Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 26.02.2016, Síða 2

Fréttatíminn - 26.02.2016, Síða 2
„Ég hef ekki skrifað undir undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar, en ég styð allt sem stuðlar að endurreisn ís- lensks heilbrigðiskerfis,“ segir landlæknir. Birgir Jakobsson landlæknir segist hafa áhyggjur af því hvert það fé fari sem veitt er í heilbrigðisþjónustuna. 81 þúsund Íslendingar hafa skrif­ að undir áskorun Kára Stefánssonar um að endurreisa heilbrigðiskerfið og láta 11 prósent af vergri lands­ framleiðslu renna til heilbrigðis­ þjónustu. Landlæknir segir að sú stefna að fjármagna einkarekstur í gegnum sjúkratryggingar, stuðli að því að læknar reki einkastofur úti í bæ og séu einungis í hlutastarfi á Land­ spítalanum. Þetta bitni á gæðum þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Þá sé aðgengi að heilbrigðisþjónustu takmarkað á landsbyggðinni, þar sé hún veitt á forsendum sérfræðinga en ekki heimamanna. Birgir segist hafa áhyggjur af því að það sem veitt er til heilbrigðis­ þjónustu haldi áfram að færast til þjónustu sem stýrist af samningum Sjúkratrygginga Íslands og sér­ greinalækna, fjármagn sem gæti farið til forgangsverkefna, svo sem heilsugæslu, sérfræðiþjónustu á landsbyggðinni og uppbyggingar Einkarekin heilsugæsla Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur kynnt áætlanir um stór- aukinn einkarekstur heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Stefnt er að því fjölga heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu um þrjár á þessu ári og verður það gert með einkareknum stöðvum. Sjúkra- tryggingum Íslands hefur verið falið að auglýsa eftir rekstraraðilum. Seltjarnarnesbær hefur selt fimm félagslegar íbúðir á undanförnum tveimur árum en einungis keypt tvær aðrar í staðinn. Bæjarstjórinn kann- ast ekki við að minnihlutinn hafi viðrað hugmyndir um að breyta kerfinu. Margrét Lind Ólafsdóttir, bæjar­ fulltrúi á Seltjarnarnesi, segir að bærinn sé að losa sig við félagslegar íbúðir þrátt fyrir biðlista eftir félags­ legu húsnæði. „Það er fólk sem er á hrakhólum og fær að vera inni á ætt­ ingjum eða vinum meðan það er að bíða eftir húsnæði. Á sama tíma er bærinn að selja félagslegar íbúðir til að spara peninga. Sjálfstæðismenn hafa lofað að kaupa aðrar íbúðir í staðinn en ekki staðið við það. Við í minnihlutanum höfum ítrekað bent á íbúðir til sölu í bæjarfélaginu.“ Margrét bendir á að þetta sé hluti af ákveðinni elítustefnu sem sé rek­ in í bænum. Fólk sem lendir í erfið­ leikum er hreinlega ekki velkomið. Þeim pakka sé hreinlega bara ýtt yfir á Reykjavík. „Mér er bara gersam­ lega ofboðið hvernig þetta fólk kem­ Mér er bara gersamlega ofboðið hvernig þetta fólk kemur fram. Margrét Lind Ólafsdóttir bæjarfulltrúi Seltjarnarnes Selja félagslegar íbúðir þrátt fyrir biðlista „Fólk í erfiðleikum er ekki velkomið“ ur fram á sama tíma og það hreykir sér af því að vera besta bæjarfélagið á landinu.“ Ásgerður Halldórsdóttir, bæjar­ stjóri á Seltjarnarnesi, segir að ekkert hafi verið selt nema með samþykki bæjarfulltrúans. Sala tveggja félags­ legra íbúða hafi verið samþykkt sam­ hljóða í bæjarstjórn enda skilningur á því að þær þyrftu of mikið viðhald til að það borgaði sig að halda þeim. Hún segist ekki kannast við að fimm íbúðir hafi verið seldar né heldur að minnihlutinn hafi lagt fram tillögur um að breyta félagslega kerfinu. | þká „Ég er farinn að spyrja mig hvort ég sé í góðum höndum í íslenska heilbrigðiskerfinu,“ segir Svanur Pálsson sem greindist með sjaldgæfa tegund að krabbameini fyrir ári. Hann hefur ítrekað orðið fyrir barðinu á mistökum á Landspítalanum og segist hugleiða að flytjast búferlum til Svíþjóðar. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is Svanur Pálsson greindist með Sez­ ary heilkenni í fyrra en það er afar sjaldgæft eitilfrumukrabbamein, en þetta er fyrsta íslenska tilfellið sem vitað er um. Hann hefur verið óvinnufær og barist fyrir lífi sínu í meira en ár, meðal annars hefur hann gengist undir erfið merg­ skipti í Svíþjóð, þar sem hann dvaldi í þrjá mánuði. Fyrstu mistökin sem Svanur varð fyrir var þegar hæð og þyngd var víxlað við lyfjagjöf og hann fékk tvo skammta af krabbameins­ lyfjum, sem voru rangt út reiknað­ ir vegna þess. „Þeir reiknuðu sem sagt skakkt, þannig að ég var metri á lengd og 175 kíló. Það er auðvit­ að mjög fyndið, en afleiðingarnar hefðu getað verið skelfilegar.“ Hann þarf vikulega að láta taka úr sér blóðsýni svo hægt sé að fylgjast með stöðunni. Í eitt skipti var hann í læknaviðtali fyrir sýna­ tökuna. Þá sér læknirinn að það er búið að taka blóðsýnið þann dag­ inn. Þegar farið var að skoða málið kom í ljós að blóðsýni úr öðrum sjúklingi höfðu verið skráð í læknaskýrsluna hans fyrir mistök. „Þá var tekið mergsýni úr mér fyrir nokkru. Ég var orðinn þreytt­ ur á að bíða eftir svari, þegar það voru liðnar þrjár vikur, og ég hringdi út til Svíþjóðar en þá kom í ljós að sýnið hafði aldrei borist frá Íslandi. Frekari eftirgrennslan leiddi í ljós að DHL hafði aldrei fengið sýnið. Það virðist því hafa týnst á Landspítalanum,“ segir Svanur. „Mér skilst á hjúkrunarfræðingi á deildinni að ég hafi verið einstak­ lega óheppinn. Mér finnst hins­ vegar ekki hægt að horfa þannig á málið. Hann bendir á að tíminn sé afar dýrmætur í slíku veikindastríði. Nú bendi allt til þess að krabba­ meinið sé komið aftur í húðina. „Og mergsýni er töluvert inngrip fyrir sjúklinginn og líka kostnaðar­ samt sýni,“ segir Svanur. „Ekki bara fyrir heilbrigðiskerfið heldur þurfa sjúklingar líka að greiða fyr­ ir það. En þrátt fyrir að sýnið hafi týnst hefur enn ekki verið boðin endurgreiðsla. Á Íslandi er ætlast til að sjúklingarnir haldi utan um kerfið, en ekki öfugt,“ segir hann. Sem dæmi um það þurfti hann sjálfur að sjá um að útvega tvær nauðsynlegar bólusetningar sem þurfti eftir að hann sneri aftur til Íslands, eftir mergskiptin í Svíþjóð. Svanur og eiginkona hans íhuga alvarlega að flytjast búferlum til Svíþjóðar: „Þetta er stórt skref og stór ákvörðun, en nú er traustið á kerfinu að hverfa og mér líður ekki eins og ég sé í öruggum hönd­ um eftir að ég kom heim,“ segir Svanur. „Í Svíþjóð eru læknar með reynslu af þessum sjúkdómi, það er minna álag á starfsfólki og meira úrval af lyfjum. Næstu vikur munu líklega fara í það hjá okkur fjölskyldunni að velta fyrir okkur kostum og göllum og að vega og meta hvort landflótti sé raunhæfur kostur.“ Heilbrigðismál Traustið á heilbrigðiskerfinu er nær horfið Mergsýnið týndist á Landspítalanum Svanur Pálsson er fjögurra barna faðir og starfar sem tölvunarfræð- ingur. Hér er hann með eiginkonu sinni, Guðnýju Þorsteinsdóttur. Á Íslandi er ætlast til að sjúk- lingarnir haldi utan um kerfið, en ekki öfugt. Glitnir lifir Íslenski útrásarbankinn Glitnir átti aldrei afturkvæmt eftir bankahrun­ ið. Hann varð aftur sami gamli Íslandsbankinn og fram að 2006, þegar hann fékk nýtt nafn og nýja ímynd. En þeir sem halda að hann hafi lagt árar í bát eru á villigötum. Glitnir er núna karaokee bar í Fær­ eyjum og gerir það gott. | þká H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Dásamlegur á brauðið og hentugur fyrir heimilið Engin fyrirhöfn ms.is TILBOÐ25 sneiðar Heilbrigði Landlæknir skrifaði ekki undir Óttast að féð fari í einkarekstur Mynd | Hari Birgir Jakobsson landlæknir. Baltasar Kormákur, leikstjóri og framleiðandi Ófærðar, sem flestir Íslendingar hafa fylgst með öll síðustu sunnudagskvöld, hefur boðið fjölda fólks í partí á sunnu­ dagskvöldið til að fagna velgengni Ófærðar og tökulokum á Eiðnum. Það væri ekki í frásögur færandi nema vegna þess að það sama kvöld er uppskeruhátíð kvik­ myndaakademíunnar, sjálf Eddan. Jón Gnarr og 365 miðlar hafa sem kunnugt er snúið baki við Eddunni, svo nokkur styrr hefur staðið um hátíðina. Aðeins fyrstu sex þættirnir af Ófærð voru tilnefndir til verðlauna á Eddunni. Ástæðan er sú að aðeins sex þættir af tíu höfðu verið sýndir þegar tilnefningum var skilað inn. Ófærð hlaut tilnefningar í flokknum brellur og leikið sjón­ varpsefni, tónlist og Baltasar Breki Samper sem aukaleikari. Eddan á fáa vini Boðsmiði í partí Baltasars nýs háskólasjúkrahúss. Fjárveit­ ingavaldið haldi áfram að skera niður framlög til spítalans enda sé það mun auðveldara en að draga úr framlögum til sjúkratrygginga sem byggi á samningum. | þká 2 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.