Fréttatíminn - 12.02.2016, Síða 31
|31fréttatíminn | Helgin 12. febrúar–14. febrúar 2016
Náttúrulegur
sætugjafi
Sá græni
Bragðgóður og ferskur skyrdrykkur án
hvíts sykurs með agave og steviu.
Fylltur af grænum orkugjöfum.
KEA skyrdrykkur
fyrir heilbrigðan lífsstíl
Halda að munnstykkið sé túban
Steinunn Jenna Þórðardóttir, 10
ára, bauð sig fram þegar skorti
túbuleikara í lúðrasveitina. „Núna
er ég búin að æfa í tvö ár og finnst
það mjög gaman.“ Steinunn segist
sem betur fer ekki þurfa að bera
hljóðfærið á milli staða heldur
einungis munnstykkið. „Margir
krakkar í skólanum halda að
munnstykkið sé túban, bara bestu
vinir mínir vita að það er ekki
rétt.“ Steinunn getur vel ímyndað
sér að gerast túbuleikari þegar
hún er orðin stór. „Já, ég elska allt
við hljóðfærið, ég æfi mig hálftíma
á dag og finnst það frábært.“
Foreldrarnir hjálpa
Freyja Björk Frostadóttir er níu
ára, en að verða tíu. Hún byrjaði
að æfa á hörpu fyrir nokkrum
mánuðum. „Ég vildi spila á hörpu
eins og systir mín, við spilum
stundum saman þegar hún er
ekki inni í herberginu sínu. Það
skemmtilegasta við hörpuna eru
tónarnir, þeir eru svo fallegir.“
Freyja hefur gaman af því að spila
á stórt hljóðfæri en mamma og
pabbi þurfa stundum að hjálpa
til við að bera hana. „Ég get alveg
lyft hörpunni, hún er ekkert svo
þung.“ Aðspurð hvort hún ætli sér
að verða hörpuleikari þegar hún
er orðin stór yppir hún öxlum.
„Kannski, ég veit ekki alveg.“
Langt hljóðfæri, fleiri tónar
Daði Freyr Helgason er sjö ára og
hefur æft píanóleik í fjögur ár. „Ég
vildi læra á hljóðfæri og hélt að
það væri gaman að læra á píanó
og það var rétt hjá mér.“ Daði segir
ekkert mál að spila á svona langt
hljóðfæri. „Ég er orðinn mjög van
ur, get spilað alveg efst og neðst.
Mér finnst samt miðtónarnir
skemmtilegastir.“ Uppáhalds lagið
hans er nýtt arabalag sem hann
lærði. „Arabalagið og Guð gaf mér
eyra eru skemmtileg. Ég reyni að
æfa mig á hverjum degi, eða þegar
ég man eftir því.“
Með bassa heima og í skólanum
Skorri Pablo er ellefu ára og
hefur í nógu að snúast. Hann æfir
fótbolta, á selló og kontrabassa.
Hann segist þó alveg hafa tíma til
þess að sofa. „Ég vildi ekki spila á
lítið hljóðfæri eins og fiðlu heldur
eitthvað stórt. Ég byrjaði að æfa á
selló þegar ég var fjögurra ára en
vildi líka læra á bassa, mér finnst
djúpir tónar svo flottir. Núna er ég
í hálfu sellónámi og hálfu bassa
námi.“ Það tekur Skorra smá tíma
að gera upp við sig af hvoru hljóð
færinu hann hefur meira gaman.
„Bassanum. Ég á tvo svoleiðis,
einn uppi í skóla og annan heima
svo ég þurfi ekki að bera hann á
milli.“
Daði æfir sig á
hverjum degi, þegar
hann man eftir því.
Mynd | Rut
Margir
krakkar í
skólanum
halda að
munnstykk-
ið sé túban,
bara bestu
vinir mínir
vita að það
er ekki rétt.
Steinunn Jenna
Nístandi frost var ekki fyrirstaða hjá
rúmönsku félögunum sem komu sér
fyrir á Hafravatni á dögunum og drógu
hvern urriðann á eftir öðrum upp úr
ísilögðu vatninu. Lorenz hefur búið á
Íslandi í tíu ár og kemur reglulega á
vatnið að veiða. Þeir voru vel búnir með
ísbor og veiðarfæri og fengu á örfáum
klukkutímum fjölmarga litla urriða sem
þeir sögðu bestu bitana.
Rúmenar
mokveiða í
Hafravatni