Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.2016, Qupperneq 29

Læknablaðið - 01.07.2016, Qupperneq 29
LÆKNAblaðið 2016/102 345 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R veðurs eða vegalengdar. Síðan héldum við nákvæmar skýrslur um hvert útkall og fórum vandlega yfir alla þætti eftir á til að læra sem mest af hverju útkalli. Við nutum þess að sjálfsögðu hvað áhöfn þyrlunnar var vel þjálfuð og skipulögð í vinnubrögð- um og lærðum mikið af þeim, bæði á æf- ingum og í útköllunum sjálfum. Samhliða þessu voru við stöðugt að nudda í fjárveitinganefnd og þingmönnum og fengum Sjómannasambandið og fleiri í lið með okkur því þeir gerðu sér fulla grein fyrir mikilvægi þyrluvaktarinnar. Ýmsir þingmenn tóku þetta mál upp en það reyndist furðulega þungt fyrir fæti að fá fjárveitingu fyrir þessu starfi. Um sum- arið fórum við hringferð um landið með þyrlunni og kynntum starf þyrluvaktar- innar fyrir heimamönnum á hverjum stað. Það mæltist mjög vel fyrir og allir gerðu sér grein fyrir því að þetta skipti máli. Það sem réði svo úrslitum um að fjárveiting fékkst var slys úti á landi þar sem náinn ættingi eins stjórnmálamanns slasaðist og það var alveg ljóst að þyrluvaktin og læknirinn um borð höfðu bjargað lífi við- komandi. Til að gera langa sögu stutta komst þyrluvaktin inn á fjárlög næsta árs, 1987, og hefur verið þar síðan. Þetta hefur auð- vitað þróast í gegnum árin og er löngu komið í mjög fastar og öruggar skorður og enginn efast lengur um mikilvægi þess að hafa lækni um borð í þyrlunni þegar farið er í útköll vegna slysa langt út á land eða haf.“ „Þyrluvakt lækna á sér talsvert langa forsögu en um miðjan 8. áratuginn var hópur lækna sem reyndi að gera eitt- hvað svipað og við gerðum áratug síðar. Hvers vegna það rann út í sandinn veit ég satt að segja ekki,“ segir Jón Baldursson bráðalæknir en hann vísar hér til þess að í kjölfar ráðstefnu sem Rauði Kross Íslands efndi til í nóvember 1973 um sjúkraflug á Íslandi kom sú hugmynd fram hjá stjórn Læknafélags Reykjavíkur að kanna hvort unnt væri að koma á fót læknavakt fyrir sjúkraflug. Segir í bréfi sem stjórn LR sendi félagsmönnum um þetta efni að rætt hafi verið við ráðuneytisstjóra heil- brigðisráðuneytisins vegna hugsanlegrar þátttöku hins opinbera við greiðslu vinnu- launa lækna vegna sjúkraflugsins. Voru undirtektir sagðar jákvæðar en ekkert varð úr efndunum. Formleg vakt lækna vegna sjúkraflugs beið í 12 ár þó vissulega hafi læknar farið í sjúkraflug með flugvélum og þyrlum á þessum árum eftir því sem þurfa þótti og tök voru á. Tilraunaverkefni í upphafi „Þegar við félagarnir fórum að undirbúa stofnun þyrluvaktarinnar hafði ég verið sveitarforingi Hjálparsveitar skáta tæp tvö ár og hafði farið í leitar- og björgunarflug með Landhelgisgæslunni, meðal annars um hvítasunnuna 1985. Þetta var með leiguvél en gæslan var enn að jafna sig eft- ir þyrluslysið í Jökulfjörðunum 1983 þegar TF Rán fórst með nokkra af reyndustu þyrlumönnum Gæslunnar. En ég átti síðar þetta sama ár samtöl við Pál Halldórsson flugstjóra um samstarf Gæslunnar og Hjálparsveitarinnar og snemma árs 1986 barst þetta í tal okkar í milli hvort ekki væri hægt að fá lækna af Borgarspítalan- um til að vera til taks þegar þyrlan væri kölluð út. Áður hafði Gæslan einfaldlega reynt að grípa þann lækni sem var á „Eftir þetta sumar velktumst við ekki lengur í vafa um þörfina á læknavakt við þyrluna og fórum þá að róa að því öllum árum að fá vaktina setta formlega upp,“ segir Jón Baldursson. „Það sem réði svo úrslitum um að fjárveiting fékkst var slys úti á landi þar sem náinn ættingi eins stjórnmálamanns slasaðist og það var alveg ljóst að þyrluvaktin og lækn- irinn um borð höfðu bjargað lífi viðkomandi,“ segir Guðmundur Björnsson.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.