Morgunblaðið - 07.10.2016, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2016
The Girl on the Train
Hér er á ferðinni spennumynd
byggð á samnefndri metsölubók
Paulu Hawkins. Hún fjallar um
Rachel Watson sem daglega ferðast
með lestinni framhjá húsinu þar
sem hún bjó ásamt fyrrverandi eig-
inmanni sínum, Tom, sem nú er
kvæntur annarri konu. Dag einn
verður hún vitni að atviki í öðru
húsi í nágrenninu sem ýfir upp sára
minningu. Leikstjóri er Tate Tay-
lor, en í helstu hlutverkum eru
Emily Blunt, Rebecca Ferguson,
Luke Evans og Justin Theroux.
Rotten Tomatoes: 51%
Metacritic: 49/100
Masterminds
Grínmyndin Masterminds sækir
innblástur í rán sem framið var í
Bandaríkjunum 1997 og telst vera
næststærsta bankaránið í sögu
landsins. Öryggisverðinum David
Scott tókst að ræna hátt í 20 millj-
ónum bandaríkjadala frá öryggis-
fyrirtækinu sem hann vann hjá.
Hann komst undan og lifði í fram-
haldinu lúxuslífi með samverka-
fólki sínu. Leikstjóri er Jared Hess,
en í aðalhlutverkum eru Zach Gali-
fianakis, Kristen Wiig og Owen Wil-
son.
Rotten Tomatoes: 35%
Metacritic: 47/100
Middle School: The Worst Years of
My Life
Myndin byggist á samnefndri met-
sölubók eftir James Patterson sem
fjallar um hinn 13 ára gamla Rafe
sem ákveður ásamt félaga sínum,
Leonardo, að brjóta hverja einustu
skólareglu sem sett hefur verið.
Leikstjóri er Steven Carr, en í
helstu hlutverkum eru Griffin
Gluck, Thomas Barbusca og Isabela
Moner. Ekki fannst nein samantekt
á gagnrýni um myndina við leit á
netinu.
Bíófrumsýningar
Lestarferð, banka-
rán og unglingar
Spenna Emily Bunt leikur Rachel
Watson í The Girl on the Train.
Hálfvitaárinu
2016 lýkur á
Græna hattinum
á Akureyri í
kvöld og annað
kvöld kl. 22.. Þá
telja Ljótu hálf-
vitarnir í tón-
leikaprógrammið
sitt í síðasta sinn
þar til næsta vor.
„Allt verður þetta
með nokkuð hefðbundnum hætti,
enda stöðugleiki krafa dagsins. Góð-
ur slatti af útgefnum Hálfvitasmell-
um verður spilaður eftir því sem
tíminn milli kynninga og brandara
leyfir,“ segir í tilkynningu.
Síðustu hálfvita-
forvöð um helgina
Snæbjörn
Ragnarsson
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Eyrún Ósk Jónsdóttir er handhafi
Bókmenntaverðlauna Tómasar Guð-
mundssonar í ár. Verðlaunin hlaut
hún fyrir ljóðahandritið Góðfúslegt
leyfi til sígarettukaupa. Dagur B.
Eggertsson afhenti verðlaunin við
hátíðlega athöfn í Höfða í gær.
Fyrstu eintök af bókinni komu um
leið úr prentun í útgáfu Bjarts.
„Verðlaunin komu mér rosalega á
óvart,“ segir Eyrún, sem fór beint á
já.is til að vera fullviss um að símtal-
ið um tilkynningu verðlaunanna
hefði komið frá Reykjavíkurborg.
„Ég varð að útiloka að það væri ekki
einhver að grínast í mér.“ Eyrún er
rithöfundur, leikari og leikstjóri.
Hún hefur skrifað fjölda leikrita sem
hafa verið sett upp í leikhúsum hér-
lendis og erlendis, auk þess hefur
hún skrifað kvikmyndahandrit. Ey-
rún hefur áður sent frá sér þrjár
skáldsögur og tvær ljóðabækur. Ey-
rún lauk meistaragráðu í fjölmiðlun
og þróunarfræðum frá Winchester
University á Englandi árið 2007.
Hún útskrifaðist með BA-gráðu í
evrópskri leiklist og handritagerð
frá Rose Bruford College á Eng-
landi árið 2005.
Eyrún er afar snortin yfir verð-
laununum. „Þau eru ákveðin viður-
kenning á að einhver annar tengi við
það sem maður er að gera og hvatn-
ing til að halda áfram.“
52 handrit að ljóðabók bárust til
meðferðar dómnefndar í ár, en verð-
launin voru fyrst veitt árið 1994 og
voru síðan veitt annað hvert ár allt
til ársins 2004 fyrir óprentað handrit
frumsamið á íslensku. Frá árinu
2006 hafa verðlaunin verið veitt ár-
lega og einungis fyrir óprentað
handrit að ljóðabók.
Ljóð Eyrúnar eru skrifuð frá
sjónarhorni barnsins og eru að
miklu leyti byggð á persónulegum
minningum hennar úr barnæsku.
Almennar hættur
(og hvernig ber að forðast þær)
Ekki pota í píkuna
puttarnir gætu dottið af.
Ekki fikta í kerti
þá deyr sjómaður.
Ef þú svíkur loforð
myrðir þú engil.
Ef þú brýtur spegil
boðar það sjö ára ógæfu.
Ekki drepa járnsmið
þá fer að rigna.
Ef þú snýrð þér í hringi
dettur heilinn úr þér.
Ef þú klippir út í loftið
klippir þú í englavængi.
Ef þú bendir á flugvél
hrapar hún.
Ekki vaka á nóttinni
því þá nær Boli í þig.
Ef þú hlýðir ekki
kroppar Grýla úr þér augun.
brýtur í þér beinin
rífur utan af þér skinnið
og étur þig.
Það er vandlifað.
Hvatning til að halda áfram
Eyrún Ósk
hlaut Bókmennta-
verðlaun Tómasar
Guðmundssonar
Morgunblaðið/Eggert
Verðlaunahafi Eyrún Ósk Jónsdóttir tók á móti Bókmenntaverðlaunum Tómasar Guðmundssonar í Höfða í gær.
Dómnefnd Bókmenntaverðlauna
Tómasar Guðmundssonar í ár
skipuðu Úlfhildur Dagsdóttir for-
maður, Ragnhildur Pála Ófeigs-
dóttir og Bjarni Bjarnason.
Dómnefndin var einhuga um
að ljóð Eyrúnar tali með ferskum
hætti inn í hversdagsleika Ís-
lendinga og opni augu þeirra
með ljóðrænum, hugvitsam-
legum og frumlegum hætti fyrir
mörkunum milli einkalífs og op-
inbers lífs. Að mati dómnefndar
er Eyrún því mjög vel að verð-
launum Tómasar Guðmunds-
sonar komin.
Í umsögn dómnefndar segir:
„Hættur heimsins [eru] smætt-
aðar í margar litlar hættur
hversdagslífsins og þær settar í
samhengi við litlar orrustur ein-
staklingsins sem hann háir við
sín daglegu viðfangsefni. Við er-
um minnt á að pólitík heimsins
endurspeglast í míkrókosmískri
mynd í hugum okkar.“
Dómnefndin hrífst einnig af
sjónarhorni ljóðmælanda sem
barns: „Sem fullorðin sund-
urliðum við veruleikann, hann
verður flókinn og við erum utan
við okkur og oft ákafalaus. En í
vinningsljóðunum erum við
minnt á hvernig er að vera al-
tekinn af litla veruleikanum okk-
ar, eins og við upplifum hann
sem börn og unglingar,“ segir í
umsögn dómnefndar.
Veruleikinn með augum barna
LJÓÐIN TALA MEÐ FERSKUM HÆTTI INN Í HVERSDAGSLEIKANN
MIDDLE SCHOOL 4, 6
MAGNIFICENT 7 6, 9, 10:30
FRÖKEN PEREGRINE 6
BRIDGET JONES’S BABY 8
EIÐURINN 9
STORKAR 2D ÍSL.TAL 4
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 4