Morgunblaðið - 07.10.2016, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 281. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Fjölnir og Þóra Steina hætt saman
2. Andlát: Elísa Steinunn Jónsdóttir
3. Allir sakfelldir í Kaupþingsmáli
4. Rannsaka ný tilvik í Siglufjarðarmáli
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sambíóin Kringlunni bjóða í dag
og föstudaginn 14. október upp á
sérstakar samsöngssýningar á grín-
og söngvamyndinni Með allt á
hreinu frá 1982. Þar bítast hljóm-
sveitirnar Stuðmenn og Gærurnar
um hylli landans á tónleikaferð um
landið.
Samsöngssýningar á
Með allt á hreinu
Pétur Björnsson fiðluleikari og
Bjarni Frímann Bjarnason píanóleik-
ari leika allar sónötur Johannes
Brahms fyrir fiðlu og píanó á
tónleikum í
Seyðisfjarðarkirkju í
kvöld kl. 20 og í
Hannesarholti í Reykja-
vík annað kvöld kl. 20.
Tónleikaferð þeirra
um landið var
styrkt af tónlist-
arsjóði Rannís.
Leika sónötur Brahms
fyrir fiðlu og píanó
Geiri Sæm og
Hunangstunglið
halda tónleika í
Kjallaranum á
Græna herberginu
í kvöld kl. 21 og
flytja þar sín vin-
sælustu lög. Mið-
ar eru seldir við
innganginn. Sama
kvöld kl. 23.59
mætir Hreimur Örn vopnaður gítar
ásamt Birgi Kárasyni á bassa og
Benna Brynleifs á trommur og þeir
flytja lög frá níunda áratugnum. Að-
gangur er ókeypis.
Geiri Sæm leikur í
Græna herberginu
Á laugardag Suðaustan 8-15 m/s og rigning eða skúrir, en þurrt
að mestu norðaustanlands. Hiti 8-15 stig. Á sunnudag Hvöss suð-
austanátt og talsverð rigning sunnan og vestan til. Hiti 7 til 12 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða suðaustan 8-15 m/s, en allt að 23
syðst á landinu. Rigning á köflum um landið sunnanvert, en þurrt
og víða léttskýjað norðan til. Hiti 8 til 15 stig.
VEÐUR
Bandaríski körfuboltamað-
urinn Lewis Clinch er kom-
inn aftur til Grindavíkur eft-
ir þriggja ára fjarveru og
hann fór á kostum í gær-
kvöld þegar liðið lagði Þór
frá Þorlákshöfn, 73:71, í
fyrstu umferð Dominos-
deildar karla. Lewis skoraði
sigurkörfuna þegar þrjár
sekúndur voru eftir og gerði
37 stig í leiknum. Hann seg-
ir að sér líði ákaflega vel í
Grindavík. »4
Clinch sneri aftur
og fór á kostum
Eyjamenn eru komnir á topp Olís-
deildar karla í handknattleik eftir
sannfærandi átta marka útisigur á
Gróttu, 26:18, í gærkvöld. Theodór
Sigurbjörnsson var óstöðvandi og
skoraði ellefu af mörkum ÍBV. Grótta
tapaði öðrum leiknum
í röð eftir að hafa far-
ið mjög vel af stað í
deildinni. »4
Eyjamenn á toppnum
eftir stórsigur
„Sigrarnir verða ekki mikið sætari en
þetta. Þrátt fyrir að liðið hafi ekki
leikið neitt sérstaklega vel þá finnst
manni það vera styrkleikamerki
hópsins að knýja fram sigur. Þar
sannaðist hið fornkveðna að leik-
urinn er ekki búinn fyrr en dómarinn
flautar af,“ segir Logi Ólafsson, fyrr-
verandi landsliðsþjálfari, meðal ann-
ars um sigurinn á Finnum. »1
„Sigrarnir verða ekki
mikið sætari“
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bókin Signy’s Adventures in the Land of Fire &
Ice er komin út en þar segir Signy Stefanson, 11
ára gömul stúlka frá Winnipeg í Kanada, í máli og
myndum á 155 blaðsíðum frá ferð sinni um Ísland í
sumar.
Signy er af íslenskum ættum og hefur upplifað
sterkt tenginguna við Ísland og Íslendinga. Í bók-
inni segir hún frá því hvers vegna hún hafi þráð að
fara til Íslands og áréttar það í spjalli okkar. Allir
hafi stöðugt talað um Ísland, Eric, afi hennar, og
Kris, bróðir hans, hafi oft verið á Íslandi, Kristen,
mamma hennar, Myrna, amma hennar, og Eric,
móðurbróðir hennar, hafi farið til Íslands og þegar
Natalie, frænka hennar, hafi fengið að fara til fyrir-
heitna landsins hafi hún líka viljað fá að fara. Þá var
hún í 3. bekk og hafði gert verkefni um Ísland í
skólanum. „Natalie var 11 ára þegar hún fór fyrst
og afi og amma lofuðu mér að þegar ég yrði 11 ára
fengi ég að fara með þeim. Mamma fór með okkur
og við fengum Eric til þess að passa hundinn Penny
og fiskinn Blue á meðan.“
Margt skrýtið
Eitt er að dreyma og annað að upplifa. „Það
var skrýtið að koma til Íslands og allt bjart eins og
á daginn þótt komið væri fram yfir miðnætti,“ segir
hún. „Á leiðinni til Reykjavíkur komum við við í búð
og keyptum Cheerios og mjólk og eitthvað og ég
skildi ekkert hvað stóð á miðunum,“ segir hún. „Ég
tala ekki íslensku,“ heldur hún áfram á málinu yl-
hýra. Spurð hvort hún hafi ekki lært eitthvað í mál-
inu áður en hún fór svarar hún að bragði: „Já, já,
takk fyrir.“ Hún bætir við að húsin hafi verið miklu
fleiri en hún hafi haldið að væru á Íslandi og fleira
fólk. „Það voru ferðamenn úti um allt og við sáum
„strákana okkar“ eins og Íslendingar kalla fótbolta-
liðið, út um gluggann, þegar þeir komu í opnum
strætisvagni. Ég hef ekki kennt neinum víkinga-
klappið en ég fékk skjöld með áletrun sem segir að
maður eigi alltaf að vera maður sjálfur nema maður
geti verið víkingur og þá eigi maður alltaf að vera
víkingur. Ég hef sagt vinum mínum þetta.“
Hrædd í iðrum jarðar
Níu daga ferðalagið var vel skipulagt. „Amma
gaf mér dagbók sem ég skrifaði í á hverjum degi og
mamma keypti sér nýjan síma til þess að taka
myndir af öllu,“ segir Signy. Þau fóru á merkisstaði
í Reykjavík og hittu fjölskylduvini, skoðuðu sig um
á stöðum í nágrenni höfuðborgarinnar, fóru gullna
hringinn, skoðuðu Þríhnúkagíg og íshellinn í Lang-
jökli. Þau heimsóttu sveitirnar sem forfeðurnir
komu frá fyrir norðan, skoðuðu Akureyri, Mývatn
og nærsveitir og syntu í Bláa lóninu. „Það var
skemmtilegast að fara inn í eldfjallið en ég var svo-
lítið hrædd þegar við fórum niður.“
Myrna stakk upp á því að Signy skrifaði bók-
ina og aðstoðaði hana með því að setja inn nokkra
fræðslumola um land og þjóð og einkum þá staði
sem þau heimsóttu. „Ég skrifaði svo upp úr dag-
bókinni um það sem við gerðum,“ segir Signy.
Tíminn leið hratt og Signy segir að erfitt hafi
verið að fara aftur heim. „Ég var sorgmædd þegar
ég þurfti að kveðja, því ég vissi að ég myndi sakna
Íslands, en það góða er að ég kem aftur. Kannski á
næsta ári eða eins fljótt og ég get.“
Ljósmynd/Kristen Stefanson
Höfundurinn Signy Stefanson með bókina.
Signy Stefanson frá Winnipeg í Kanada segir frá upplifuninni í fyrstu Íslandsferð sinni
Ellefu ára víkingur skrifar bók
Þríhnúkagígur Kristen, Signy, Eric og Myrna Stefanson vel varin með hjálma á botni gígsins.
Strákarnir okkar Ari, Signy og Aron fyrirliði.