Morgunblaðið - 07.10.2016, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Gerðarsafni var í gær afhent verk
eftir Gerði Helgadóttur myndhöggv-
ara frá Elínu Pálmadóttur, rithöf-
undi og fyrrverandi blaðamanni á
Morgunblaðinu. Elín og Gerður voru
miklar vinkonur og bjuggu um tíma
saman í París og hefur gjöfin mikla
þýðingu fyrir safnið. „Þetta er verk
sem Gerður gefur Elínu, rétt áður
en hún lést árið 1974, aðeins 47 ára
gömul,“ segir Kristín Dagmar Jó-
hannesdóttir, listrænn stjórnandi
Gerðarsafns.
Safnið var reist í minningu Gerðar
árið 1994, en Gerður tók fyrst
kvenna forystu í höggmyndalist og
var brautryðjandi í þrívíðri ab-
straktlist og glerlist hérlendis. Í
safneign Gerðarsafns eru fjórtán
hundruð verk eftir Gerði. Elín hefur
verið einn dyggasti stuðningsmaður
listamannsins og ritaði um hana ævi-
sögu sem kom út árið 1985. Elín hef-
ur áður gefið Gerðarsafni listaverka-
gjafir eftir Gerði. „Það eru ekki bara
þessar gjafir sem Elín hefur gefið
safninu sem við erum þakklát fyrir,
heldur líka allt sem Elín hefur skrif-
að um Gerði og haldið starfi hennar
á lofti,“ segir Kristín. Verkið sem af-
hent var í gær er frá árinu 1949 en
þá um haustið flutti Gerður til Par-
ísar. Verkið er án titils en er frá
þeim tíma þegar verk hennar tóku
miklum breytingum þegar Gerður
vék frá þeim nýklassísku aðferðum
sem hún hafði kynnst á námsárum
sínum á Ítalíu. Verkið verður til sýn-
is í rannsóknar- og fræðslurými sem
nefnist Safneignin, en þar er gestum
gefinn kostur á að líta á bak við
tjöldin og kynnast því sem að öllu
jöfnu tilheyrir innra starfi safns.
„Mikil þýðing fyrir safnið“
Elín Pálmadóttir, rithöfundur og fyrrum blaðamaður, af-
henti Gerðarsafni verk frá Parísarárum Gerðar Helgadóttur
Morgunblaðið/Ófeigur
Gjöf Elín Pálmadóttir, fyrrverandi blaðamaður Morgunblaðsins, afhenti
Gerðarsafni verk eftir Gerði Helgadóttur. Þær voru perluvinkonur.
Yoko Ono afhendir Friðarverðlaun-
in LennonOno í Hörpu 9. október
en þau voru fyrst afhent 2002. Að
þessu sinni eru verðlaunahafarnir
Ai Weiwei, kínverskur lista-
maður og aðgerðasinni, f.
1957 í Peking; Anish
Kapoor, bresk-indverskur
listamaður, f. 1954 í
Bombay; Katalin Ladik
ungverskt tónskáld,
gjörninga-
listamaður og leikari, f. 1942 í
Novi Sad í Serbíu, og Ólafur Elías-
son listamaður, f. 1967 í Kaup-
mannahöfn.
Að kvöldi 9. október kl. 20
verður Friðarsúlan í Viðey tendruð
í 10. skipti með friðsælli athöfn á
fæðingardegi Johns Lennons, en
Friðarsúlan mun lýsa til 8. desem-
ber sem er dánardagur Lennons.
Boðið er uppá fríar ferju- og
strætóferðir í kringum athöfnina.
Friðarsúlan kveikt í 10. sinn
FRIÐARVERÐLAUN LENNONONO Í HÖRPU 9. OKTÓBER
Tvær sýningar verða opnaðar í Lista-
safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, í
kvöld milli kl. 18 og 20. Um er að
ræða Yoko Ono: Ein saga enn… og
Erró: Stríð og friður, en báðar sýn-
ingar tengjast friðarþema sem nú er
ráðandi í safninu og víðar í borginni.
„Verkin á sýningu Yoko Ono fjalla
um hvað það er að vera manneskja og
þau áhrif sem við getum, hvert og
eitt, haft á frið í heiminum – frið milli
þjóða og frið milli manna. Listakonan
býður áhorfendum að taka þátt í
sköpun verkanna bæði innan safnsins
og utan. Þátttökuferlið hófst þegar í
aðdraganda sýningarinnar. Meðal
annars voru konur beðnar um að
senda inn persónulegar sögur af of-
beldi og fólk sem hefur varðveitt brot
úr vasa sem Yoko Ono braut á Kjar-
valsstöðum árið 1991 var beðið um að
koma saman með brotin,“ segir í upp-
lýsingum frá safninu, en þar kemur
fram að Yoko Ono verður viðstödd
opnun sýningarinnar. Sýningarstjóri
er Gunnar Kvaran og verður hann
með sýningarstjóraspjall sunnudag-
inn 9. október kl. 13.
„Stríð og pólitík hafa verið við-
fangsefni Errós allan hans feril.
Hann rýnir umhverfið og fjallar með
gagnrýnum hætti um atburði líðandi
stundar með því að flétta saman
skáldskap og raunveruleika í verk-
um sínum. Stundum véfengir
skáldskapurinn þannig hinn sögu-
lega veruleika og hefur frásögnina
upp á hærra plan, fjarlægara og
óhlutbundnara. Málverk Errós
fjalla um samtímann, en
þó öllu fremur um þær
myndir sem eru alltumlykjandi í dag-
legu lífi okkar.“ Sýningarstjóri er
Danielle Kvaran.
Þrjú málþing um helgina
Sem fyrr segir er fjöldi viðburða
sem tengjast friði í borginni í októ-
ber. Í dag hefst starfsemi Höfða Frið-
arseturs Reykjavíkurborgar (HFR)
og Háskóla Íslands (HÍ) með opnu
málþingi í Hátíðarsal HÍ kl. 13-18.
Opnunarávarp flytur hr. Guðni Th.
Jóhannesson, forseti Íslands, en aðal-
fyrirlesarar eru Steve Killelea, stofn-
andi og stjórnarformaður Institute
for Economics and Peace, og Annika
Bergman Rosamond, dósent í stjórn-
málafræði við Háskólann í Lundi.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík (RIFF) stendur fyrir pall-
borðsumræðum á opnunarmálþingi
Höfða Friðarseturs í Hátíðarsal HÍ í
dag kl. 13. Meðal framsögumanna eru
Darren Aronofsky og Obaidah Zyto-
on.
Á morgun, laugardag, munu utan-
ríkisráðuneytið, HFR og HÍ standa
fyrir opnu málþingi í Hátíðarsal HÍ í
tilefni af því að 30 ár eru liðin frá leið-
togafundi R. Reagans og M. Gorbat-
sjovs í Höfða. Aðalræðumaður verður
frú Vigdís Finnbogadóttir en auk
hennar flytja erindi Albert Jónsson,
Silja Bára Ómarsdóttir, Lilja Alfreðs-
dóttir utanríkisráðherra, Dagur B.
Eggertsson, borgarstjóri og Davíð
Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins.
Lokaávarp ráðstefnunnar verður
flutt af Ban Ki-moon, aðalfram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ein saga enn Fólk sem hefur varð-
veitt brot úr vasa sem Yoko Ono
braut árið 1991 var beðið um að
koma saman með brotin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stríð og friður Málverk á sýningu Errós í Listasafni Reykjavíkur.
„Frið milli manna“
Sýningar Yoko Ono og Errós opnaðar í Hafnarhúsi í
kvöld Fjöldi viðburða með friðarþema um helgina
Ai Weiwei
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Fös 7/10 kl. 19:30 12.sýn Fim 20/10 kl. 19:30 16.sýn Fim 3/11 kl. 19:30 20.sýn
Lau 15/10 kl. 19:30 13.sýn Lau 22/10 kl. 19:30 19.sýn Lau 5/11 kl. 19:30 21.sýn
Sun 16/10 kl. 19:30 14.sýn Mið 26/10 kl. 19:30 18.sýn Fös 11/11 kl. 19:30 22.sýn
Mið 19/10 kl. 19:30 15.sýn Sun 30/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 12/11 kl. 19:30 23.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fös 7/10 kl. 19:30 8.sýn Fim 20/10 kl. 19:30 14.sýn Sun 6/11 kl. 19:30 20.sýn
Lau 8/10 kl. 19:30 9.sýn Lau 22/10 kl. 19:30 15.sýn Fim 10/11 kl. 19:30 21.sýn
Sun 9/10 kl. 19:30 10.sýn Sun 23/10 kl. 19:30 16.sýn Fös 11/11 kl. 19:30 22.sýn
Fim 13/10 kl. 19:30 11.sýn Fös 28/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 12/11 kl. 19:30 23.sýn
Fös 14/10 kl. 19:30 12.sýn Sun 30/10 kl. 19:30 18.sýn
Sun 16/10 kl. 19:30 13.sýn Lau 5/11 kl. 19:30 19.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Horft frá brúnni (Stóra sviðið)
Lau 8/10 kl. 19:30 3.sýn Fös 14/10 kl. 19:30 6.sýn Sun 6/11 kl. 19:30 9.sýn
Sun 9/10 kl. 19:30 4.sýn Sun 23/10 kl. 19:30 7.sýn Fim 10/11 kl. 19:30 10.sýn
Fim 13/10 kl. 19:30 5.sýn Fös 28/10 kl. 19:30 8.sýn
Eitt magnaðasta leikverk 20. aldarinnar
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 8/10 kl. 13:00 Lau 15/10 kl. 13:00 Lau 29/10 kl. 13:00
Lau 8/10 kl. 15:00 Lau 15/10 kl. 15:00 Lau 29/10 kl. 15:00
Sun 9/10 kl. 13:00 Lau 22/10 kl. 13:00 Lau 5/11 kl. 13:00
Sun 9/10 kl. 15:00 Lau 22/10 kl. 15:00 Lau 5/11 kl. 15:00
Ævintýraför með forvitnum fílsunga - kemur þú með?
Ég vil frekar að Goya haldi fyrir mér vöku en einhver
djöfulsins fáviti (Kúlan)
Lau 15/10 kl. 19:30 Frums Fös 21/10 kl. 19:30 3.sýn Lau 29/10 kl. 19:30 5.sýn
Mið 19/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 27/10 kl. 19:30 4.sýn
Frumlegt og ögrandi samtímaverk
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Fös 7/10 kl. 20:00 Fös 14/10 kl. 20:00 Fös 21/10 kl. 20:00
Mið 12/10 kl. 20:00 Mið 19/10 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Stertabenda (Kúlan)
Mið 12/10 kl. 19:30 7.sýn
Meinfyndin og hárbeitt atlaga að íslenskri þjóðarsál
Yfir til þín - Spaugstofan (Stóra sviðið)
Fös 21/10 kl. 19:30 28.sýn Lau 29/10 kl. 19:30 30.sýn
Fim 27/10 kl. 19:30 29.sýn Fös 4/11 kl. 19:30 31.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Lofthræddi örnin Örvar (Kúlan)
Lau 19/11 kl. 15:00 Lau 26/11 kl. 13:00 Lau 26/11 kl. 15:00
Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki.
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 26/11 kl. 11:00 Sun 27/11 kl. 11:00
Lau 26/11 kl. 13:00 Sun 27/11 kl. 13:00
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð.
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 7/10 kl. 20:00 96. sýn Fös 21/10 kl. 20:00 104. s. Fös 4/11 kl. 20:00 112. s.
Lau 8/10 kl. 20:00 97. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 105. s. Lau 5/11 kl. 20:00 113. s.
Sun 9/10 kl. 20:00 98. sýn Sun 23/10 kl. 20:00 106. s. Fös 11/11 kl. 20:00 114. s.
Fim 13/10 kl. 20:00 99. s. Fim 27/10 kl. 20:00 107. s. Lau 12/11 kl. 20:00 115. s.
Fös 14/10 kl. 20:00 100. s. Fös 28/10 kl. 20:00 108. s. Sun 13/11 kl. 20:00 116.s
Lau 15/10 kl. 20:00 101. s. Lau 29/10 kl. 20:00 109. s. Fim 17/11 kl. 20:00 117.s
Sun 16/10 kl. 20:00 102. s. Sun 30/10 kl. 20:00 110. s. Fös 18/11 kl. 20:00 118.s
Fim 20/10 kl. 20:00 103. s. Fim 3/11 kl. 20:00 111. s.
Gleðisprengjan heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 8/10 kl. 13:00 5. sýn Sun 16/10 kl. 13:00 7. sýn Sun 30/10 kl. 13:00 10. sýn
Sun 9/10 kl. 13:00 6. sýn Sun 23/10 kl. 13:00 8. sýn Mið 2/11 kl. 19:00 aukas.
Lau 15/10 kl. 13:00 Auka. Lau 29/10 kl. 13:00 9. sýn Lau 5/11 kl. 13:00 11.sýn
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Sending (Nýja sviðið)
Sun 9/10 kl. 20:00 11.sýn Fim 13/10 kl. 20:00 12.sýn Fim 20/10 kl. 20:00 13.sýn
Allra síðustu sýningar!
Njála (Stóra sviðið)
Mið 12/10 kl. 20:00 Mið 26/10 kl. 20:00 Fim 10/11 kl. 20:00
Mið 19/10 kl. 20:00 Sun 6/11 kl. 20:00
Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur.
Hannes og Smári (Litla sviðið)
Fös 7/10 kl. 20:00 Frums. Sun 16/10 kl. 20:00 5. sýn Sun 30/10 kl. 20:00 9. sýn
Lau 8/10 kl. 20:00 2. sýn Lau 22/10 kl. 20:00 6. sýn Fim 3/11 kl. 20:00 aukas.
Fös 14/10 kl. 20:00 3. sýn Sun 23/10 kl. 20:00 7. sýn
Lau 15/10 kl. 20:00 4. sýn Lau 29/10 kl. 20:00 8. sýn
Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar
Extravaganza (Nýja svið )
Fös 28/10 kl. 20:00 Frums. Fös 4/11 kl. 20:00 4. sýn Fim 10/11 kl. 20:00 7. sýn
Lau 29/10 kl. 20:00 2. sýn Lau 5/11 kl. 20:00 5. sýn Sun 13/11 kl. 20:00 8. sýn
Sun 30/10 kl. 20:00 3. sýn Sun 6/11 kl. 20:00 6. sýn
Nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 4/11 kl. 20:00 Frums. Sun 13/11 kl. 20:00 6.sýn Lau 26/11 kl. 20:00 12.sýn
Sun 6/11 kl. 20:00 2.sýn Fim 17/11 kl. 20:00 7.sýn Sun 27/11 kl. 20:00 13.sýn
Mið 9/11 kl. 20:00 3.sýn Fös 18/11 kl. 20:00 8.sýn Lau 3/12 kl. 20:00 14.sýn
Fim 10/11 kl. 20:00 4.sýn Lau 19/11 kl. 20:00 9.sýn Þri 6/12 kl. 20:00 15.sýn
Lau 12/11 kl. 20:00 5.sýn Sun 20/11 kl. 20:00 10.sýn Mið 7/12 kl. 20:00 16. sýn
Átakamikið verk eftir Ingmar Bergman
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is