Læknablaðið - 01.07.2016, Side 41
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
LÆKNAblaðið 2016/102 357
Hjalti Már
Þórisson
röntgenlæknir
formaður FOSL
hjaltimt@landspitali.is
Fjölskyldu- og styrktarsjóður LÍ (FOSL)
varð til við kjarasamning sjúkrahúss- og
heilsugæslulækna árið 2001. Upphaf-
lega var hlutverk hans að jafna réttindi
í fæðingarorlofi miðað við fyrri lög sem
hafði þá nýlega verið breytt en sú breyting
olli talsverðri skerðingu á réttindum
félagsmanna í fæðingarorlofi. Þannig
má segja til einföldunar að FOSL hafi
upphaflega verið komið á laggirnar til að
veita fæðingarstyrki. Fljótlega eftir stofn-
un sjóðsins var hlutverk hans víkkað út
samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins og
til varð nokkurs konar félagslegur jöfn-
unarsjóður þar sem sjóðsfélagar geta sótt
um styrk vegna tekjumissis í tengslum við
veikindi, útfararstyrk og fæðingarstyrk.
Stjórn sjóðsins er skipuð af stjórn
Læknafélags Íslands og annast LÍ dag-
legan rekstur hans. Reglur sjóðsins og
ársskýrslur eru aðgengilegar á heimasíðu
LÍ (lis.is/Sjodir/FjolskylduOgStyrktar-
sjodirLI) en þar eru einnig umsóknir um
styrki. Réttindi öðlast allir þeir sem greiða
til sjóðsins en allur gangur virðist vera á
því hvort læknar átti sig á því að þeir eigi
réttindi hjá sjóðnum. Allir þeir læknar
sem þiggja laun beint frá hinu opinbera
greiða til FOSL. Þetta kemur að vísu ekki
fram á launaseðlinum og er það stund-
um uppspretta misskilnings. Greiðslur
til FOSL eru 0,41% af heildarlaunum en
samkvæmt kjarasamningum við ríkið er
sú greiðsla utan við eiginleg laun og kem-
ur því ekki fram á launaseðli. Þannig er
enginn vafi á því að ef læknir þiggur laun
frá hinu opinbera greiðir hann til FOSL og
öðlast réttindi hjá sjóðnum. Annað gildir
um þá sem ekki eru á launaskrá hjá hinu
opinbera. Þeir sem stunda sjálfstæðan
rekstur verða að velja sjálfir að ráðstafa
0,41% af tekjum sínum til FOSL til að
öðlast réttindi hjá sjóðnum. Starfi læknir
í hlutastarfi hjá hinu opinbera en í hluta-
starfi í sjálfstæðum rekstri þarf að greiða
sérstaklega til FOSL af öllum launum til
að öðlast full réttindi. Annars eru réttindi
viðkomandi hjá sjóðnum í réttu hlutfalli
við starfshlutfall viðkomandi hjá hinu
opinbera.
Styrkir sem FOSL veitir eru þrenns-
konar: Fæðingarstyrkur, útfararstyrkur og
veikindastyrkur.
Fæðingasstyrkur er nú kr. 520.000. Ef báð-
ir foreldrar barns eru læknar greiðist einn
og hálfur styrkur til barnsins. Eingöngu
læknar sem starfa og þiggja laun á Íslandi
eiga rétt á að fá greiddan fæðingarstyrk.
Umsókn um fæðingarstyrk skal berast til
FOSL eigi síðar en ári frá fæðingu barns,
ættleiðingu þess eða varanlegu fóstri. Um
tveir þriðju hlutar fjárútláta sjóðsins eru
fæðingarstyrkir.
Útfararstyrkur er kr. 620.000 til sjóðfé-
laga og er einnig átt við starfsmenn sem
voru sjóðfélagar er þeir létu af störfum
vegna aldurs eða örorku. Styrkurinn
greiðist þeim er útförina annast. Síðast-
liðin ár hefur lítill hluti af greiðslum sjóðs-
ins farið í útfararstyrki.
Veikindastyrkur er skilgreindur sem
tekjutap sjóðfélaga vegna ólaunaðrar fjar-
veru frá læknisstörfum vegna veikinda
sjóðfélaga eða náinna vandamanna hans
eða vegna annarra sérstakra persónulegra
aðstæðna. Einnig má veita veikindastyrk
til að bæta óbætt áföll vegna óvæntra
starfsloka eða annarra óvæntra áfalla
sjóðfélaga. Í reglum sjóðsins er gert ráð
fyrir þremur mismunandi tegundum
styrkveitinga vegna veikinda eða annarra
óvæntra áfalla.
1. Sjóðstjórn er heimilt að ákveða styrk
til sjóðfélaga vegna ólaunaðrar fjar-
veru hans frá vinnu með jöfnum
greiðslum í allt að þrjá mánuði, sem
nemur 80% af meðalmánaðarlaunum
sem greitt hefur verið af til sjóðsins,
miðað við undangengna 12 mánuði
áður en tekjutap á sér stað [þó að há-
marki kr. 940.000 á mánuði].
2. Sjóðstjórn er heimilt að veita sjóðfé-
laga styrk úr sjóðnum með eingreiðslu
allt að kr 950.000, vegna sérstakra að-
stæðna sem hafa í för með sér launa-
missi eða veruleg sérstök fjárútlát
sjóðfélaga.
3. Sjóðstjórn er heimilt að veita sjóðfé-
laga styrk úr sjóðnum, að hámarki
kr 200.000 á þriggja ára fresti vegna
dvalar til endurhæfingar að læknis-
ráði á Íslandi. Heimilt er þó að nýta
styrkinn til endurhæfingar á viður-
kenndri stofnun erlendis en umsókn
um slíka endurhæfingu þarf ávallt að
fara fyrir stjórn sjóðsins.
Fjárhæðir samkvæmt 2. tölulið 8. grein-
ar, sem og fjárhæðir samkvæmt. 3. og 4.
tölulið 2. greinar, skulu endurskoðaðar
1. janúar ár hvert miðað við breytingar á
vísitölu neysluverðs, í fyrsta skipti 1. jan-
úar 2014.
Styrkur til dvalar til endurhæfingar að
læknisráði samkvæmt tölulið 3 hér að ofan
er nýjung. Stjórn taldi æskilegt að bregðast
við vegna þeirrar umræðu sem orðið hefur
vart í röðum lækna varðandi vaxandi tíðni
kulnunar í starfi.
Að lokum vil ég ítreka
Í fyrsta lagi: FOSL er sjóður sem allir
læknar starfandi hjá hinu opinbera greiða
í án þess að þess sé sérstaklega getið á
launaseðlinum. Því er nauðsynlegt að
hinn almenni félagsmaður þekki rétt sinn.
Í öðru lagi: Þeir sem eru sjálfstætt starf-
andi þurfa sjálfir að greiða af sínum laun-
um til FOSL til að öðlast réttindi. Því mið-
ur hefur borið á því að læknar hafa ekki
áttað sig á þessu fyrr en of seint og því
ekki átt rétt á stykjum úr sjóðnum þegar á
þarf að halda. Því hvet ég sjálfstætt starf-
andi lækna til að skoða FOSL og ákveða
hvort þeir vilji gerast félagar í sjóðnum.
Þekkir þú þinn rétt? Um FOSL