Fréttatíminn - 12.02.2016, Síða 47
Unnið í samstarfi
við Víkina
Við Grandagarð stendur Sjóminja-
safnið í öllu sínu veldi og þar inni
er rekið kaffihúsið og veitinga-
þjónustan Víkin. Þar ræður ríkjum
veitingamaðurinn Snorri Birgir
Snorrason. Kaffihúsið er opið til
fimm á daginn og fylgir þannig
safninu í afgreiðslutíma. Áhersla
er lögð á heimabakað bakkelsi og
hefur til dæmis hróður kleinanna í
Víkinni borist víða.
Í hádeginu er alltaf fiskur dagsins
í boði og segir Snorri það hafa gef-
ist vel að hafa ekki fastan matseðil
heldur fara á markaðinn á morgn-
ana og velja það sem ferskast er
hverju sinni. Undanfarin ár hefur
fastakúnnahópurinn sem kemur
til þess að gæða sér á fiski dagsins
í hádeginu farið sístækkandi og
margir sem mega hreinlega ekki til
þess hugsa að missa af honum.
Eftir klukkan fimm á daginn
breytist staðurinn
hins vegar í
veislusal sem er
afar vinsæll og vel
nýttur sem slíkur
allan ársins hring
fyrir allra handa
veislur. „Við erum
með frábært sjáv-
arútsýni og mjög
stóra verönd þar
sem alltaf er logn,
þó það sé jafnvel hávaðarok hinu-
megin við húsið. Þegar sólin skín
er þetta best geymda leyndarmál
Reykjavíkur,“ segir Snorri og bætir
við að á sumrin fari öll borð út á
veröndina og þar sé pláss fyrir allt
að 120 manns í sæti. „Við getum
tekið allt að 300 manns í standandi
veislur og þá opnum við inn á
safnið og út á veröndina og svo
getum við tekið allt að 120 manns í
sitjandi borðhald.“
Mikil uppbygging hefur orðið
undanfarin ár á Grandanum og seg-
ist Snorri hafa séð ótrúlega breyt-
ingu síðustu 2 árin og ekkert lát sé
á. „Það er bara gaman að eyða eins
og hálfum degi á Grandanum, byrja
á því að fá sér kaffi og labba svo
um og sjá allt sem Grandinn hefur
upp á að bjóða, galleríin, allt hand-
verkið og ekki síst söfnin. Þetta er
örugglega þægilegasta svæðið fyrir
fararstjóra að koma með hópa á,
hann getur bara setið og fengið sé
kaffi því ferðamennirnir hafa nóg
að gera allan daginn.“
Sigurpáll Birgisson.
Unnið í samstarfi
við Veislulist – Skútuna
Birgir Pálsson matreiðslumeistari
stofnaði veisluþjónustuna Veislu-
list – Skútuna ásamt konu sinni,
Eygló Sigurliðadóttur, árið 1975
og hefur fyrirtækið verið rekið
allar götur síðan við góðan orð-
stír. Synir þeirra, Birgir Arnar,
Sigurpáll Örn og Ómar Már, reka
fyrirtækið í dag en samtals starfa
hjá Veislulist – Skútunni sex vanir
matreiðslumenn. Birgir er sjálfur
ennþá viðriðinn reksturinn en
lætur synina þrjá þó um bróður-
partinn.
Veislulist tekur að sér hvers kyns
viðburði eins og fermingar, brúð-
kaup, árshátíðir og erfidrykkjur.
„Við sjáum einnig um þjónustu
við fyrirtæki, bæði matarbakka og
móttökur. Maturinn er fjölbreyttur
og í stöðugri þróun, við erum með
bakarí og smurbrauð, veislumat
og venjulegan heimilismat fyrir
fyrirtæki,“ segir Sigurpáll og bætir
við að hægt sé að panta stakar
veitingar, fullbúnar veislur eða
vel útbúinn sal ásamt veitingum.
„Við höfum þjónustað veislur um
allt land og einnig séð um veislur
erlendis,“ segir Sigurpáll. Það er til
marks um gæði þjónustu Veislulist-
ar – Skútunnar að margir viðskipta-
vinir hafa sótt þjónustu hennar allt
frá árinu 1975.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á veislulist.is.
Blómstrandi fjölskyldufyrirtæki
Veislulist - Skútan býður upp á fjölbreyttan mat fyrir veislur og þjónustu við fyrirtæki.
Kynningar | Veislur AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
Frábært sjávarútsýni og gómsætar veitingar í Víkinni úti á Granda.
Best geymda
leyndarmál Reykjavíkur
Snorri Birgir
Snorrason.
Þaulvant starfsfólk Víkurinnar
í upphafi glæsilegrar veislu.
Frábært útsýni og gómsætur fiskur
er prýðileg blanda.
Veröndin er eitt best geymda leyndarmál Reykjavíkurborgar.
| 47fréttatíminn | HElGin 12. FEBRúAR–14. FEBRúAR 2016