Morgunblaðið - 07.10.2016, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Í kvöld rætist stór draumur félag-
anna Hannesar og Smára þegar
þeir stíga á svið í Borgarleikhús-
inu með sína eigin sýningu. Þeir
halda reyndar að stóra sviðið sé
þeirra, en verða að láta sér nægja
litla sviðið. Sviðsmyndin er hins
vegar gerð fyrir stóra sviðið og á
sýningunni munu þeir meðal ann-
ars koma fram undir merkjum
Úlfanna, hljómsveitar sem þeir
mynduðu. Áhorfendur mega því
búast við miklu sjónarspili með
leiklist, ljóðum, sönglist og jafnvel
bardagalist.
Saga Hannesar og Smára hefst
um miðjan 10. áratuginn, en þeir
komu fyrst fram á sjónarsviðið
fyrir alþjóð í þáttunum Dagsljós
sem sýndir voru á RÚV. Skaparar
þeirra eru leikkonurnar, stór-
vinkonurnar og eiginlega syst-
urnar Halldóra Geirharðsdóttir og
Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
„Við höfum verið að leika þá frá
1995, en þá hétu þeir Börkur og
Smári, svo breyttust þeir og urðu
hljómsveitatöffarar. Þá gátum við
farið að troða hljóðfærunum okkar
inn í þetta,“ segir Halldóra. „Við
vorum búnar að vera að leika
karla í Dagsljósi sem voru aðrir,
svo fórum við á námskeið hjá
Pörupiltum hjá Maríu Pálsdóttur
og þá urðu Hannes og Smári til,“
segir Ólafía.
Þetta eru hins vegar ekki fyrstu
skref Hannesar og Smára á leik-
sviði þar sem félagarnir léku vorið
2011 í Beðið eftir Godot sem
Kvenfélagið Garpur setti upp í
samstarfi við Borgarleikhúsið.
Hannes og Smári, Ólafía og
Halldóra eða Lolla og Dóra?
Í fyrra voru Halldóra og Ólafía
fengnar til að gera stutta útvarps-
sketsa á Rás 2 og þar komu Hann-
es og Smári gjarnan við sögu.
Þess á milli hafa þeir verið dugleg-
ir að skemmta á árshátíðum og við
ýmis tækifæri. „Við erum búnar að
malla með þá mjög lengi og erum
til dæmis búnar að skrifa kvik-
myndahandrit,“ segir Halldóra.
Hannesi og Smára er gjarnan
lýst sem öðru sjálfi þeirra Ólafíu
og Halldóru, en þær eru ekkert
endilega tilbúnar til að sætta sig
við það. „Ég vil bara alls ekki við-
urkenna það. Sem leikari getur
maður skipt um heila og hug og
það er það sem við erum að gera.
Ég myndi ekki segja að Hannes
væri líkur mér,“ segir Ólafía og
lítur á Halldóru: „Dóra mín, segðu
það.“ „Nei, hann er ekkert líkur
henni,“ svarar hún um hæl.
Hannes og Smári eða Ólafía og
Halldóra? Auðvitað er bara best
að kalla þær Lollu og Dóru, en
þannig þekkjast þær best, og
verður það gert hér eftir. „Og
Smári er ekkert líkur Dóru. Ég
myndi segja að í rauninni væru
þetta andstæður okkar,“ segir
Lolla. „En við þekkjum þá út og
inn og vitum hvernig þeir bregðast
við hlutum. Þeir búa í okkur, en
það er heilmikil vinna á bak við
það að fá öryggi með það,“ segir
Dóra.
Í sýningunni verður skyggnst
inn í líf og baksögu Hannesar og
Smára. „Við erum komnar með
þeirra bakland alveg inn í okkur.
Hvaðan þeir koma, hvernig þeir
ólust upp og samskipti þeirra eru
orðin klár á milli þeirra,“ segir
Lolla. „Þetta er ekki eitthvað sem
þú myndir rigga upp í einu æf-
ingaferli. Það liggur margra ára
vinna í því að þróa þá, þroska og
þekkja,“ segir Dóra.
Blaðamanni leikur þá forvitni á
því hvaðan þessi löngun kemur, að
bregða sér í líki karlmanns? „Hún
sprettur hjá Lollu, alveg löngu
fyrir Dagsljós,“ segir Dóra.
Löngunin kviknaði í Skaupinu
„Ég hugsa að löngunin hafi
komið eftir að ég lék í áramóta-
skaupi hjá Guðnýju Halldórs og
þar vorum við nokkrar konur að
leika karlmenn, þar á meðal Edda
Björgvins, og ég man bara að ég
hló allan tökutímann því mér
fannst Edda svo fyndin, bara að
horfa á hana fór alveg með mig,“
segir Lolla. „Það er eitthvað við að
vera frjáls frá þessari hlutgerv-
ingu sem konan er, að vera frjáls
frá kvenlíkamanum. Þetta hljómar
mjög dramatískt en það er það
ekki,“ segir Dóra, og bætir við:
„Það er einhver rosaleg frels-
istilfinning að vera karlmaður. Það
er svolítið leiðinlegt að segja það
en ég upplifi það mjög sterkt.“
Norðlenskt samstarf
Í tengslum við sýninguna gáfu
Hannes og Smári út splunkunýjan
geisladisk sem ber nafnið Kýldu
mig kaldan. Tónlist mun því leika
stórt hlutverk í sýningunni.
Trommuleikari kemur einnig við
sögu, en það er hinn 12 ára gamli
Kolbeinn Orfeus Eiríksson sem
bregður sér í hlutverk hans. Elma
Stefanía Ágústsdóttir fer einnig
með hlutverk í sýningunni. „Hún
leikur Sirrý sem er að vinna í
framhúsi leikhússins og aðstoðar
þá í sýningunni,“ segir Lolla.
Sýningin er unnin í samstarfi
við Jón Pál Eyjólfsson, sem er
meðhöfundur og leikstjóri. „Hann
sá Hannes og Smára á sýningu á
Rósenberg, varð alveg heillaður og
sagði að allir órar karlmannsins
hefðu verið orðaðir upphátt,“ segir
Dóra. „Hugmyndin að þessari sýn-
ingu kemur upp úr Rósenberg-
sýningunni sem var spunasýning.
En hérna er þetta allt ákveðið,
núna erum við með tilbúið leikrit
sem var bæði unnið við borð og
upp úr spunum,“ segir Lolla.
„Okkur er dauðans alvara“
Sýningin er sett upp sem hár-
beittur gamanleikur, en greina má
alvarlegan undirtón þegar kafað er
í bakgrunn þeirra Hannesar og
Smára, sem og þegar spurningum
um hlutverk kynjanna er velt upp.
„Þetta er ekki farsi, þetta er gam-
anleikur, en okkur er dauðans al-
vara. Við erum alveg svolítið gróf-
ir og höfum leyfi til að segja hluti
sem við myndum aldrei segja sem
konur, og karlmenn hefðu heldur
ekki leyfi til að segja heldur. Við
höfum meira leyfi af því að við er-
um konur að leika karlmenn,“ seg-
ir Dóra.
Hannes og Smári láta sér ekki
nægja að stíga á svið í Reykjavík,
þeir ætla að leggja land undir fót
og sýna tvær helgar á Akureyri í
nóvember. „Við vildum fá Jón Pál
sem leikstjóra og þá varð þetta
díllinn,“ segir Lolla, en Jón Páll er
leikhússtjóri hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar. „Hannes og Smári eru
mjög spenntir, en líkt og þeir
halda að þeir séu að fara að leika á
stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu
þá halda þeir að þeir verði í Hofi,
en það er bara smá misskilningur
eins og með svo margt hjá þeim,“
segir Dóra, en sýnt verður í Sam-
komuhúsinu.
Frelsistilfinning að vera karl
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir stíga á svið sem Hannes og Smári Ekki
þeirra innra sjálf Allir órar karlmannsins sagðir upphátt Sýningar í Reykjavík og á Akureyri
Morgunblaðið/Golli
Dúett Tónlistarmennirnir og skemmtikraftarnir Hannes og Smári eru sköpunarverk Ólafíu Hrannar Jónsdóttur og
Halldóru Geirharðsdóttur. Félagarnir stíga á svið í Borgarleikhúsinu í kvöld og lofa eldfjörugri kvöldstund.
Hönnunarfyrirtækið As We Grow í
eigu Guðrúnar Rögnu Sigurjóns-
dóttur, Maríu Th. Ólafsdóttur og
Grétu Hlöðversdóttur hlaut í gær
Hönnunarverðlaun Íslands þegar
þau voru afhent í þriðja sinn.
Í umsögn dómnefndar um As We
Grow segir: „Með vörulínunni tvinna
þær [eigendurnir] saman fag-
urfræði, hefðum og nútíma í ending-
argóðan fatnað sem bæði vex með
hverju barni og endist á milli kyn-
slóða. As We Grow byggir á ábyrg-
um umhverfissjónarmiðum og af-
stöðu gagnvart líftíma og endingu
framleiðsluvöru á tímum ofgnóttar.
Tímalaus einfaldleiki hönnunar og
einstök gæði vöru hafa ásamt sam-
félagslegri ábyrgð og metnaðarfullri
stefnu í umhverfismálum skapað
fyrirtækinu sérstöðu heima og heim-
an“.
Geysir fékk viðurkenningu fyrir
bestu fjárfestingu í hönnun sem
veitt var í annað sinn. Í umsögn
dómnefndar um Geysi segir: „Geysir
hefur fengið einhverja færustu
hönnuði landsins til starfa á öllum
vígstöðvum, hvort sem við á um
vörumerki, ímyndarsköpun, hönnun
verslana, grafíska hönnun eða fata-
hönnun. Þannig hefur fyrirtækið
skilgreint mikilvægi hönnunar í öllu
þróunarferli og skapað ímynd og
upplifun tengda fyrirtækinu með
framúrskarandi hætti. Með því að
setja þátt hönnunar í öndvegi hefur
Geysir á skömmum tíma náð ein-
stökum árangri og er orðið eitt
þekktasta vörumerki landsins.“
Morgunblaðið/Ófeigur
Hönnunarverðlaun Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir, Ragnheiður Elín Árna-
dóttir, María Th. Ólafsdóttir og Gréta Hlöðversdóttir við afhendinguna.
As We Grow vann
VE
R
T
Bíókvöld?
Þetta verður veisla