Læknablaðið - 01.07.2016, Page 35
LÆKNAblaðið 2016/102 351
L Ö G F R Æ Ð I 1 9 . P I S T I L L
Læknar eru hvattir til að koma ábendingum
um efni á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
Dogg@lis.is
Heilbrigðisþjónusta
yfir landamæri
Hinn 1. júní síðastliðinn gengu í gildi lög
nr. 13/2016 um breytingu á lögum um
sjúkratryggingar nr. 112/2008 sem fela í
sér rétt sjúklinga sem sjúkratryggðir eru á
Íslandi varðandi heilbrigðisþjónustu yfir
landamæri. Með lagabreytingunni eru
innleiddar í íslenskan rétt tvær tilskipanir
Evrópusambandsins (ESB) frá 2011 og 2012
um þetta efni.1
Með tilskipuninni frá 2011 eru lögfest
ýmis réttindi innan ESB sem hafa verið
viðurkennd í dómum Evrópudómstóls-
ins og varða heilbrigðisþjónustu yfir
landamæri, ekki síst endurgreiðslu fyrir
heilbrigðisþjónustu sem veitt er í öðru
aðildarríki en búseturíki viðtakanda
þjónustunnar. Markmið tilskipunarinnar
er að greiða fyrir aðgengi að öruggri há-
gæðaheilbrigðisþjónustu yfir landamæri,
tryggja frjálst flæði sjúklinga innan ESB
og stuðla að samvinnu um heilbrigðisþjón-
ustu á milli aðildarríkja, að teknu tilliti til
valdheimilda aðildarríkjanna til að skipu-
leggja og veita sína eigin heilbrigðisþjón-
ustu. Tilskipunin gildir um sjúklinga sem
ákveða að nýta sér heilbrigðisþjónustu í
öðru aðildarríki en því ríki sem þeir eru
sjúkratryggðir í en henni er ekki ætlað að
leiða til þess að sjúklingar séu hvattir til að
leita sér meðferðar erlendis. Tilskipuninni
er hins vegar ætlað að tryggja rétt sjúkra-
tryggðra til frjálsrar farar milli aðildarríkja
til að sækja sér heilbrigðisþjónustu með
þeim takmörkunum sem hvert ríki fyrir
sig setur.
Lögð er áhersla á það að sjúkratryggð-
ur fái alltaf endurgreiddan raunkostnað
heilbrigðisþjónustunnar, en aðeins að
því marki sem greitt er fyrir þjónustuna í
því ríki þar sem hann er sjúkratryggður.
Með því er tryggt að sjúkratryggður hefur
aldrei fjárhagslegan ávinning af því að
sækja sér heilbrigðisþjónustu til annars
aðildarríkis. Tilskipuninni er ekki ætlað
að hafa áhrif á rétt tryggðra einstaklinga
til endurgreiðslu kostnaðar við heilbrigðis-
þjónustu sem verður nauðsynleg af lækn-
isfræðilegum ástæðum við tímabundna
dvöl í öðru aðildarríki samkvæmt reglu-
gerð (ESB) nr. 883/20042 og skal þannig
ekki svipta sjúklinga hagstæðari réttind-
um sem tryggð eru með fyrrgreindri
reglugerð.
Tilskipunin tekur ekki til þjónustu sem
fyrst og fremst er stuðningur við þá sem
þarfnast aðstoðar við venjubundin, dagleg
verk, það er athafnir daglegs lífs. Er hér til
dæmis átt við langtímaumönnun aldraðra,
heimahjúkrun eða aðstoð í þjónustuíbúð-
um. Tilskipunin gildir auk þess ekki um
líffæraígræðslur og bólusetningar almenn-
ings gegn smitsjúkdómum sökum sérstaks
eðlis þeirra.
Heilbrigðisráðherra hefur vegna fram-
angreindrar lagabreytingar sett reglugerð
nr. 484/2016 sem einnig gekk í gildi í byrj-
un júní. Þar kemur fram sú meginregla
að sjúklingur þarf ekki að sækja um sam-
þykki fyrir að sækja sér heilbrigðisþjón-
ustu í EES-landi (Evrópska efnahagssvæð-
ið) áður en þjónustan er veitt. Frá þessu
eru þó undantekningar sem fram koma í 9.
gr. reglugerðarinnar. Undantekningarnar
eru: 1) Þegar meðferðin krefst innlagnar
á sjúkrahús í að minnsta kosti eina nótt
eða óslitinnar meðferðar í meira en sólar-
hring, 2) þegar meðferð felur í sér sérstaka
áhættu fyrir sjúkling eða almenning, 3)
þegar tilefni er til að efast um gæði þjón-
ustunnar sem sótt er.
Þó meginreglan sé sú að Sjúkra-
tryggingar skulu endurgreiða sjúkra-
tryggðum kostnað vegna heilbrigðisþjón-
ustu sem hann hefur sótt í EES-landi er
stofnuninni engu að síður heimilt skv. 11.
gr. reglugerðarinnar að synja um endur-
greiðslu þegar: 1) hægt er að veita heil-
brigðisþjónustuna hér á landi innan tíma-
marka sem má réttlæta læknisfræðilega
þegar tekið er mið af heilsufars ástandi
sjúklings og líklegri framvindu sjúkdóms;
2) öryggi sjúklings eða almennings er
stefnt í hættu með heilbrigðisþjónust-
unni sem veitt var; 3) tilefni er til að efast
um að veitandi heilbrigðisþjónustu fylgi
lágmarkskröfum um gæði og öryggi. Í
reglugerðinni kemur ekki fram hvaða
viðmið verða notuð varðandi tímamörkin
varðandi bið. Þó Embætti landlæknis hafi
nýverið birt viðmið um biðtíma eftir heil-
brigðisþjónustu virðast þau ekki tengjast
ákvæðum reglugerðarinnar með neinum
hætti.3 Í viðmiðunum segir að sjúklingur
skuli komast í aðgerð eða meðferð hjá
sérfræðingi innan 90 daga frá greiningu.
Ekkert í reglugerðinni bendir þó til þess
að sjúklingur sem á slíka bið að baki geti
treyst því að hann fái endurgreitt fyrir að-
gerð eða meðferð sem hann þá ákveður að
sækja til EES-lands. Mat Sjúkratrygginga á
réttlætanlegum tímamörkum eftir meðferð
getur með öðrum orðum verið annað en
viðmið Embættis landlæknis.
Það sýnist því skynsamlegt fyrir sjúk-
linga sem vilja sækja sér heilbrigðisþjón-
ustu yfir landamæri og sem búnir eru
að bíða lengi hér á landi að fá fyrirfram
samþykki fyrir meðferðinni þótt þeim sé
það ekki skylt.
Í þessum nýju reglum felst mikilvæg
réttarbót fyrir þá sem vilja sækja heilbrigð-
isþjónustu til útlanda. Til slíks er þó ekki
hvatt sérstaklega því skýrt kemur fram
í reglugerðinni að ferðakostnaður eða
kostnaður vegna uppihalds sé ekki endur-
greiddur og þarf sjúkratryggður því alltaf
að standa sjálfur undir honum.
1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/24/ESB frá 9.
mars 2011 um réttindi sjúklinga varðandi heilbrigðisþjón-
ustu yfir landamæri og tilskipun framkvæmdastjórnar
2012/52/ESB frá 20. desember 2012 um ráðstafanir til að
auðvelda viðurkenningu á lyfseðlum sem eru gefnir út í
öðrum aðildarríkjum.
2. Tilskipunin var innleidd hér með reglugerð nr. 442/2012
um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um
almannatryggingar.
3. landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item29708/
Vidmidunarmork-um-bidtima-eftir-heilbrigdisthjonustu
- júní 2016.