Fréttatíminn - 26.02.2016, Qupperneq 44
Heil og sæl, kæra móðir og hjartans
þakkir fyrir bréfið þitt.
Mér sýnist þú eiga öflugan strák
sem glímir við vanda í samskiptum
og hegðun bæði heima og heiman.
Slíkt er ekkert einsdæmi fyrir
fjögurra og hálfs árs strák, fæddan
fremur seint í árinu sem vinnur ekki
með honum. Að auki er kynjamunur
þekktur á þessum aldri þar sem
drengir eru seinni en stúlkur hvað
varðar félagsþroska, fínhreyfingar
og úthald og fleira. Því passa margir
drengir ekki í box skólakerfisins
þegar þeir kjósa hreyfingu og frelsi
fremur en rólegheit í föndri og
annarri handavinnu. Þar er ekki við
drengina að sakast heldur box sem
henta þeim ekki.
Hvenær er vandi á höndum?
En – drengurinn þinn er á mikil-
vægu aldursskeiði fyrir hegð-
unarmótun og tímabært að meta
stöðuna. Stefnir hann í jákvæða
þroskaátt eða stefnir hann í hegð-
unarvanda? Öll börn geta verið erfið
en aðvörunarljós kvikna ef barn
er mjög hvatvíst og ofsafengið, í
miklum mótþróa og óhlýðni, meiðir
aðra og skemmir hluti og heimtar
stöðuga athygli. Þarna er hreinskipt-
ið samtal við leikskólann best – eins
og þú hefur gert. Miðlið áfram upp-
lýsingum til að meta málin og skoðið
líka hvort hægt sé að breyta aðstæð-
um, heima eða í leikskólanum, til að
auðvelda honum lífið. Leikskólinn
er líka fyrsti aðilinn til að meta með
foreldrum hvort inngrip eins og sál-
fræðingsmat geti gagnast. Það er
sjálfsagt að þiggja slíkt og engu að
tapa. Greining er góð leið sem eykur
skilning allra á þörfum barnsins og
hjálpar með næstu skref.
Hann ræður ekki við sig
En það er að sjálfsagt herða upp-
eldisróðurinn. Mundu að samtöl
og áminningarræður fara inn um
annað eyrað og jafnfljótt út um
hitt hjá börnum á þessum aldri
og loforð um betri hegðun
fýkur út í buskann. Samt vilja
öll börn vera „góð“ eins og við
segjum og þinn drengur er fullur
vilja en vanmáttugur með eigin sjálf-
stjórn. Þess vegna gerir þú best með
að taka stjórnina af honum áður en
hann missir sig og klúðrar öllu sam-
an – slíkt staðfestir bara að hann sé
ómögulegur. Láttu honum ganga vel
með að stýra og leiða hann í erfiðu
aðstæðunum.
Hrós og nálægð
Hann þarf á því að halda að takast
vel til og fá hrós og athygli frá þér og
umhverfinu fyrir vikið. Til dæmis
getur þú verið með þeim systkinum
í leik til að geta hrósað honum oft
og vel fyrir frábæra hegðun – en
haldið þeim í sundur ef þú ert ekki
í nágrenninu. Vertu líka nálægt
þegar hann er með vin eða frænkur
hjá sér og gríptu inn ef þú skynjar
að eitthvað sé að fara illa. Hjálpaðu
honum að finna dót sem hann vill
leyfa öðrum að leika með eða dót
sem virkar vel í samleik. Ef hann vill
fremur vera einn, skaltu ekki gagn-
rýna hann fyrir það. Bæði börn og
fullorðnir eru misfélagslynd og það
er allt í lagi.
Margt smátt hjálpar
Svo eru það smáatriðin sem þú get-
ur líka stjórnað. Hann þarf reglu og
rútínu á heimilinu og kærleiksríka
athygli þegar allt gengur vel. Hann
þarf nægan svefn, hollan mat og
breyting á mataræði hefur hjálpað
mörgum börnum mikið. Hreyfing
utandyra og bað fyrir svefninn
hjálpar mörgum.
Þér dettur örugglega margt fleira
í hug, kæra móðir og gangi þér og
ykkur í fjölskyldunni allt í haginn.
Þín Magga Pála
Uppeldisáhöldin
Magga Pála gefur foreldrum
ráð um uppeldi stúlkna
og drengja milli 0 og 10 ára.
Sendið Möggu Pálu ykkar
vandmál á netfangið.
maggapala@frettatiminn.is
Erfitt að vera
drengur…
Ég er með lítinn, góðan og ljúfan dreng, 4,5 ára, sem er mjög skýr
og duglegur strákur. Hann á erfitt með sig þegar hann er með
öðrum börnum… sama hvort hann er heima að leika með einum
strák, með frænkum sínum eða í leikskólanum. Hann aðlagast
þeim ekki, vill stjórna og getur breyst í lítið skrímsli sem meiðir
hina krakkana. Ég reyni að tala við hann en þá er eins og hann
detti í annan gír, eins og þær segja í leikskólanum.
Hann meiðir líka litlu systur sína, sem er 19 mánaða, sem honum
þykir rosalega vænt um en það er ekki eingöngu afbrýðisemi…
var áður alveg eins í skapinu. Mig langar að taka í taumana núna
þar sem eldri börnin mín virðast frekar félagsfælin en félagslynd.
Hvernig get ég kennt honum að leika sér fallega og vera góður við
vini sína. Það er ekki alltaf auðvelt að vera drengur sem vill bara
vera úti að hjóla eða í boltaleik en á að vera inni að föndra enda
kann hann varla að teikna Óla prik ennþá.
Mynd | NordicPhotos/Getty
Snuran.is - Síðumúla 21 - sími 537 5101 - snuran@snuran.is
Woud - Stedge hilla
verð frá 49.900 kr
Woud - bekkur
109.900 kr
Nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara á imark.is
Lúðurinn
Fordrykkur kl. 17.
Verðlaunaafhending kl. 18.
Almennt verð: 6.900 kr.
ÍMARK-félagar: 4.900 kr.
ÍMARK-dagurinn
kl. 9–16 (húsið opnar kl. 8.15).
Kaffiveitingar og hádegisverður.
Almennt verð: 47.900 kr.
ÍMARK-félagar: 35.900 kr.
ÍMARK-dagurinn
& Lúðurinn
Almennt verð: 51.800 kr.
ÍMARK-félagar: 38.800 kr.
ÍMARK-dagurinn 4. mars 2016
Markaðs- The
setning marketing
morgun- of
dagsins tomorrow
Háskólabíó kl 9-16
húsið opnar kl. 8.15
Miðasala á midi.is
Á ÍMARK-deginum gefst einstakt tækifæri til að heyra allt
um markaðssetningu morgundagsins frá helstu sérfræð-
ingum heims.
fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016