Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Blaðsíða 55
Helgarblað 15.–18. maí 2015 Menning 55 dk Viðskiptahugbúnaður - Þróaður fyrir íslenskar aðstæður - Öruggur, einfaldur í notkun og veitir góða yfirsýn yfir rekstur fyrirtækisins - Yfir 5.000 fyrirtæki á Íslandi nýta sér þjónustu okkar dk POS afgreiðslukerfið - Hraðvirkt og einfalt í notkun - Eitt öflugasta afgreiðslukerfið á markaðnum í dag - Yfir 900 afgreiðslukerfi um land allt dk Vistun - Heildarlausn í hýsingu forrita og gagna - Örugg vistun og framúrskarandi þjónusta dk hugbúnaður Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík Sími: 510 5800 www.dk.is Íslenskur hugbúnaður í 16 ár Veldu íslenskan hugbúnað Tíu áhugaverðir listviðburðir Svartar fjaðrir Það er Sigríður Soffía Níelsdóttir sem stýrir Svörtum fjöðrum, en verkið er byggt á fyrstu ljóðabók Davíðs Stefánssonar, sem var aðeins 24 ára þegar hann sendi hana frá sér. Sigríður Soffía er líklega þekktust á meðal almennings fyrir áhugaverðar flugeldasýningar á Menningarnótt, sem voru uppbyggðar líkt og danssýning. Meðal leikara er Ingvar E. Sigurðsson, en Jónas Sen og Valdimar Jóhannsson sjá um tónlist og Hildur Yeoman sér um búninga. Hvar: Þjóðleikhúsið Hvenær: 13. til 31. maí. Innsetning í bíó Elín Hansdóttir er einn af efnilegustu myndlistar­ mönnum þjóðarinnar en innsetningar hennar hafa að jafnaði vakið mikla athygli. Hún sýnir verkið Supsension of disbelief á listahátíðinni en verkið var opnað í mars síðastliðnum í KW Institute for Contemporary Art í Berlín og var unnið sérstaklega inn í rými sýningarstaðarins. Segja má að verkið sé tilraun til að afhjúpa nýjar víddir í skynrænni upplifun þvert á þau mæri sem liggja á milli þrívíðra miðla og kvikmynda­ miðilsins. Aðeins kvikmyndaverkið verður sýnt í Bíó Paradís en það er bróðir Elínar, Úlfur Hansson, sem sér um hljóðmyndina. Þá sér Margrét Bjarnadóttir um hreyfingar. Á bak við tökuvélina er Frerk Linz kvikmyndagerðarmaður. Hvar: Bíó Paradís Hvenær: 15. maí. Íslenskt tónverk frumflutt Nicola Lolli, nýr konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og píanistinn Domenico Codispoti munu frumflytja verk Þuríðar Jónsdóttur, Solid Hologram. Verkið var samið að beiðni Listahátíðarinnar. Þuríður hefur samið verk af ýmsum toga, sum þeirra studd rafhljóðum, þátttöku áheyrenda, leikrænum tilburðum eða náttúruhljóðum. Verk hennar hafa verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og Rostrum, alþjóðlegu tónskáldaþingi útvarpsstöðva (UNESCO). Þuríður var tilnefnd til Tónskáldaverðlauna Norðurlandaráðs 2006, 2010 og 2012. Hvar: Harpa, Norðurljós Hvenær: 29. maí. Ósómaljóð með Megasi og Skúla Megas og Skúli Sverrisson, ásamt hljómsveit, frumflytja Ósómaljóð Þorvalds Þorsteins­ sonar í heild sinni á Listahátíð Reykjavíkur. Þorvaldur samdi ljóðin einhvern tímann undir lok níunda áratugarins en leyfði síðan Megasi, sem var skólafélagi hans, að heyra ljóðin og leist söngvaskáldinu vel á. Þorvaldur fór að vinna með lögin aftur og notaði hljómborð sem Helena kona hans gaf honum í jólagjöf en aðeins fáum vikur síðar varð hann bráðkvaddur á heimili þeirra í Antwerpen í Belgíu. Í ljóðunum tala ímyndaðar persónur sem þusast út í lífið og samfélagið. Hvar: Gamla Bíó Hvenær: 26. maí. Óður til eilífðar Gyðu Valtýsdóttur þekkja margir en hún gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Múm ásamt tvíburasystur sinni Kristínu. Gyða hefur getið sér gott orð sem tónlistar­ og sviðslistamaður síðustu ár. Hún mun flytja verkið Galagalactic í tónleikasaln­ um Mengi en salurinn var tilnefndur til Menningarverðlauna DV á síðasta ári. Verk Gyðu er lýst sem óði til eilífðarinnar. Auk þess að hafa verið í Múm er Gyða búin með meistaranám í sellóleik og hefur spilað með fjölda listamanna. Hvar: Mengi Hvenær: 6. júní.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.