Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2016, Blaðsíða 20

Læknablaðið - 01.07.2016, Blaðsíða 20
336 LÆKNAblaðið 2016/102 R A N N S Ó K N yfirþyngd er hættan tæplega þreföld borið saman við karla í kjör- þyngd. Möguleg ástæða fyrir því gæti verið neikvæð umræða um yfirþyngd og offitu í samfélaginu,26-28 þar sem ekki er gerður greinarmunur á neikvæðum afleiðingum á heilsuna eftir því hvort fólk flokkist í yfirþyngd eða offitu, þrátt fyrir að rannsóknir sýni að það að vera í yfirþyngd sé ekki jafn slæmt fyrir heilsuna og það að vera í offitu.2, 29 Ástæðan fyrir því að fólk er ósátt við eigin líkamsþyngd gæti hugsanlega verið tengd fyrri reynslu af megrunarkúrum.13 Margir telja sig geta öðlast ákjósanlegan líkama og heilbrigði ef þeim tekst að fylgja slíkum kúr, en ef þeir ná ekki árangri getur það ýtt undir hamlandi fæðuviðhorf og viðhaldið ósætti við eigin þyngd. Í okkar rannsókn var ekki skoðað hvort viðkomandi hefði farið í megrun, og þá hve oft, en slíkar upplýsingar eru fyrir hendi í seinni rann- sóknum um Heilsu og líðan Íslendinga og gætu þær varpað ljósi á þetta atriði. Loks vekur athygli að rúmur helmingur fólks telur sig þurfa að hafa stjórn á því hvað það borðar. Að sama skapi eru eingöngu 9% hræddir um að geta ekki hætt að borða þegar þeir byrja á annað borð. Þrátt fyrir að hér sé að nokkru leyti spurt um svipað viðhorf er samt sem áður mikill munur á svörunum. Leiða má að því líkur að svörin endurspegli samfélagslegan þrýsting þess efnis að fólk beri ábyrgð á eigin heilsu og þurfi þar af leiðandi að hafa stjórn á eigin lífi og neyslu.30 Helsti styrkur rannsóknarinnar felst í fjölmennum rannsókn- arhópi úr lýðgrunduðu þýði úr breiðum aldurshópi landsmanna. Niðurstöðurnar geta því gefið innsýn inn í líðan og heilsu þjóðar- innar og geta þannig nýst til forvarna. Höfundar rannsóknarinnar skoðuðu einnig algengi hamlandi fæðuviðhorfs í samsvarandi könnun sem var framkvæmd árið 2009 og þar sást sama hlutfall meðal þátttakenda (gögn ekki birt) og kom fram í þessari rann- sókn. Það skal tekið fram að í rannsókninni var ekki notast við staðl- aðan mælikvarða á hamlandi fæðuviðhorf, heldur voru bæði spurningarnar og sjálfur mælikvarðinn útbúnir af höfundum. Getur það talist takmörkun á rannsókninni, en á móti kemur að hér var ekki leitast við að finna fólk með átraskanir, heldur viðhorf í almennu þýði. Fólk getur skilið spurningar um mataræði á mis- munandi vegu og getur það haft einhver áhrif á svörin. Eins getur fólk gefið upp ranga eða skekkta mynd af eigin þyngd eða hæð, en rannsóknir hafa sýnt að fólk með hærri líkamsþyngdarstuðul vanmetur þyngd sína fremur en þeir sem eru með lægri líkams- þyngdarstuðul.31 Eins hefði mátt skoða fleiri atriði sem tengjast hamlandi fæðuviðhorfum. Þrátt fyrir að fæðuvenjur og tíðni megrunar hafi verið könnuð hérlendis, skortir fleiri rannsóknir á hamlandi fæðuviðhorfum og viðhorfum almennt í tengslum við mataræði.32 Algengt er að rannsóknir sem tengjast efninu beinist að nemendum í skólum Tafla IV. Gagnlíkindahlutfall (OR) fyrir hamlandi fæðuviðhorf hjá körlum (N=2573). Karlar (%) „já“ (%) OR OR1 Aldursflokkar 18-29 327 49 (15,0) 2,54 (1,56-4,15) 3,77 (2,03-7,00) 30-39 382 53 (13,9) 2,32 (1,44-3,76) 2,62 (1,44-4,78) 40-49 428 57 (13,3) 2,22 (1,38-3,56) 1,94 (1,06-3,55) 50-59 490 58 (11,8) 1,94 (1,21-3,10) 1,93 (1,06-3,50= 60-69 514 45 (8,8) 1,38 (0,85-2,26) 1,44 (0,78-2,68) 70+ 432 28 (6,9) 1,00 1,00 Hjúskaparstaða Einhleypur eða fráskilinn/ekkill 456 60 (13,2) 1,25 (0,92-1,69) 1,28 (0,89-1,84) Í föstu sambandi en ekki sambúð, í sambúð, giftur 2104 228 (10,8) 1,00 1,00 Menntun Grunnskóli 860 96 (11,2) 1,00 1,00 Framhaldsnám 819 87 (10,6) 0,95 (0,70-1,29) 0,94 (0,68-1,31) Háskóli 430 64 (14,9) 1,39 (0,99-1,96) 1,41 (0,97-2,03) Líkamsþyngdarstuðull ≤18,5-24,9 749 35 (4,7) 1,00 1,00 25-29,9 1254 129 (10,3) 2,34 (1,59-3,44) 2,66 (1,74-4,05) ≥30 512 116 (22,7) 5,98 (4,02-8,89) 7,14 (4,60-11,10) Sátt við eigin líkamsþyngd Sáttur við eigin líkamsþyngd 1666 90 (5,4) 1,00 1,00 Ósáttur við eigin líkamsþyngd 882 198 (22,4) 5,07 (3,89-6,61) 3,55 (2,53-4,99) Heildarfjöldi með hamlandi fæðuviðhorf 290 (11,3) 1OR=gagnlíkindahlutfall. Leiðrétt fyrir aldri, hjúskaparstöðu, menntun og líkamsþyngdarstuðli. Ekki er leiðrétt fyrir þeirri breytu sem er til skoðunar hverju sinni. „Já“= fjöldi og prósentuhlutfall þeirra sem eru með hamlandi fæðuviðhorf.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.