Læknablaðið - 01.07.2016, Page 37
LÆKNAblaðið 2016/102 353
40 læknar í sérnámi
Skortur hefur verið á heimilislæknum undanfarin ár og því
hefur stjórn heilsugæslunnar og Félag íslenskra heimilis-
lækna lagt sérstaka áherslu á sérnámið með þeim árangri
að nú eru um 40 sérnámslæknar í heimilislæknasérnámi
og í haust verða væntanlega 19 sérfræðingar útskrifaðir
á heimilislæknaþingi. Að sögn Valþórs veitir ekki af þar
sem mikil þörf er á endurnýjun í stéttinni. „Námskeiðinu
hér var meðal annars ætlað að fjölga lærimeisturum á
heilsugæslustöðvum á landsbyggðinni svo sérnámslækn-
ar og kandídatar gætu hlotið þjálfun við ýmsar aðstæður.
Nýja reglugerðin kveður á um ákveðnar gæðakröfur, meðal
annars að heilsugæslustöðvar séu í stakk búnar að veita sér-
námslæknum tiltekna starfsþjálfun og að læknar sem ann-
ast leiðsögn sérnámslækna öðlist réttindi til kennslunnar.
Reglugerðin er að vissu leyti stefnumarkandi og það mun
væntanlega taka nokkur ár fyrir heilsugæsluna að aðlagast
auknum kröfum. Það hefur sýnt sig að námslæknar sem
koma til starfa á landsbyggðinni eru líklegri til að setjast þar
að en þeir sem hafa alið allan sinn aldur á stærstu þéttbýl-
isstöðunum. Engu að síður hefur uppbygging sérnámsins
átt sér stað í Reykjavík undir handleiðslu þeirra Ölmu Eirar
Svavarsdóttur kennslustjóra og prófessors Jóhanns Ágústs
Sigurðssonar en sannarlega hafa margir fleiri komið þar að
verki,“ segir Valþór Stefánsson.
Á Landspítala hefur sérgreinakennsla tekið miklum
stakkaskiptum á undanförnu ári með sérnám í
lyflækningum í fararbroddi þar sem ný marklýsing lá strax
fyrir síðastliðið haust og hefur verið kennt eftir henni í
vetur. Læknablaðið hefur í vetur kynnt sérnám í ýmsum
greinum og ljóst að á næstu misserum gefst unglæknum
kostur á fjölbreyttu framhaldsnámi hérlendis áður en þeir
halda utan til að fullnuma sig í viðkomandi sérgrein.
Prófessorinn og
kennslustjórinn á góðri
stund, Jóhann Ágúst
og Alma.