Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1997, Side 13

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1997, Side 13
ÞORBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR Þorbjörg Ciiðiiiunilsilóllir liiuli niínii í lijiíkriunirfrirói /'ri't lljiikritiiarskáln Islunils úrii) l<)77, II.S. prii/i í lijiikrttiiiir/i inihiin fni lliiskólu Islninls órii) l()().l op priji i tljiiknnfrwduni Jiii pnó/riróitlrihl II.I. I()()6. Iliin sliiiultir nii iiwisliirinniin í iiiiiöniiiiniirvísinilnin vii) 1 lni \kiiili-ini I nirrrsitrl í l:iiinlniuli jujiifrumt slnrji síiiu srm lijiikriiiuirfriiiiikvirimliisljóri Iriltirsniils KriibliiiiiwinsJ'éliif's Ísliiiuls. HÓPLEIT arangiirsrík Kmbbameinsleit og starfsemi leitarstöðvarKrabbameinsfélagsins Liðlega þrjátíu ár eru síðan skipulögð leit að leg- hálskrabbameini hófst á vegum Krabbameinsfél- ags Islands. Frá 1969 hefur leitin náð til alls landsins iF en upphaflega var hún einungis bundin við Reykja- vík og nágrenni. Nokkrum árum síðar liófst einnig skipulögð leit að brjóstakral)hameini með brjósta- þreifingu og frá nóvember 1987 með brjóstamynda- töku (Baldur Sigfússon, 1996). Skipulagðar hóp- skoðanir fara fram daglega í leitarstöðinni í Reykja- vík fyrir konur húsettar á höfuðborgarsvæðinu, en utan jtess svæðis er farið í reglubundnar ferðir um landið. Sérfræðingar í kvensjúkdómum taka að sér hópleit á hinum ýmsu stöðum ásamt heilbrigðisstarfs- fólki heilsugæslustöðva. Röntgendeild félagsins leggur hins vegar til mannskap og tæki til brjóstamyndatöku nema á Akureyri þar sem brjóstakrabbameinsleitin fyrir Akureyri og nágrenni er í höndum FSA. Hér er um að ræða viðamikla starfsemi sem nær nú til allra kvenna á aldrinum 20 til 69 ára. Þetta þýðir að 70- 80.000 íslenskra kvenna falla undir leitarstarfið og lætur nærri að um 30.000 konur fari í leghálsskoðun á ári liverju, þar af kemur tæplega helmingur þeirra á leitarstöðina (Krabbameinsfélag Islands, 1996). Undanfarin ár hefur nokkurrar gagnrýni orðið vart á hópleitarstarfseini almennt og er því ekki úr vegi að rifja upp hvað felst í orðunum hópleit, hóp- rannsóknir, kembileit eða sjúkdómaleit, samkvæmt skilgreiningu þessara orða og slíkrar starfsemi, hver tilgangur, markmið og ávinningur starfsemi sem þess- arar er og hvaða væntingar megi gera til hópleitar. Frá því að leitarstöðin hóf starfsemi sína hefur stöð- ugt farið fram mat á árangri leitarstarfsins og er hann ótvíræður (Kristján Sigurðsson, 1995). Auk A þess liafa farið fram kannanir á þjónustu leitarstöðv- arinnar og verður hér lauslega gerð grein fyrir tveim könnunum. Sú eldri, viðhorfskönnun, var gerð af Krabbameinsfélaginu í samvinnu við Félagsvísinda- stofnun Háskóla Islands 1994, og sú síðari í tengslum við gæðastjórnunarátak snemma á síðasta ári. Hópleit byggir á samstarfi margra heilbrígðisstétta. Hópraimsóknir og sjukdómaleit Skjólstæðingar leitarstöðvarinnar eru að langstærst- um hluta heilhrigðir einstaklingar án nokkurra sýni- legra sjúkdóma. Þegar fjallað er um hópleit er afar mikilvægt að greina á milli hópleitar og sérfræði- þjónustu. Hópleit er í eðli sínu hópleit og er ekki ætlað að vera neitt annað. Hópleitin er miðstýrð og unnin samkvæmt fyrir fram mótuðum vinnureglum, ferli eða ramma sem takmarkast af ákveðnu verk- sviði til að tryggja á sem bestan hátt skilvirkni og áreiðanleika og til að lialda kostnaði í skefjum. Sam- kvæmt skilgreiningu beinist hópleit eða sjúkdómaleit að ákveðnum skilgreindum hópi, áhættuhópi, sem boðið er upp á ákveðna þjónustu við ákveðin skil- yrði. Það er að segja þjónustu sem felst í þar til gerðu prófi, rannsókn eða öðrum aðgerðum til að finna ein- staklinga sem líklegir eru til að hafa ógreindan sjúk- TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2. TBL. 73. ÁRG. 1997 77

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.