Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Blaðsíða 18
Helgarblað 15.–18. maí 201518 Fréttir
og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR
Atburðarásin í
Vaðlaheiðargöngum
Júní 2012 Alþingi
samþykkir með 29 at-
kvæðum gegn 13 frumvarp
Oddnýjar Harðardóttur,
þáverandi fjármálaráð-
herra, um að ríkið láni
Vaðlaheiðargöngum hf. allt
að 8,7 milljarða króna til
verksins. Skiptar skoðanir
eru um hvort ríkið eigi að
lána fyrir framkvæmdinni
og nokkrir þingmenn
Norðausturkjördæmis eru
ásakaðir um kjördæmapot.
Febrúar 2013 Skrifað undir samn-
inga um gerð ganganna. Meðal viðstaddra
eru Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi
atvinnuvegaráðherra og Kristján L. Möller al-
þingismaður. Báðir eru fyrrverandi samgöngu-
ráðherrar og þingmenn Norðausturkjördæmis
og fögnuðu þeir áfanganum innilega.
E
f við lítum á staðreyndirnar
þá er alveg ljóst að við mun
um ekki ná að opna göngin
vorið 2017. Ég held að menn
verði að gera sér grein fyrir
því að þetta mun taka lengri tíma
og við gerum nú ráð fyrir að þau
verði í fyrsta lagi opnuð haustið
2017,“ segir Valgeir Bergmann, fram
kvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf.,
um áhrif endurtekinna vandamála
vegna vatnsleka í göngunum á fram
kvæmdina.
Ekkert hefur verið sprengt í
göngunum í tæpan mánuð, eða síð
an misgengissprunga, sem dælir nú
inn um 400 lítrum á sekúndu af köldu
vatni, opnaðist Fnjóskadalsmegin og
þau fylltust af vatni á löngum kafla.
Upphaflega átti að opna göngin
í desember 2016 en eftir að heitt
vatn fór að streyma úr annarri stórri
sprungu Eyjafjarðarmegin í febrúar í
fyrra voru mannskapur og tæki flutt
yfir í Fnjóskadal. Þá var gert ráð fyrir
um hálfs árs seinkun en nú er ljóst að
ekki verður opnað fyrir umferð undir
Vaðlaheiði fyrr en í fyrsta lagi haustið
2017. Eigendur ganganna missa
þá af sumarvertíðinni sem átti að
tryggja nauðsynlegar tekjur svo hægt
yrði að endurfjármagna sem fyrst 8,9
milljarða króna lánið sem ríkið veitti
til verkefnisins.
„Áformin um að opna vorið 2017
voru gerð fyrir komu kalda vatnsins
í Fnjóskadal og nú hefur það áfall
sett strik í reikninginn. Rennslis
minnkunin þar er hægari en við
Lekinn mun seinka
opnun um tæpt ár
n Verklokum í Vaðlaheiðargöngum seinkar enn frekar n Missa af mikilvægum tekjum
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Ein sprungan Starfsmenn
Ósafls hf. ætla að reyna að
loka fyrir litlu sprungurnar við
stafninn Eyjafjarðarmegin í
næstu viku. Mynd ValGEir BErGMann