Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Blaðsíða 41
Helgarblað 15.–18. maí 2015 Skrýtið 41
TIL
BO
Ð
MG5650
14.900kr.
Hjá okkur færðu öll hylkin í prentarann á aðeins 3.900
Algengt verð: 19.900
Skútuvogi 1 104 Reykjavík Sími 553 4000 prentvorur.is
TIL
BO
Ð
MG5650
14.900kr.
Hjá okkur færðu öll hylkin í prentaran á aðeins 3.900
Algengt verð: 19.900
Skútuvogi 1 104 Reykjavík Sími 553 4000 prentvorur.is
Vænn biti stjórnmálanna
Stjórnmálamenn þurfa að borða rétt eins og við hin, en njóta ef til vill ekki sömu friðhelgi og við þegar við setjumst að snæðingi. Ljós-
myndarar Reuters eru ávallt á vaktinni og missa ekki af einum bita þegar stjórnmálamenn og þjóðarleiðtogar eru annars vegar. Í kosn-
ingabaráttu og við ýmsar uppákomur þurfa þeir að borða og brosa, hvort sem bitinn er sætur eða beiskur.
Ein með öllu Forsætis-
ráðherra Bretlands gæðir sér hér á einni
með öllu í hádeginu í lautarferð. Myndin var
tekin til að auglýsa breytingar á skatt- og
lífeyrisréttindum og var nokkrum sem njóta
góðs af breytingunum boðið til snæðings í
miðri kosningabaráttunni í síðasta mánuði.
Hvort pylsan var lykillinn að kosningasigri
Íhaldsflokksins skal ósagt látið, en David
Cameron sýnir hér nýja takta við pylsuát
þegar hann borðar hana með hníf og gaffli.
Hér til hliðar snæðir hann svo með fyrrver-
andi borgarstjóra New York-borgar, Michael
Bloomberg, og virðast þeir báðir njóta
pylsunnar. Myndir rEutErs
Í miðjum bita Barack
Obama, forseti Bandaríkjanna, tekur hér
vænan bita af bratwurst-pyslu í heimsókn
sinni hjá pylsuframleiðanda í Milwaukee
í Bandaríkjunum. Líkt og fleiri var Obama
á kosningaferðalagi, þar sem þessi ágæta
mynd var tekin af honum í miðjum bita. Ef til
vill ætti Obama að gera líkt og forveri sinn,
Bill Clinton, og fá sér eina með öllu í miðborg
Reykjavíkur.
skyndibiti? Hillary
Clinton snæðir hér kvöldmat á skyndibita-
staðnum King Taco í Los Angeles ásamt
þáverandi borgarstjóra, Antonio Villari-
gosa. Hvort Hillary fékk sér bita í skyndi
eða ekki er óvíst, en líklega var maturinn
góður. Borgarstjórinn virðist að minnsta
kosti líta öfundaraugum á aðfarir hennar.
Fiskbiti Japanski forsætisráðherrann, Shinzo Abe, skellir í sig hollustunni og tekur
góðan bita af fiski. Myndin var tekin þegar Abe var í framboði, en fiskurinn hefur verið grillaður
á sérstakan hátt og þykir hið mesta lostæti þó að myndin beri það ef til vill ekki með sér.
Vonbrigði með
tertuna Robert Mugabe gæðir sér
hér á afmælistertu sem bökuð var honum til
heiðurs. Hátíðarhöldin tengdust afmæli for-
setans í Simbabve, en líklega líkaði honum
ekki tertan, ef marka má svipbrigðin.
Á franska vísu Francois
Hollande, forseti Frakklands, tekur bita af
ekta fransbrauði í kosningabaráttunni fyrir
síðustu forsetakosningar. Hér er hann að
ræða við og snæða með stáliðnaðarmönnum
í Frakklandi. Hér til hliðar er svo John
Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
að gæða sér á svipuðu brauði, en deilir því
með sendiherra Bandaríkjanna í Póllandi,
Stephen Mull, á göngutúr í Pólland.
Maísbiti George Bush borðar hér hráan maís á ferðalagi sínu um Iowa. Flestir
Íslendingar eiga því að venjast að elda maísinn með einhverjum hætti, en hann virðist að
minnsta kosti vera ljúffengur.
súkkulaðistund
Þýski kanslarinn, Angela Merkel, fær sér
smá bita af súkkulaði þar sem hún hlustar
á ræður á flokksþingi.