Fréttatíminn - 12.02.2016, Síða 44
Kynningar | Veislur AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Yfir 100 ára reynsla í veisluhöldum
Þrjár kynslóðir veitingamanna við stjórnvölinn í Rúgbrauðsgerðinni.
Unnið í samstarfi
við Veislumiðstöðina
Í Rúgbrauðsgerðinni við Borgartún
er Veislumiðstöðin til húsa. Það er
að finna vel búna veislusali sem
henta undir hvers kyns fögnuði eða
fundi. Í boði eru þrír mismunandi
salir og sá stærsti, Sólarsalur, tekur
allt að 250 manns í sæti. Veislumið-
stöðina reka þrjár kynslóðir í beinan
karllegg – Ámundi Johansen,
hagfræðingur og rekstrarstjóri
Veislumiðstöðvarinnar, pabbi hans,
Carl Jónas Johansen, og faðir hans,
Sveinn Valtýsson. Nánast öll fjöl-
skyldan hefur komið að Veislumið-
stöðinni á einhverjum tímapunkti
og allir ganga í þau verk sem vinna
þarf. Nýlega færði þó systursonur
Ámunda, sem er þjónn, sig yfir á
Sólon. „Honum fannst orðið eitt-
hvað pirrandi að hafa afa sinn alltaf
yfir sér,“ segir Ámundi og hlær.
Matseðlarnir eru fjölbreyttir og
sniðnir að hverju tilefni fyrir sig. Vin-
sælast er að panta steikarhlaðborð
þegar um brúðkaup er að ræða en
smáréttahlaðborð slær alltaf í gegn á
fundum og standandi veislum. Fyrir-
tækin í Borgartúni, sem telja tugi,
eru dugleg að nýta sér nálægðina við
Rúgbrauðsgerðina og halda reglulega
móttökur og aðra fögnuði þar.
Nálægðin við miðbæinn er meðal
þess sem dregur fólk að Rúgbrauðs-
gerðinni. Mörgum finnst þægilegt
að halda boð snemma með léttum
snittum og öðru góðgæti og halda
svo á vit ævintýranna í miðbænum,
án þess að þurfa að fara á bílnum
eða panta leigubíl. Húsið býr yfir
ákaflega miklum sjarma, ekki síst
salurinn á efstu hæðinni. Hann
prýða kýraugun sem einkenna
húsið og gamall andi svífur þar yfir
vötnum. Þar var áður veislusalur
ríkisins og þar hafa sannarlega
margir lyft sér upp gegnum árin.
Veislumiðstöðin hefur verið
starfandi nær sleitulaust frá 1976.
Fyrst eftir að hún flutti í Rúgbrauðs-
gerðina var hún einungis starfandi
á fyrstu hæðinni en hefur nú alla
þrjá salina til umráða. Reynslan sem
feðgarnir búa yfir nýtist ákaflega vel
í rekstrinum enda engir byrjendur á
ferðinni. „Ætli við séum ekki erum
búnir að vera í þessum bransa í yfir
100 ár samtals,“ segir Ámundi.
Allar frekari upplýsingar má finna
á veislumidstodin.is.
Ámundi Ó. Johansen
Fagmennska í
fyrirrúmi í Iðnó
Góð þjónusta og fallegt umhverfi við Tjörnina.
Unnið í samstarfi
við Iðnó
Iðnó við Tjörnina er eitt þessara
klassísku húsa í Reykjavík sem
jafnan vekja hrifningu og aðdáun
enda löngu orðið eitt af aðalsmerkj-
um miðbæjarins. Þar er rekin vinsæl
og fjölbreytt veisluþjónusta sem
hefur orð á sér fyrir gæði og góða
þjónustu. Margrét Rósa Einarsdóttir,
staðarhaldari í Iðnó, segir hópana
sem leita í Iðnó jafn ólíka og þeir
eru margir. „Við leggjum áherslu á
að fagmennskan sé í fyrirrúmi og
erum með fagmenn í hverju rúmi.
Sjálf er ég framleiðslumeistari og
Andrés Bragason matreiðslumeistari
sér um veitingarnar hjá okkur,“ segir
Margrét og undirstrikar að í Iðnó
sé fullbúið eldhús þar sem allar
veitingar séu matreiddar frá grunni.
Lágmarksfjöldi hópa er 20 manns
en boðið er upp á veislur fyrir allt að
120 manns í sæti. „Við höfum verið
með skírnarveislur, fermingarveislur,
afmælisveislur, erfidrykkjur og brúð-
kaup og einnig koma vinahópar til
okkar,“ segir Margrét og bætir við
að ferðamenn sæki einnig mjög í að
koma og eiga gæðastund í Iðnó. „Við
erum með mjög fjölbreyttan mat-
seðil en ef gestir okkar eru með ein-
hverjar aðrar hugmyndir þá komum
við til móts við þá,“ segir Margrét
leggur áherslu á að meira en sjálfsagt
sé að uppfylla óskir þeirra sem annað
hvort eru vegan eða grænmetisætur.
Að sögn Margrétar hefur það
færst í vöxt að hvers kyns þema-
veislur séu haldnar í Iðnó og þeim
sé tekið fagnandi. Þá koma við-
burðafyrirtæki oft að skipulagningu.
„Við erum með blómaskreytingafólk
hjá okkur en svo eru þessi fyrirtæki
að koma með alls kyns öðruvísi
skreytingar, dúka og margt annað
sniðugt og skemmtilegt.“
Fleiri upplýsingar um matseðilinn
og veisluþjónustuna er að finna á
idno.is. Margrét Rósa Einarsdóttir, staðarhaldari í Iðnó.
44 | fréttatíminn | HELGIN 12. FEBRúAR–14. FEBRúAR 2016