Fréttatíminn - 12.02.2016, Síða 68
Fleiri myndir á
frettatiminn.is
Salvör Káradóttir ætlar að
gera 2016 að viðburðaríku
ári og leyfir fólkinu í
kringum sig að stjórna því
sem hún gerir.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salvor@frettatiminn.is
„Það höfðu flestir skoðanir á
hvernig ég ætti að gera hlut-
ina öðruvísi þannig ég ákvað að
árið 2016 ætla ég að leyfa þessu
frábæra fólki að stjórna því hvað
ég geri. Ég byrjaði að taka á móti
áskorunum,“ segir í bloggfærslu
Salvarar Káradóttur sem ætlar
að taka áskorunum frá fólki sem
mega standa í allt að 30 daga.
Salvör segir 2015 hafa verið ein-
staklega misheppnað ár fyrir sig og
ætlar hún að gera 2016 „að sinni
tík“ líkt og bloggið hennar heitir:
„2016 is going 2 be my bitch“.
Hún segir sig reglulega tekna á
teppið því hún hreyfi sig ekki
nóg, skemmti sér ekki og hangi of
mikið heima. „Það var merkilegt
að sjá hvað vinir og vandamenn
hafa miklar skoðanir á því hverju
maður á að breyta. Nú þegar þeim
býðst að skora á mig, þá eru allir
tómir.“
Fyrsta áskorun var að gerast
vegan í 30 daga og segir Salvör það
hafa gengið vel. „Síðast þegar ég
gerðist vegan endaði ég á Amer-
ican Style um kvöldið. Núna er
ég búin að vera vegan í mánuð og
ætla að halda því áfram. Eftir tvær
vikur var ég hætt að hugsa um
grillmat og rif. Ég tók einnig þeirri
áskorun að drekka ekki gos og
gerast heimsóknarvinur hjá Rauða
krossinum.“
Salvör segir hvern sem er mega
skora á sig og nú þegar hafa borist
nokkrar. „Ég á að borða grænan
morgunmat í viku, segja já við öllu
og prófa Tinder. Ég held ég láti
Tinder vikuna og það að segja já
við öllu þó ekki skarast á.“
Lesa má bloggfærslu Salvarar á
www.salvorkara.wix.com og skrá
sig á póstlista þegar hún hefur
lokið við nýjar áskoranir.
NÝTT
Fjórir rauðir litir innblástnir frá hinni
goðsagnakenndu Marilyn. Loks finnur
þú fullkomna rauða litinn þinn
Candice er förðuð með eftirfarandi vörum: Lasting
performance farði, Mastertouch consealer, Creme
puff Blush, Masterpice Max maskari, Marilin Monroe
Ruby Red varalitur, High Definition eyeliner penni,
Smokey Eye augnskuggapalletta.
Ný Marilyn Monroe
TM
varalita lína
4 RAUÐIR,
1 FULLKOMINN FYRIR ÞIG
M
ar
ily
n
M
on
ro
e™
; R
ig
ht
s
of
P
ub
lic
ity
a
nd
P
er
so
na
R
ig
ht
s:
Th
e
Es
ta
te
o
f M
ar
ily
n
M
on
ro
e
LL
C.
Á matreiðsluvefnum
EatRVK má finna fjöl-
breyttar uppskriftir
þriggja vinkvenna.
Vinkonurnar Tobba Mar-
ínós, Íris Ann Sigurðardótt-
ir og Linda Björk Ingimars-
dóttir hafa nú stofnað
matreiðsluvefinn EatRVK. Á
vefnum má finna fjölmarg-
ar uppskriftir af ýmsu tagi,
allt frá rjómaostakonfekti
til bráðholls Chia-grauts.
Tobba segir tilgang vefsins
aðallega vera að hafa upp-
skriftir sem vinkonurnar
sanka að sér allar á einum
stað. „Íris Ann er frábær
matarljósmyndari og okkur
vinkonunum þykir öllum
gaman að elda, svo það
var náttúrlega næsta
skref að stofna matar-
vef.“
Þrátt fyrir fjöl-
margar hollar
uppskriftir á
vefnum segir
Tobba vefinn
ekki hugs-
aðan
sem
átaksvef. „Það fer bara eftir
hvaða í stuði maður er. Sjálf
kaupi ég aldrei sykur og
finnst gaman að laga upp-
skriftir að hollu mat-
aræði. Linda bakar hins
vegar alveg úr sykri og
oft leikum við okkur
með það að hún
baki „venjulega“
uppskrift, ég
lagi hana
að hollust-
unni og svo
ber Íris þær
saman.“
Salvör Káradóttir gerir árið 2016 að sinni tík.
Tekur við öllum
áskorunum
Tímafrekt en girnilegt áhugamál
Uppskrift frá Tobbu að
Bláberja Nicecream,
sætum og ljúfum berjaís
handa allri fjölskyldunni.
Innihaldsefni
3 vel þroskaðir frosnir
bananar (frystir í nokkrum
bitum)
1 - 2 dl kókosmjólk (sykur-
laus - úr fernu eða dós)
3 dl frosin ber t.d bláber
og hindber
4 - 6 dropar hindberja-
stevía
Leiðbeiningar:
Settu öll innihaldsefnin í
blandara eða matvinnslu-
vél. Byrjaðu á að setja
aðeins 1 dl af mjólk en ef
það dugar illa bættu þá
smám saman við meiri
vökva.
Látið matvinnsluvélina
ganga á fullum styrk en
stoppaðu reglulega til að
skafa niður meðfram hlið-
unum.
Smakkaðu til með steví-
unni.
Athugasemdir:
Ef þú hefur ofnæmi fyrir
banönum eða hatar þá
bara getur þú notað frosið
avocadó í staðinn og
aukið berjamagnið.
Höfundur: Tobba Marinós
Sjálfkrýnd fréttamynd ársins
Kristinn var viðstaddur
þegar albönsku fjöl-
skyldunni var vísað úr landi
og hafði ljósmynd hans mikil
áhrif á framgang mála.
Kristinn Magnússon ljósmynd-
ari er sagður eiga sjálfkrýnda
fréttamynd ársins. Hann
var viðstaddur kvöldið sem
albanska fjölskyldan var
sótt á heimili sitt og vísað úr
landi. Kristinn tók myndina
af þriggja ára og langveikum
Kevi að ganga út fyrir dyrnar
með bangsa í hendinni. Kristinn
segir myndina hafa öðlast sjálf-
stætt líf. „Þetta var erfitt kvöld.
Þau sátu öll í sófanum, tilbúin
brottfarar og fylgdust með klukk-
unni tifa. Þetta var seint um kvöld
svo börnin voru hrædd og óörugg,
þau vildi ekki hleypa neinum
nærri sér. Eftir að hafa fylgt þeim
út á flugvöll sendi ég nokkrar
myndir áfram og ein þeirra öðlað-
ist sitt eigið líf í netheimum.“
Kristinn byrjaði að ljósmynda
ungur að aldri þegar pabbi hans
gaf honum myndavél. „Ég byrjaði
að mynda landslag og fugla á
Flatey á Breiðafirði. Ég hef
nánast verið að mynda síðan
fyrir íslenska og erlenda
kúnna.“ Á meðal skrautlegra
verkefna sem Kristinn hefur
staðið að var fyrir Háafell geita-
bú þegar þau stóðu frammi fyrir
gjaldþroti. „Ég setti upp stúdíó í
fjárhúsinu og myndaði geiturnar.
Þær eru allar mismunandi karakt-
erar og baráttan var mikil að halda
þeim innan rammans.“ | sgk
Kristinn Magnússon er sagður
eiga sjálfkrýnda fréttamynd
ársins af Kevi, sem bíður þess
að vera sóttur af lögreglunni
og fluttur úr landi ásamt fjöl-
skyldu sinni.
Á laugardaginn fer fram
annað undankvöld
Söngvakeppni Sjón-
varpsins. Í tilefni þess að
stóra stundin nálgast tók
Fréttatíminn saman lista
af lögum með aðstoð með-
lima FÁSES (Félag áhuga-
fólks um Söngvakeppni
evrópskra sjónvarps-
stöðva) sem er að synd að
hafa ekki fengið að njóta
sín sem framlag Íslands til
Eurovision.
Bestu lögin sem
kepptu ekki fyrir
hönd Íslands
1. Í síðasta skiptið – Friðrik Dór
2. Amor – Ásdís María
3. Ég lifi í draumi – Björgin Halldórsson
4. Karen – Björn Arason
5. Þér við hlið – Regína Ósk
6. Lífið er lag – Módel
68 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar–14. febrúar 2016