Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.07.2016, Page 32

Læknablaðið - 01.07.2016, Page 32
348 LÆKNAblaðið 2016/102 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Norræna verkjafræðifélagið (Scandin- avian Association for the Study of Pain, SASP) hélt sitt fertugasta þing hér á landi í maí síðastliðnum. Sigríður Zoëga hjúkrunarfræðingur er nýkjörinn forseti félagsins en hún starfar í verkjateymi Landspítalans auk þess sem hún er lektor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. „Félagið hefur verið starfrækt um langa hríð en Íslendingar urðu þátttakendur árið 1996 og eiga tvo fulltrúa í stjórn. Tilgang- ur félagsins er að stuðla að rannsóknum á verkjum og verkjameðferð og að skapa vettvang þar sem rannsakendur og fagfólk sem vinnur við að meðhöndla fólk með verki hittist og deilir þekkingu,“ segir Sigríður. Hún segir að þema þingsins að þessu sinni hafi tekið nokkuð mið af því að hér á Íslandi eru tiltölulega fáir sem stunda rannsóknir á verkjum en fleiri sem með- höndla fólk með verki og höfðu því meira gagn af fræðslu um meðhöndlun verkja. „Við völdum því að hafa klínískari áhersl- ur en oft hefur verið á þingum samtak- anna.“ Fjölsótt þing með þekktum fyrirlesurum Þingið sátu tæplega 200 manns sem er mjög góð þátttaka að sögn Sigríðar og fyrirlesarar voru frá öllum skandínavísku löndunum, auk Kanada og Bandaríkj- anna. Fyrirlestrarnir byggðust á fjórum meginþemum og var meðal annars fjallað um erfðafræði verkja en rannsóknir á því sviði eiga vonandi eftir að skila okkur betri skilningi og meðferðarmöguleikum í framtíðinni. Þá var fjallað um að takast á við verki, og einnig var sérstaklega fjallað um liðverki því núna stendur yfir Ár liðverkja hjá alþjóðasamtökum um verkjarannsóknir, og loks var fjallað nokkuð um áhættuþætti við þróun bráðaverkja í langvinna verki. Þarna kom margt mjög áhugavert fram og má nefna að einn fyrirlestur fjallaði um nýjar rannsóknir sem sýna fram á gagnsemi dáleiðslu við meðhöndlun verkja en auk þess sem dáleiðsla virkar ein og sér er hægt að bæta meðhöndlun verkja ef dáleiðslan er notuð samhliða annarri meðferð. Einnig var fjallað um notkun ópíóíða við verkjum og þar var bæði talað um langvinna verki og krabbameinsverki. Í Bandaríkjunum er mikil umræða um notkun ópíóíðaskyldra lyfja en þar hafa komið upp allmörg tilfelli þar sem sjúklingar hafa látist úr ofskömmt- un slíkra lyfja. Það kom skýrt fram í fyrirlestrum að okkur vantar rannsóknir á langtímaáhrifum þessara lyfja, það er margt sem enn er á huldu. Að sjálfsögðu vitum við að þessi lyf hafa margvísleg áhrif á sjúklinga ef þau eru tekin í stórum skömmtum til langs tíma, og þá er ég ekki að tala um fíkn og misnotkun slíkra lyfja sem einnig er vel þekkt. Við þurfum hins vegar frekari rannsóknir á gagnsemi lyfjanna við langtímameðferð og sértæk- um langtímaáhrifum þeirra á sjúklinga. Í sumum tilfellum er sjálfsagt að nota ópíóíðskyld lyf, auk annarra meðferðar- úrræða, til að mynda ef verkirnir stafa af illkynja sjúkdómi eins og krabbameini, en nálgun í meðferð langvinnra verkja sem eiga sér jafnvel óljósan uppruna er önnur. Þar er áherslan lögð á ráðleggingar um lífsstílsbreytingar, líkamlega þjálfun og sálræna meðferð fremur en notkun ópíóíðskyldra lyfja til að hjálpa fólki að lifa með verkjunum.“ Sigríður bendir þó á að meta þurfi hvert tilvik því það sé engin ein meðferð sem henti öllum, alltaf þurfi að taka tillit til einstaklingsins og skoða hvaða úrræði gagnist viðkomandi. Nota þarf fjölþættar leiðir til að meðhöndla verki og ekki má gleyma því að auðvitað eru fleiri lyf en ópíóíðar notuð við meðferð verkja, oft með ágætum árangri. Sigríður segir reyndar að það sé alls ekki ráðlagt í þessum fræðum að segja við fólk að það verði einfaldlega að sætta sig við verkina og læra að lifa með þeim. „Það er ekki rétta leiðin heldur þarf að hjálpa sjúklingum að finna leiðir þannig að hann hafi aukna stjórn og að lífið verið bærilegra fyrir viðkomandi. Þá fjallaði sænskur rannsakandi um sértæk áhrif sjálfsmótefna á liðverki sem hugsanlega má nýta til að þróa nýjar leiðir í meðferð slíkra verkja.“ Einn af fyrirlesurunum fjallaði um kulnun í starfi þeirra sem fást við með- höndlun verkja en að sögn Sigríðar tekur oft tíma að sjá árangur af starfinu auk þess sem skrefin eru lítil sem tekin eru. „Þetta var þarfur fyrirlestur og gagnast eflaust flestum sem fást við langvinna sjúkdóma þar sem lækning er ekki möguleg heldur eingöngu verið að draga úr einkennum.“ Þörfin er mjög mikil Sigríður segir að meðferð við verkjum byggist fyrst og fremst á þverfaglegri nálgun. „Verkjateymi Landspítalans er samsett af þremur svæfingalæknum sem allir eru með sérmenntun í verkjameðferð, við erum tveir hjúkrunarfræðingar í einni Frá mólekúli til mannsins í heild Sigríður Zoëga um verkjateymi Landspítala ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.