hátt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Viðskiptasamningar og allt sem
lýtur að kaupum og sölu ætti að ganga vel í
dag. Einbeittu þér að því að gera það sem þú
gerir best.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það getur hjálpað upp á fjárhag-
inn að sleppa einhverjum útgjöldum. Gerðu
þér dagamun af þessu tilefni en mundu að
hóf er best á hverjum hlut.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er mögulegt að snúa göllum
þínum upp í kosti. Slíkur eintrjáningsháttur
kallar bara yfir þig vandræði.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að setja saman trausta
aðgerðaáætlun. En það er ekki um annað að
ræða en bretta upp ermarnar og taka svo
hvern hlut fyrir sig og klára hann.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú mátt finna til svolítið meira sjálfs-
trausts því það skemmir fyrir þér hversu reik-
ull og hikandi þú ert. Gerðu þér grein fyrir
því, hvað það er sem þú vilt og þá kemur hitt
af sjálfu sér.
Eins og komið hefur fram í frétt-um varð að fresta fundi borg-
arstjóra með Akureyringum um
Reykjavíkurflugvöll vegna veðurs.
Ólafur Stefánsson segir á Leirnum,
að „nú kom vel á vondan að Dagur
gat ekki notað Vatnsmýrarvöllinn
til að komast norður.
Örlög hér sköpuðu skorður,
það var skýfall og allskonar staut,
og lífshætta’ að leggja’í hann norður,
með lokaða neyðarbraut.“
Magnús Stefánsson á Fáskrúðs-
firði setti nú í vikunni á Leirinn
tvær vísur, sem hann gerði í sumar,
þegar fjölmiðlafárið var sem mest í
kringum nýja forsetann. – „Mikið
var gert úr því að nú flyttust börn
til Bessastaða og koma þyrfti upp
fótboltamörkum og leiktækjum á
túninu:
Aftur hlaupa börn á Bessastöðum,
bolta elta þau á fótum hröðum,
fara um túnin græn með gullin sín
og Guðni kaupir þeim svo trampólín.
Ég heyrði svo morgun einn í út-
varpinu okkar, allra landsmanna,
að forsetinn væri á leið austur að
Sólheimum og sólin biði þar eftir
honum.
Akstur þessa löngu leið
lífgar sannan heiðursmann,
á Sólheimum því sólin beið
að sjá þar nýja forsetann.“
Haustrigningarnar helltust yfir
okkur í gær. Pétur Stefánsson yrk-
ir á Boðnarmiði:
Úti er haust að efla spjöll,
ávallt störfum hlaðið.
Nú eru blómin næstum öll
niður rignd í svaðið.
Hvína vindar hvellt og snjallt,
hvessir á feðragrundu.
Kominn er fölvi yfir allt
eins og á dauðastundu.
Gunnar J. Straumland er á svip-
uðum nótum:
Landsynningur leysti vind
og lagði tré að velli.
Haustsins lægðahryggðarmynd
hófst í gær með hvelli.
Og loks segir Ingólfur Ómar að
það sé búið að blása allvel og rigna
hér syðra enda er vart svefnfriður
fyrir veðri.
Vakti ólund vissa sú,
varð að yrkja stöku.
Haustlægðirnar hafa nú
haldið fyrir mér vöku.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Börn á Bessastöðum og
haustrigningar
Í klípu
„ERUM VIÐ ÞÁ SAMMÁLA UM AÐ
BORGA HVERT Í SÍNU LAGI?“
Hópmeðferð
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞAÐ ER EINHVER GAUR AÐ
HRINGJA ÚR DÝRAGARÐINUM
HINUM MEGIN VIÐ GÖTUNA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að búa til sitt eigið
sólskin.
ÉG ER Í ÆÐISLEGU
SKAPI!
EN ÉG TEK SAMT STARF
MITT MJÖG ALVARLEGA.SPARK!
ÉG VIL EKKI
MONTA
MIG...
...EN ÉG
LIFI
LÍFINU TIL
FULLS!
ÉG VIL EKKI
MONTA MIG...
...EN ÞAÐ
ER ÉG SEM
FYLLI
ÞAÐ!
Íþróttalífið á Íslandi er svo fjölbreyttað í raun er aldrei hlé. Þegar einni
keppni lýkur tekur önnur við.
x x x
Í liðinni viku lauk knattspyrnuvertíðsumarsins. Stjarnan er Íslands-
meistari kvenna og FH Íslandsmeist-
ari karla. Verðskuldaðir meistarar og
Víkverji óskar þeim innilega til ham-
ingju.
x x x
Fyrir utan Íslandsmeistarana erWillum Þór Þórsson, þjálfari KR,
helsti sigurvegari sumarsins og þjálf-
ari ársins. Þar eru Víkverji og
fotbolti.net sammála.
x x x
Willum tók við KR-liðinu í von-lausri stöðu skömmu eftir sum-
arsólstöður. Ekkert nema fall blasti
þá við stórveldinu en Willum fékk
menn til þess að líta björtum augum
fram veginn, tók eitt skref í einu og
endaði með liðið í Evrópusæti. Það
munar um minna en 30 milljónir
króna í rekstri liðs í efstu deild.
x x x
Aðstaða elsta knattspyrnufélagslandsins er ekki boðleg en for-
manni umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar er slétt sama.
Hann segir í viðtali við Vesturbæjar-
blaðið að þyrlað hafi verið upp ryki
um að á lóð við Keilugranda ætti að
koma upp KR-svæði. Orðrétt segir í
blaðinu: „Það sé furðulegur málflutn-
ingur því forsvarsmenn KR hafi
margoft lýst því yfir að þeir hafi eng-
an áhuga á þessu svæði en vilji þess í
stað leggja frekari áherslu á frekari
uppbyggingu KR-svæðisins.“
x x x
KR-ingar og aðrir, sem láta sigskipulagsmál varða, vita að
borgarfulltrúinn fer vísvitandi með
rangt mál. Vissulega hafa stjórnendur
KR lýst yfir vilja til þess að breyta og
byggja á „frímerkinu“ við Frostaskjól
en í áratugi sýndu þeir áhuga á Keilu-
grandalóðinni án árangurs, eins og
fram kemur um málið á KR-vefnum.
Þó að fáir sjái Vesturbæjarblaðið
réttlætir það ekki ósannindi stjórn-
málamannsins. Trúverðugleikinn hef-
ur fokið fyrir minna. víkverji@mbl.is
Víkverji
Því að þín vegna býður hann út engl-
um sínum til þess að gæta þín á öllum
vegum þínum. (Sálm. 91:11)