Morgunblaðið - 17.11.2016, Side 22

Morgunblaðið - 17.11.2016, Side 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2016 Nú lıḱa ı́ Hafnarirði Dalshrauni 13 Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560-8888 - www.vfs.is Sjálfhatur er sjúk- dómur sem hrjáir marga á Vest- urlöndum. Oft birtist sjúkdómurinn sem hatur á eigin sam- félagi og þjóð, ásamt ást á öllu sem útlent er, svo sem útlendri hugmyndafræði og trúarbrögðum. Hér á landi stunda sjúk- lingarnir beinlínis þjóðníð, auk þess sem þeir ganga blygðunarlaust í lið með arabískum landræningjum í Palestínu og styðja Mujahida í Sýrlandi og Írak. Það er opinbert leyndarmál að hryðjuverkamenn súnní-múslima (ISIS) eru fjármagnaðir og vopn- aðir af Sádí-Arabíu, Katar og Obama-stjórninni í Bandaríkj- unum. Natóríkið Tyrkland sér svo aumur á þeim og aðstoðar með að breyta stolinni olíu í peninga. Valdastéttin á Vesturlöndum lætur sér vel líka, enda jafnast engin smurolía á við mútufé Sádi-Arabíu. Þegar leikar stóðu sem hæst birtist senuþjófur að nafni Donald J. Trump og fór í forsetaframboð. Framboð Trumps sem himnasending Þrátt fyrir að valdastéttin keppt- ist við að birta skoðanakannanir sem sönnuðu að Trump ætti enga möguleika á að vinna prófkjör repúblikana, tókst honum það. Fréttastofur valdhafanna unnu síð- an baki brotnu við að sanna að Bandaríkjamenn ættu enga ósk heitari en að Bill Clinton fengi aft- ur búsetu í Hvíta húsinu. Allt kom fyrir ekki, því að „hvít úrhrök“ (nafngift Demókrata á fátæku dreifbýlisfólki) tóku upp á því að mæta á kjörstað og kjósa Donald J. Trump sem 45. forseta Bandaríkj- anna. Niðurstaða kosninganna veldur valdastéttinni auðvitað sárindum og jafnvel sáust tár á hvarmi þeirra sem verst eru haldnir af sjálfshatri. Máltækið segir: „lengi getur vont versnað“ og það sannast varðandi forsetakosningarnar. Það voru nefnilega ekki bara „hvít úrhrök“ sem greiddu Trump atkvæði sitt. Jafnvel múslimar, kvenmenn og innflytjendur notuðu atkvæði sitt á þennan hátt – þrátt fyrir að ríkjandi „hugsunarlaus rétt- hugsun“ leggi blátt bann við þjóð- legri afstöðu. Dæmi um þetta er Asra Quratulain Nomani, sem er múslimi, kvenmaður og innflytjandi til Bandaríkjanna. Asra sagði sögu sína í blaðagrein, sem birtist í The Washington Post, 10. nóvember 2016. Hún rekur þar aðdraganda þess, að hún fyrrver- andi „liberal“ og kjósandi Baracks Obama 2008 og 2012 ákvað að greiða Donald J. Trump atkvæði sitt. Hún talar um að frásögnin sé játning og útskýring, enda hafi hún verið þögull kjósandi, vegna þeirr- ar örvahríðar rétthugsunar sem yf- ir almenning hefur drifið. Asra sér ástæðu til að undirstrika, að hún sé ekki fordómafull, ekki haldin kyn- þáttahatri og ekki haldin þjóðern- ishroka. Eftirfarandi er sumt af því sem mótaði afstöðu hennar: Hófsömum múslimum ofbýður undirgefni Obama við súnní- íslam „Ég er einstæð móðir og hef ekki efni á sjúkratryggingu samkvæmt „Obama-care“. Hús- næðislánakerfi forset- ans „Hope Now“ kom mér að engu gagni. Eft- ir átta ára stjórn Obama og vegna henn- ar, er almenningur í dreifðum byggðum Bandaríkjanna í mikl- um fjárhagskröggum. Að auki sem hófsamur múslimi, sem hef sjálf fengið að þola afleið- ingar öfga-íslams, hef ég verið andvíg þeirri undirgefni Obama og Demókrata- flokksins, að steppdansa umhverfis orðið íslam í nafninu „Íslamska rík- ið“. Þetta er augljós tilraun til að fela það málefni sem veldur mér mestum ótta í jarðlífinu. Öfga-íslam hefur úthellt blóði frá anddyri Taj Mahal-hótelsins í Mumbai til dans- gólfsins í Pulse-næturklúbbnum í Orlando. Það sem endanlega réði afstöðu minni, voru ummæli Hillary Clinton í tölvuskeyti 17. ágúst 2014 til aðstoðarmannsins John Podesta, sem WikiLeaks birti. Þar segir Hillary: „Við ættum að nota sam- bönd okkar við stjórnmálamenn og hefðbundna útsendara til að hafa áhrif á ríkisstjórnir Katar og Sádi- Arabíu, sem leynilega veita ISIL fjárhagslegan stuðning og útvega þeim vopnabúnað. Með ISIL meina ég „íslamska ríkið“ og aðrar sveitir öfgafullra súnní-múslima á svæð- inu.“ Þegar svo bættist við, að Clin- ton-stofnunin (The Clinton Fo- undation) hafði fengið milljóna dollara framlög frá Katar og Sádi- Arabíu, hvarf algerlega áhugi minn fyrir framboði Hillary Clinton.“ Hillary hefði endurtekið hörmungar Obama-stjórn- arinnar Margir Bandaríkjamenn geta örugglega sagt sömu sögu og Asra Quratulain Nomani. Obama hefur gjörsamlega mistekist stjórn á inn- anlandsmálum og utanríkisstefnan hefur leitt til hörmunga fyrir millj- ónir manna, einkum í Mið- Austurlöndum og Afríku. Það eina sem Obama-stjórninni hefur tekist með „ágætum“ er að tvöfalda rík- isskuldir Bandaríkjanna. Hvað Hillary áhrærir, þá er hún meðsek Obama, auk þess sem hún er full- komlega siðlaus mútuþegi. Varla hvarflar að nokkrum manni að Hillary hefði komið ein- hverju gagnlegu til leiðar sem for- seti. Hún hefði haldið áfram sama fjármálasukkinu og daðri við hryðjuverkasamtök súnní-múslima, sem fjármögnuð eru af Katar og Sádi-Arabíu – eins og hún sjálf staðfesti í Wikileaks-skeytinu. Mannkyn hlaut stóra vinninginn, þegar Bandaríkjamenn höfðu vit á að kjósa Donald J. Trump sem for- seta. Eftir átta dapurleg ár undir stjórn Obama, er hægt að hefja sókn til bættra lífskjara í Banda- ríkjunum og útrýma Mujahidum súnní-múslima. Múslimi, kvenmaður og innflytjandi – en kaus samt Trump Eftir Loft Altice Þorsteinsson Loftur Altice Þorsteinsson » Það er opinbert leyndarmál að hryðjuverkamenn súnní-múslima eru fjár- magnaðir og vopnaðir af Sádi-Arabíu, Katar og Obama-stjórninni í Bandaríkjunum. Höfundur er verkfræðingur. Þetta eru að mestu þríglýserólesterar um 31 mismunandi fitusýru og mynda forðafituna. Glýserólfitusameind klofnar auðveldlega í glýseról og fitusýrur við vatnsrof í líkamanum og nýtast efnin að mestu í orkuvinnslu í frum- unum. En það eru eink- um fimm fitusýrur sem skipta meginmáli við myndun horm- óna, lífhvata og frumuhimna. Þrjár þessara fitusýra eru kallaðar F- vítamín og eru lífsnauðsynlegar heilsu okkar. Þær heita línólsýra (C18-2), línólínsýra (C18-3) og arakídonsýra (C20-4). Fitusýrur eru kolefnisstrengir og táknar talan aftan við C-ið fjölda samtengdra kolefn- isfrumeinda en lægri talan fjölda tví- bindinga milli tveggja kolefna í keðj- unni. Raunar má segja að tvær aðrar fitusýrur skipti ekki minna máli en við getum ekki myndað þær nógsam- lega á efri árum og þyrftum því að fá þær í matnum eða sem fæðubótar- efni. Þetta eru EPA (C20-5) og DHA (C22-6), oft kallaðar bara omega 3- fitusýrur í sölumennsku og þá átt við tvíbindingu milli 3 og 4 kolefnis frá þeim enda sem inniheldur ekki sýru- hópinn. Þetta er vill- andi því bæði eru omega 3 og 6 sýrur margar og línólínsýran (C18-3) getur verið eft- ir rúmgerð omega 3 (alfa-sýran) eða omega 6 (gamma-sýran). En þetta þykir gera auð- veldara að sýna skyld- leika milli afleiddra fitusýra eins og EPA og DHA. Næringarsérfræð- ingar hafa bent á að frá því snemma á síðustu öld hafi síaukin neysla jurtaolía fært manninum margfalt meiri blóðfitu af línólsýru, sem er omega 6 sýra, heldur en meira ómettaðri omega 3 línólínsýru. Best væri sem næst jafnvægi eins og á fyrri æviskeiðum mannsins og oft vís- að til mataræðis Grænlendinga og Dana sem Daninn dr. Dyerberg gerði rannsóknir á. Mataræði fitu Græn- lendinga var meira omega 3-miðað en Dana og Vesturlandabúa almennt.V- ar hjá Dönum áttfalt meira omega 6 miðað við omega 3. Skýringin á þessu ójafnvægi er sú að jurtaolíur almennt innihalda lítið af C18-3 fitusýru (omega 3) og mjög lítið ef nokkuð af fleirómettuðum fitusýrum, ólíkt sjáv- ardýrafitu. Álitið er að dagskammtur af línólsýru sem nóg framboð er af í mataræði Vesturlandabúa þurfi ekki að vera meiri en 2g og svo þurfi minnst 3g af línólínsýrunni (C18-3) sem er t.d. um 15% af hrossafitu. Lík- aminn nær að mynda gamma- línólínsýru og eitthvað af arakídon- sýru úr línólsýru. Arakídonsýruna er helst að finna í mjólkurfitu, fisk- og kjötfitu. EPA, DHA, línólsýra og línólínsýran eru ríkulegar í sjáv- arfiskum og lýsi og svo í innyflamat spendýra. Það eru einmitt af EPA, arakídonsýru og gamma-línólínsýru sem prostaglandínhormónarnir myndast í öllum frumum, en þeir fá allar frumur líkamans til að vinna saman og margt fleira. DHA er aftur á móti ríkulegt í heila og nauðsynlegt fyrir heilbrigði hans og boðskipti við taugakerfið. Japanir nota mikið canola-olíu (repjuolíu), Ítalir óunna, kaldpressaða ólífuolíu og Íslendingar taka inn (þorsklifrar)lýsi sem fæðu- bótarefni. Allar þrjár þjóðirnar neyta mikils fiskmetis og tvær þær fyrstu takmarka kjötát. Það er því mikið af hollum fitusýrum í fæðunni í þessum löndum í blönduðu og fersku fæði. Skortur á F-vítamínunum veldur ýmsum skortsjúkdómum. Það er álit- ið að ójafnvægi milli omega 6 og omega 3 geti valdið mörgum lífsstíls- sjúkdómum. Alfarið kolvetnaát (jurtafæði) getur líka orsakað skort á lífsnauðsynlegum fitusýrum. Próf. Olav Notevarp var með þá lausn á sínum tíma að taka inn 10 ml soja- baunaolíu og 5 ml lýsi. Þá væru tryggð 2% fleirómettaðra fitusýra í blóðfitu. Rannsókn Dyerberg sýndi að með omega 3-miðuðu mataræði mætti komast hjá mörgum lífsstíls- kvillum. Gæta þarf sín því á vali jurta- olía í mataræði, borða oftar feitan fisk og taka lýsi og leitast við að láta lík- amanum í té fleirómettaðar fitusýrur í sem næst réttum hlutföllum hvað snertir línól- og línólínsýruna. Matarfitan getur skipt sköpum Eftir Pálma Stefánsson » Auðvelt er að besta fituneyslu í matar- æðinu, svo að samsetn- ing blóðfitunnar verði hvað heppilegust fyrir heilsuna. Gæta þarf sín á sumum jurtaolíum. Pálmi Stefánsson Höfundur er efnaverkfræðingur. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Félag eldri borgara í Reykjavík Fimmtudaginn 10. nóvember var spilað á 11 borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 255 Helgi Samúelss. – Sigurjón Helgason 251 Guðl. Bessason – Trausti Friðfinnsson 248 Kristján Snorrason – Jón Sigurðss. 243 A/V Elín Guðmanns. – Friðgerður Benedikts.281 Magnús Láruss. – Svanhildur Gunnarsd. 256 Óli Gíslason – Magnús Jónsson 249 Margr. Gunnarsd. – Vigdís Hallgrímsd. 233 Gullsmárinn Spilað var á 9 borðum í Gullsmára mánudaginn 14. nóvember. Úrslit í N/S: Lúðvík Ólafsson - Sigurður Dagbjartss. 203 Samúel Guðmundss. - Jón Hannesson 186 Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 181 A/V: Sigurður Gíslason - Reynir Bjarnason 234 Óskar Karlsson - Sæmundur Árnason 193 Kristín G. Ísfeld - Óttar Guðmss. 190 Fjórtán borð hjá FEBR Mánudaginn 14. nóvember var spilað á 14 borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S: Kristinn Sölvason – Magnús Hjartarson 349 Örn Isebarn – Örn Ingólfsson 345 Guðl. Bessason – Trausti Friðfinnsson 337 Höskuldur Jónss. – Sigtryggur Jónsson 334 A/V: Magnús Lárusson – Svanh. Gunnarsd. 413 Óli Gíslason – Magnús Jónsson 379 Björn E. Péturss. – Gestur Gestsson 376 Sigurður Emil Ólafss. – Skafti Ottesen 361 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.