Fréttatíminn - 12.02.2016, Qupperneq 76
4 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar-14. febrúar 2016
rauður þráður í gegn um bókina.
Persónusköpunin er mögnuð,
mannlífið fjölbreytt. Þetta er allt í
senn, aldarspegill, saga þjóðfélags
í mótun, saga kvenna og frelsis-
baráttu, saga um ást og harm.“
Nanna Rögnvaldardóttir
ritstjóri
Saga af venjulegu
fólki með raunsann-
ar tilfinningar
„Dalalíf Guð-
rúnar frá Lundi
stendur upp
úr. Vel sögð
og blátt
áfram saga
af venjulegu
fólki með raun-
sannar tilfinning-
ar, bæði staðfastar og hverfular.
Rómantíkin er til staðar, meló-
dramatíkin líka, en sagan er aldrei
velluleg og Guðrún, þessi frábæri
sögumaður sem sjálf sagðist vera
hvergi í íslenskum bókmenntum
en er kannski frekar alls staðar,
fléttar svo dásamlega vel saman
dramatík og hversdagslíf og sýnir
svo margar hliðar ástarinnar.“
Kolbrún Bergþórsdóttir ritstjóri:
Tímaþjófur Stein-
unnar sú besta
„Laxdæla er hugs-
anlega besta
ástarsagan og
Salka Valka
þar á eftir,
en þær bækur
flokkast varla
undir hreinar
ástarsögur þar sem
höfundarnir eru að segja
fleiri sögur en bara ástarsöguna og
lá svo miklu meira á hjarta en að
fjalla bara um ástir. Ef við erum að
tala um ekta ástarsögu þá hlýtur
Piltur og stúlka eftir Jón Thorodd-
sen að vera ofarlega á blaði. Afar
vel skrifuð saga með geðþekkum
elskendum sem þurfa að hafa
mikið fyrir ást sinni og mæta alls
kyns mótlæti. Allt fer þó vel að
lokum eins og á að vera í alvöru
ástarsögu. Sérlega eftirminnilegar
aukapersónur krydda söguna, eins
og til dæmis Gróa á Leiti. Þarna er
dregin upp góð mynd af íslensku
þjóðlífi og dásamleg kvæði í
sögunni gleðja svo lesandann.
Tímalaus klassík. Það mætti alveg
eins nefna Mann og konu eftir
sama höfund, en Piltur og stúlka
skal það vera!“ segir Kolbrún.
„Tímaþjófurinn eftir Steinunni
Sigurðardóttur er sennilega besta
ástarsaga seinni tíma þegar við
miðum við íslenskar bókmenntir.
Sterk saga um það hvernig er að
vera heltekin af ást.“
Besta ástarsaga
íslenskra bókmennta
guðjón friðriksson sagnfræðingur
þekkir vel til sögu reykjavíkur. Hann
segir að á fyrri hluta 20. aldar hafi
nokkrir staðir haft á sér rómantískan
blæ.
„Suðurgatan var oft kölluð
ástarbraut og þangað fóru ungir
elskendur, eða fólk sem var að draga
sig saman. Það gekk gjarnan þarna
um og fór inn í kirkjugarðinn sem
þá var kannski fegursti bletturinn í
borginni. Hólavallakirkjugarður var
bæði gróðursæll og friðsæll á þeim
tíma,“ segir guðjón.
„Svo fór nú orð af því að stelpur
sem voru að slá sér upp með sjó-
liðum, sem komu oft hingað á
þessum tíma, færu vestur á mela
með þeim. fólk fór mikið út í
Örfirisey. Þá var ekki bílfært þangað
og gengið var eftir mjóum hafnar-
garði til að komast í lautir og hóla
sem þótti rómantískt. Þegar ég var á
menntaskólaaldri fór fólk á bílum út
í Örfirisey og síðan var bílunum lagt
og fólk fór eitthvað í kelerí. Ég man
alltaf eftir því að einn bekkjarbróðir
minn í menntaskóla fékk lánaðan bíl
pabba síns og við fórum stundum í
gamni þangað. Þá slökkti hann á ljós-
unum og ók hægt upp að bílunum
sem fólk var að kela í og kveikti svo
skyndilega á háu ljósunum. Þá varð
auðvitað uppi fótur og fit í bílunum!“
guðjón segir að á þessum tíma
hafi verið þrengra um fólk og stórar
fjölskyldur voru kannski saman í
tveimur herbergjum. „Áður en fólk
eignaðist bíla var ekki um annað að
ræða en fara eitthvert.
Þetta er allt öðruvísi nú þegar
fólk hefur eigin herbergi og nóg er
af vistarverum. Í dag eru líka allir
þessir barir og veitingahús. Það
breyttist margt þegar bílarnir komu
– um allan heim. bílarnir gáfu
fólkinu frelsi. Þá fór fólk að fara út
úr bænum, upp að Kolviðarhóli, að
lögbergi eða geithálsi. gjarnan þar
sem voru veitingastaðir.“ -hdm
Ást í Reykjavík
fyrr á tímum gengu pör gjarnan út fyrir miðbæ
reykjavíkur til að fá næði.
Guðjón Friðriksson.
Á fyrri hluta 20.
aldar var Suður-
gatan kölluð Ástar-
braut og kirkju-
garðurinn var
vinsæll staður hjá
elskendum.
Ljósmyndir | Hari
Fallegur undirfatnaður
er persónuleg og falleg
Valentínusargjöf
Í versluninni Mary Carmen í lágmúla 7
er mikið úrval af nærfatnaði, korse-
lettum, náttkjólum og fleiru.
ef kaupa á brjóstahaldara er sniðugt
að kíkja á stærðarmiðana heima áður
og fá svo hjálp frá starfsfólkinu í Mary
Carmen.
Brjóstahaldari á mynd kostar
7.995 krónur.
Skemmtileg nýjung
Kanínueggið er vatnshelt sílikonegg með
sjö mismunandi púls-stillingum. Það
kostar 7.995 krónur og fæst í adam og
evu, Kleppsvegi 150 og á akureyri.Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is
VALENTÍNUSARDAGURINN
FIMM RÉTTA
ÁSTAR-
REMEDÍA
FRÁ KL. 17FORDRYKKUR
Codorníu Cava
FORRÉTTIR
TÚNFISKUR
Léttgrillaður túnfiskur, avókadómauk, engifer, sesamfræ,
sýrð vatnsmelóna
BLEIKJA Á SALTBLOKK FRÁ HIMALAYA
Hægelduð bleikja, yuzu mayo, truu mayo, stökkt
quinoa, epli
ÖND & VAFFLA
Hægeldað andalæri „pulled“, karamelluseruð epli,
belgísk vaa, maltsósa
ÞÚ VELUR AÐALRÉTTINN ...
KOLAGRILLUÐ NAUTALUND
Sveppir, pönnusteiktar kartöflur, bjór-Hollandaise
EÐA
LAX
Kolagrillaður lax, bok choy, sveppir, barbecuesósa tónuð
með íslensku, lífrænu svörtu tei
EFTIRRÉTTUR
SÚKKULAÐIRÓS
Súkkulaðimousse, hindberjahlaup, Sacherbotn
7.990 kr.