Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2015, Blaðsíða 44
Helgarblað 15.–18. maí 201544 Lífsstíll
GleðileGt sumar
12” til 24” barnareiðhjól, verð frá kr. 25.900,-
Frábært úrval reiðhjóla og aukahluta • Mikið úrval af reiðhjólahjálmum
Focus Whistler 4.0
29“ ál stell-Tektro Auriga
Vökvabremsur- Shimano Deore
Afturskiptir- 27 gíra. Kr.119.000
Focus raVeN rooKie DoNNa 1.0
26“ ál stell-Promax V-Bremsur-Shimano 21 gíra Focus raVeN rooKie 1.026“ ál stell-Promax V-Bremsur-
Shimano 21 gíra
Kr.69.900Kr.69.900
Dalshraun 13 220 Hafnarfjörður Sími:565 2292
Hefur
aldrei
„vafflað“
á sér hárið
n Hrafnkell notar hárið í herferð UN Women n Fer sjaldan á rakarastofur
H
ann er stundum kallaður
„trommari Íslands“ enda
ástsæll, klár og afburða-
góður trommari þrátt fyrir
ungan aldur. Hrafnkell Örn
Guðjónsson, oftast kallaður Keli,
trommar meðal annars með Agent
Fresco, Emmsjé Gauti, Úlfur Úlfur
og Young Karin. Hans helsta kenni-
merki er úfið og mikið hár. Mjög mik-
ið hár. En um þessar mundir nýtir
hann hárprýði sína í herferð fyrir UN
Women á Íslandi ásamt, ekki síður
hárprúðum, borgarstjóra í Reykjavík,
Degi B. Eggertssyni.
„He for she“ er alþjóðlegt átak UN
Women sem miðar að því að hvetja
karlmenn sérstaklega til að láta til sín
taka í baráttunni fyrir kynjajafnrétti.
Á Íslandi er slagorð herferðarinnar
„ólíkir en sammála um kynjajafnrétti“
en markmið hennar er að hvetja karl-
menn til að stíga næsta skref og ger-
ast mánaðarlegir styrktaraðilar UN
Women á Íslandi á www.heforshe.
is. Þess vegna hafa samtökin útbú-
ið skemmtileg örmyndbönd þar sem
ólíkir karlmenn eru paraðir saman í
skemmtilegum aðstæðum. Í einu slíku
má finna trommarann geðþekka, Kela,
og borgarstjórann kljást um hárvörur.
Vill nýta foréttindi sín í þennan
málstað
„Ég er fæddur karlmaður á Íslandi,
sem því miður eru ákveðin for-
réttindi. Það eru ekki forréttindi sem
ég hef áhuga á að vera með eða nýta
mér á nokkurn hátt nema mögulega
til þess að berjast fyrir jafnari stöðu
kynjanna. Ef ég get nýtt mér þessi
meðfæddu forréttindi mín þá vil ég
einmitt nýta þau í þennan málstað,“
segir Keli spurður um hvers vegna
hann taki þátt í þessu verkefni.
Keli telur að til þess að kynjajafn-
rétti náist í samfélaginu verði að eiga
sér stað ákveðin hugarfarsbreyting.
Hann segir að „He for she“-herferðin
geti einmitt stuðlað að slíkri breytingu
og geti haft keðjuverkandi áhrif á svo
marga þætti kynjamisréttis.
„Ég held að það megi segja að
ef við náum ákveðinni hugarfars-
breytingu þá fylgi hitt á eftir, launa-
munurinn, dómskerfið og allt hitt
sem þarf að laga. Mér fannst til
dæmis „free the nipple“-aðgerðin
mjög gott dæmi um aðgerð sem kall-
aði á hugarfarsbreytingu og vona að
herferðin sem ég tek nú þátt í geti haft
sambærileg áhrif. “
Notar ekki hársnyrtivörur
Eins og áður segir eru þeir Dagur
B. borgarstjóri og Keli að kljást um
hárvörur. Það er því ekki úr vegi að
spyrja Kela hvort hann hafi almennt
miklar skoðanir á hársnyrtivörum og
hvort hann sé vanur að nota slíkar
vörur daglega.
„Ég get ekki sagt að ákveðnar
tegundir af hárvörum séu mér hjart-
ans mál. Sannleikurinn er aftur á
móti sá að fólk spyr mig mikið út í
hárið á mér og oft snúa spurningarn-
ar að því hvort ég vaffli það. Mitt svar
er þó alltaf hið rétta, það er að þetta
er allt bara „natural“. Ég hef ekki hug-
mynd um hvað í því felst að vaffla á
sér hárið. Ætli það sé ekki best að ég
fái bara að nýta þennan vettvang til
þess að lýsa því yfir hér og nú að ég,
Hrafnkell Örn Guðjónsson, hef aldrei
vafflað hárið og þarf raunar að hafa
mjög lítið fyrir því eins og það er.“
Keli segir að hann hafi stigið
út fyrir rammann þegar hann var
beðinn um að taka þátt í „He for she“-
herferðinni en það hafi þó ekki verið
málstaðarins vegna.
„Mér fannst þetta ekki beint
óþægilegt en ég hef ekki verið að leika
mikið þannig að það var nýtt fyrir mér
og mjög skemmtilegt. Svo verð ég að
segja að það hafi verið dálítið óvenju-
legt að labba inn á rakarastofu, það er
ekki eitthvað sem ég geri oft.“
Opinn fyrir nýjum
tónlistarstefnum
Í daglegu lífi leggur trommarinn
áherslu á að ögra sér. Hann miklar
þó hlutina ekki mikið fyrir sér og get-
ur ekki nefnt neitt sem hann forð-
ast sérstaklega eða finnst óþægilegt.
Hann telur þó mikilvægt að takast
á við ný verkefni og vera opinn fyrir
nýjungum.
„Sem tónlistarmaður hef ég viljað
vera opinn fyrir nýjum tónlistarstefn-
um og taka að mér fjölbreytt verk-
efni. Ég hef alltaf verið mikill rokkari
en svo áttaði ég mig á því nýlega að
um þessar mundir er ég mest að spila
hipp hopp-tónlist. Ég hef líka spilað
djass og var einu sinni í klassísku tón-
listarnámi.“
Að lokum leggur Keli áherslu á að
til þess að þroskast sem manneskja sé
mikilvægt að prófa nýja hluti eða að-
stæður en viðurkennir að hann gæti
gert meira af því.
„Ég mætti örugglega vera miklu
duglegri við það. Kannski nýti ég mér
bara þetta viðtal sem svona vakn-
ingu til þess að stíga meira út fyrir
þægindarammann minn.“ n
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
Nota hárið Þessir hárprúðu menn kljást um hárvörur í herferð UN Women.
Hárprúður
Hrafnkell tekur
þátt í herferð UN
Women á Íslandi.
MyNd MarKus MOises