Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 26.02.2016, Side 84

Fréttatíminn - 26.02.2016, Side 84
Fermingargjafir fyrir stráka og stelpur Mikið úrval af gjafavöru fyrir dömur og herra · Töskur · Hanskar · Seðlaveski · Ferðatöskur · Tölvutöskur · Belti · Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta Léttar ferðatöskur Kortaveski úr leðri frá kr. 4.700. Nafngylling kr. 1100. Tru virtu ál kortahulstur. Kr. 7500,- Kemur í veg fyrir skönnun á kortaupplýsingum. Skartgripaskrín- Lífstíðareign Sjá ítarlegar upplýsingar á www.drangey.is ® Freyja Stígsdóttir er nemandi í 8. bekk í Austur- bæjarskóla. Þann 24. apríl ætlar hún að fermast borgaralega á vegum lífsskoðunarfélagsins Siðmenntar. Hún hefur ekki hugmynd um það í hverju hún ætlar að vera á fermingardaginn en er þó búin að ákveða að vera í strigaskóm. Freyja vann silfur á Íslandsmeistara- mótinu í karate um síðustu helgi og hefur tvisvar áður unnið sér inn gull. Katrín Bessadóttir katrin@frettatiminn.is Það koma engar vöflur á Freyju þegar hún er spurð að því hvers vegna hún ætlar ekki að fermast í kirkju. „Fyrst og fremst af því að ég trúi ekki á guð og mig langar frekar að læra um gagnlega hluti fyrir framtíðina heldur en hluti sem ég trúi ekki á. Við erum reyndar ekki búin að gera neitt mjög merkilegt en ég vona að við gerum eitthvað meira seinna. Við erum bara búin að fara í leiki og fá einhverja fræðslu,“ segir Freyja og nefnir í því samhengi að lögreglan hafi komið með fræðslu um það hvernig embættið tekur á smygl- urum og hvernig fíkniefnahundar starfa. „Þetta var mjög skemmti- legt en ég veit ekki alveg hvað við áttum að græða á þessu.“ Hún tekur þó fram að hún sé bjartsýn um að fræðslan muni nýtast henni vel enda margir tímar eftir áður en fermingin fer fram. Sumir ætla ekki að fermast Í árganginum hennar Freyju eru tveir bekkir og það vill svo til að flestir í hennar bekk ætla að fermast borgaralega en í hinum bekknum fermast flestir í kirkju. Svo eru það sumir sem ætla bara alls ekki að fermast. „Ég á til dæmis þrjár vinkonur sem ætla ekki að fermast. Ein á ekki svo stóra fjölskyldu hér á landi og aðra langar bara ekki neitt að fermast,“ segir Freyja og útskýrir að ein þeirra sem hafi ákveðið að fermast ekki fái til dæmis tölvu í staðinn. Að öðru leyti sé hópurinn ekki að ræða ferminguna að neinu marki – hún sjálf sé þó á leiðinni með mömmu sinni til New York í haust, sem verður fermingargjöfin frá foreldrunum. „Við höfum ætlað að fara lengi og ákváðum að nýta þetta tækifæri.“ Ætla að vera í strigaskóm Freyja segir vinahópinn ekki vera mikið að velta sér upp úr ferm- ingunni, enn sem komið er, en einhverjar vinkvennanna séu þó farnar að spá í því í hverju þær ætla að vera. „Ég er ekki búin að ákveða það, er ekkert að pæla í því, á örugglega eftir að finna eitt- hvað alltof seint. Það eina sem ég veit að ég ætla ekki að vera á háhæluðum skóm,“ segir Freyja sem er ákveðin í því að fermast í strigaskóm. Æfir 4 sinnum í viku Þegar Freyja var 11 ára ákvað hún að prófa að mæta á karateæfingu og hefur æft íþróttina af kappi síðan. „Ég hætti að æfa sund, var komin með leiða á því og langaði að æfa aðra íþrótt. Ég og tvær vin- konur mínar ákváðum að prófa og mér fannst þetta strax ógeðslega skemmtilegt. Mörgum vinkonum mínum finnst þetta asnaleg íþrótt en mér er alveg sama.“ Hún æfir 4 sinnum í viku og er til dæmis á tvöfaldri æfingu einu sinni í viku með hópi sem var sérstaklega val- inn til þess að æfa meira. Tvö gull og eitt silfur Karate skiptist í kata og kumite, útskýrir Freyja, en hún hefur lagt meiri áherslu á kata sem er í raun bardagakerfið sem karate bygg- ist á og snýst um stöðu og ein- beitingu. „Kata er eiginlega sýning en í kumite ertu að berjast. Ég er ekki ennþá orðin neitt sérlega góð í kumite, ég er bara ekki tilbúin.“ Freyja hefur unnið sér inn tvo Ís- landsmeistaratitla í kata og vann silfur um síðustu helgi í æsispenn- andi lokaviðureign. Komin með bláa beltið Karate snýst að miklu leyti um að vinna sér inn ný belti og það þarf virkilega að leggja mikið á sig til þess að vinna sig upp, stundum þarf að taka sama prófið oft til þess að fá hærra belti. Freyja er núna með bláa beltið sem er númer fimm í röðinni. Það þykir víst nokkuð gott en hún er hvergi nærri hætt og getur hugsað sér að halda áfram næstu árin. „Ég get reyndar ímyndað mér að þegar ég verð komin í menntaskóla þurfi ég að einbeita mér að náminu svo ég hef kannski minni tíma en ég get samt ekki hugsað mér að hætta.“ Í strigaskóm á fermingar daginn Myndir | Hari Freyja Stígsdóttir fermir sig borgaralega í vor en flestir í hennar bekk í Austurbæjarskóla ætla að ferma sig borgaralega. Ég trúi ekki á guð og mig langar frekar að læra um gagnlega hluti fyrir framtíðina heldur en hluti sem ég trúi ekki á. 12 | fréttatíminn | Helgin 26. febrúar–28. febrúar 2016 Fermingar

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.