Fréttatíminn - 26.02.2016, Page 18
Formaður Byggiðnar segir
ríki, sveitarfélög og stór-
fyrirtæki vera þjófsnauta,
með því að semja við þekkta
kenni töluflakkara. Hann
gagnrýnir að ekki sé búið
að setja í útboðsskilmála hjá
ríkinu að aðalverktakar taki
ábyrgð á undirverktökum
sínum. Yfirlögfræðingur hjá
Lögreglustjóranum á höfuð-
borgarsvæðinu tekur í sama
streng og segir að það sé
mikill ábyrgðarhluti að ganga
til samninga við slík fyrir-
tæki. Sviðsstjóri hjá ríkis-
skattstjóra líkir þessu við
skipulagða glæpastarfsemi
sem tiltölulega fámennur
hópur Íslendinga stundi.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Flytja þarf inn þúsundir erlendra
starfsmanna á næstu árum. Starfs-
mannaleigur hugsa sér gott til
glóðarinnar en fjöldi þeirra hefur
þrefaldast úr 4 í 12 á nokkrum mán-
uðum en alls starfa um 120 starfs-
menn á þeirra vegum í dag. Þá hefur
fjöldi erlendra undirverktaka – eða
svokallaðra þjónustufyrirtækja átt-
faldast, en í fyrra voru um átján slík
fyrirtæki með 341 starfsmann á ís-
lenskum vinnumarkaði.
Finnbjörn Hermannsson, for-
maður Byggiðnar, gagnrýnir harð-
lega að ríki, sveitarfélög og stórfyrir-
tæki gangi til samninga við þekkta
kennitöluflakkara og undirverktaka
með allt niður um sig og sýni þannig
ábyrgðarleysi og séu í raun þjófsnaut-
ar. Hann veltir fyrir sér hvers vegna
ekki sé búið að uppræta kennitöluf-
lakk og hvers vegna ekki sé búið að
setja í útboðsskilmála Framvæmda-
sýslu ríkisins að aðalverktakar taki
ábyrgð á undirverktökum sínum.
Lögreglan hefur ekki mannskap
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlög-
fræðingur hjá Lögreglustjóranum á
höfuðborgarsvæðinu, segir að lög-
reglan hafi ekki nægilegt fjármagn
til að sinna þessum málum eins og
þyrfti. Hún segir að það veki upp
spurningar þegar ríki og sveitar-
félög séu að segja upp starfsfólki
á lágum launum, til dæmis ræst-
ingafólki, til að semja við verktaka í
sparnaðarskyni. Stundum komi til-
boð sem séu langt undir kostnaði
við að vinna verkin, samkvæmt því
sem ríki og sveitarfélög hafi látið
uppreikna. Það sé mikill ábyrgðar-
hluti að opinberir aðilar gangi til
samninga í slíkum tilfellum, það
veki upp spurningar um á hvaða
leið við séum sem samfélag.
Allt í byggingariðnaði
Allar starfsmannaleigur og allir
skráðir undirverktakar eru í bygg-
ingaiðnaði. Öfugt við það sem
margir halda hefur ferðaþjónustan
ekki nýtt sér slíka þjónustu, sam-
kvæmt upplýsingum frá Vinnu-
málastofnun.
Fiskvinnslan hefur nýtt sér
starfsmannaleigur en ekki núna.
Undirverktaka er enn ógagnsærri
en starfsmannaleigurnar. Undir-
verktakar geta sótt um undanþágu
frá skattskyldu á Íslandi fyrir starfs-
menn sína í allt að sex mánuði. Það
gerir eftirlitsmönnum Vinnumála-
stofnunar og stéttarfélaga erfiðara
fyrir, að fylgjast með kjörum þeirra.
Finnbjörn Hermannsson segir að
sumar starfsmannaleigur hafi farið
á svig við lög með því að leigja út
iðnaðarmenn en greiða þeim lág-
markslaun verkamanna. Sumir
undirverktakar taki þetta hins-
vegar skrefinu lengra og í sumum
tilfellum sé þetta ekkert annað en
skipulögð glæpastarfsemi með tíu
kennitölur undir.
Öll fyrirtæki með undirverktaka
Nánast öll byggingafyrirtæki notast
við undirverktaka, sum þeirra mis-
nota hinsvegar fyrirkomulagið og
eru á gráu svæði eða brjóta lög, Sig-
urður Jensson, sviðsstjóri hjá ríkis-
skattstjóra, segir að embættið hafi
látið loka nokkrum fyrirtækjum
undirverktaka að undanförnu og
mál nærri fimmtán fyrirtækja með
erlenda starfsmenn hafi verið send
skattrannsóknarstjóra vegna gruns
um stórfelld skattsvik.
Sigurður Jensson segir að aðal-
verktakinn sé yfirleitt með allt
sitt á hreinu og haldi ímynd sinni
hreinni út á við og skili ársreikningi
á réttum tíma. Öll starfsmannamál
fari hinsvegar í gegnum undirverk-
taka, oft vafasama menn sem séu
hreinlega ráðnir til verksins. Þeir
skili svo engum gjöldum til sam-
félagsins og greiði svört laun. Þetta
séu fyrirfram skipulögð félagsleg
undirboð og skattsvik. Stundum sé
um að ræða keðjur undirverktaka
sem allar vinna sama verkið. Fyrir-
tækið skili engum vaski og þegar
það fer að hitna undir því skipti það
um kennitölu en haldi uppteknum
hætti.
Sigurður Jensson segir að þetta
sé í raun skipulögð glæpastarfsemi
þar sem fámennur hópur íslenskra
manna ræður ferðinni. Það sé alveg
ljóst þegar boðið sé í sum verk að
ætlunin sé ekki að borga gjöld af
rekstrinum. Hann segir enga laun-
ung á því að löggjafinn þurfi að
herða kröfurnar í þessum efnum,
Það er aumt til að
vita að stórfyrirtæki
á Íslandi, fjárfest-
ingafélög og aðrir
sem nýta sér þessar
glufur í íslensku
skattakerfi séu svo
andfélagslega sinnuð
sem raun ber vitni.
Finnbjörn Hermannsson
formaður Byggiðnar.
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Erasmus+
opnar dyr að nýrri þekkingu
Rannís og Landskrifstofa Erasmus+ mennta- og æskulýðsáætlunar ESB (menntahluti)
auglýsa eftir umsóknum um fjölþjóðleg samstarfsverkefni.
Umsóknarfrestur rennur út 31. mars 2016 kl. 10.00 árdegis.
Samstarfsverkefni eru fjölþjóðleg verkefni sem vara í 24-36 mánuði og stuðla að
nýsköpun í menntun á ólíkum skólastigum og yfirfærslu þekkingar og reynslu á milli
Evrópulanda (minnst þrjú samstarfslönd).
Þriðjudaginn 8. mars frá kl. 13.00-17.00 leiðir skoski sérfræðingurinn Paul Guest
námskeið um þróun hugmynda að samstarfsverkefnum. Námskeiðið verður í
húsakynnum Rannís Borgartúni 30. Þátttaka er takmörkuð og áhugasamir þurfa að skila
inn hugmynd að verkefni og skrá sig á www.erasmusplus.is
Nánari upplýsingar um Erasmus+ áætlunina, samstarfsverkefni og forgangsatriði
fyrir hvert skólastig er að finna á www.erasmusplus.is
Atvinnulíf Fámennur hópur stundar skipulagða glæpastarfsemi
Vafasamir undirverktakar
í byggingabransanum
Stundum er um að ræða keðjur undirverktaka sem allar
vinna sama verkið. Fyrirtækið skilar þá engum vaski og
þegar það fer að hitna undir því skiptir það um kennitölu.
bæði hvað varðar kennitöluflakk
og aðgang að virðisaukanúmeri og
ábyrgð yfirverktaka á undirverktök-
um. Núverandi fyrirkomulag bjóði
hættunni heim.
En það er ekki bara verið að ræna
sköttum og gjöldum. Það er oft
verið að ræna kaupi verkafólksins
sem vinnur störfin, það er oftast að
fá miklu lægri laun en því ber og
stundum býr það við óviðunandi
aðstæður sem það þarf að greiða
vinnuveitendum sínum fyrir.
Of róttækt frumvarp?
Karl Garðarsson, þingmaður Fram-
sóknarflokks, hefur lagt fram frum-
varp um kennitöluflakk. Þar eru
lagðar til breytingar á lögum um
hlutafélög og einkahlutafélög þess
efnis að stjórnendur megi ekki hafa
verið í forsvari fyrir tvö eða fleiri
gjaldþrota fyrirtæki á þriggja ára
tímabili. Ragnheiður Elín Árna-
dóttir iðnaðar og viðskiptaráðherra
sagði við Ríkisútvarpið af því tilefni
að hún styddi ekki frumvarpið, það
væri of íþyngjandi fyrir nýsköpun.
Staðið hefur til í nokkur ár að ráðu-
neytið sjálft kæmi fram með frum-
varp um málið en það hefur ekki
enn litið dagsins ljós.
Finnbjörn Hermannsson segir
að það sé lítil nýsköpun fólgin í
kennitöluflakki enda sé það síður
en svo nýtt af nálinni. Þarna sé ein-
ungis um að ræða skipulagða brota-
starfsemi og aumt að ríkisvaldið
vilji ekki ráða bót á því.
„Það er aumt til að vita að stór-
fyrirtæki á Íslandi, fjárfestinga-
félög og aðrir sem nýta sér þessar
glufur í íslensku skattakerfi séu svo
andfélagslega sinnuð sem raun ber
vitni,“ segir Finnbjörn Hermanns-
son, ómyrkur í máli. „Það er ekki
mikil samfélagsleg ábyrgð í slíkri
hegðun. Með þessum hætti er ver-
ið að grafa undan launum okkar
félagsmanna. Iðnlöggjöfin og fag-
réttindi eru fótum troðin af þessum
fyrirtækjum og miklar líkur eru á
að þessum starfsmönnum séu ekki
greidd þau laun sem þeim ber.”
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfir-
lögfræðingur hjá Lögreglustjór-
anum á höfuðborgarsvæðinu.
Mynd | Rut
18 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016