Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1997, Blaðsíða 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1997, Blaðsíða 29
máli í golí'i. Maður verður að leggja annað frá sér á meðan maður leikur. Samt hefur það oft veitt mér innblástur og ég hef stundum fundið góðar lausnir, t.d. fyrir hjúkrun, úti á golfvelli. Sveiflan gerir það að verkum að maður reynir á alls kyns vöðva sem * annars liggja í dvala. Þessi lilanda af líkamlegu og andlegu erliði og slökun er á einhvern hátt sannköll- uð orkulind. Þess vegna hefur golfið fylgt mér þó keppnin hafi stundum orðið að víkja. Kristín segist sjá sífellt fleiri hjúkrunarfrœðmga í golfi. Fyrir nokkrum árum héldum við „Nurse Open“ mót. Þá vorum við 4 sem tókum þátt í því. Auk mín voru það Lilja Oskarsdóttii’, Agústa Dúa Jónsdóttir og Helgi Benediktsson. Eg er sannfærð um að ef við mynd- um endurtaka leikinn núna þá yrðum við rniklu fleiri. Ekkert hálfkák Nú er Kristín hœtt að vera liðsstjóri og farin að keppa aftur, aldrei betri — aðeins með 10 í forgjöf Því lœgri tölu sem kyljingar hafa íforgjöf þeim mun k betri eru þeir. Að vera með 10 í forgjöf þýðir að maður er 10 höggum yfir erfiðleikagráðu vallarins. Atvinnumennirnir ná sumir þeim árangri að fara völlinn á fœrri höggum en reiktiað er með en sjald- gœft er að áhugamenn komist niður fyrir 0 íforgjöf. Núna er spennandi tími hjá mér. Eg reyni að komast eins oft og ég get eða þrisvar í viku til að vinna í sveifLunni. Eg stefni að því að vera í fyrsta kvennaöldungalandsliðinu. Landssamband eldri kylf- inga (LEK) ákvað að senda kennalandslið á Evrópu- mót kvenna í Svíþjóð í september. Eg varð öldunga- meistari kvenna á Islandi sl. ár, vann sveitakeppni kvenna og 1. deild kvenna líka og ætla mér að halda mínu sæti. Og þó ég hafi spilað gott golf sl. sumar er keppnisandinn að koma aftur svo að nú ætla ég að spila enn betra golf í sumar. Með golfinu stunda ég vöðvaþjálfun í tækjum tvisvar í viku, undir hand- leiðslu sjúkraþjálfara, til að hyggja mig upp. Eg hugsa töluvert um mataræði, legg áherslu á góð- an morgunmat, sérstaklega í keppni því á nokkurra daga mótum brennir maður miklu. Eg hef oft misst 2 - 3 kg á nokkrum dögum í keppni. Eg gæti þess að horða ekki þungar máltíðir en fá næga orku og nær- ingarefni úr léttari mat. Það skiptir miklu máli að halda sér í kjörþyngd, þá er maður liprari. Ef verið er að spila í miklum liita þarf að drekka sérstaklega vel. Keppni fylgir ákveðin streita en það er jákvæð streita sem virkar vel á mig. Þá fer ég í undirbúnings- fasa og byrja að fylgja ákveðnum venjum, held jöfn- um gönguhraða og æfi eftir ákveðnu mynstri. Kvíð- inn og spennan er til staðar en það lyftir mér svo að ég finn fyrir jafnvægi. Ef ég borðaði illa, svæfi illa, skipulegði mig illa og allir hlutir væru í óreiðu hjá mér þá næði ég ekki árangri. Eg undirbý mig því á öllum vígstöðvum. Vil t.d. að allt sé fínt heima hjá mér og enghin óhreinn þvottur áður en ég legg af stað á mót. Gerist glœsilegri sveifla? í leik og starfi Starf Kristínar sem hjúkrunarforstjóra og fram- kvœmdastjóra á heilsugœslustöðinni á Sólvangi í Hafnarfirði er oft krefjandi. Þegar álagið í vinnunni keyrir fram úr hófi finnst Kristínu gott að sœkja orku í golfið. Mér finnst gagnlegt að takast á við rekstur heilsu- gæslustöðvarinnar sem framkvæmdastjóri og tel að hjúkrunarfræðingar liafi margt til að bera til að sinna slíku starfi. Hjúkrunarfræðingar hafa svo mikla heildarsýn því starf þeirra er svo víðfemt. Þeg- ar mér finnst framkvæmdastjórnin vera farin að taka of mikinn tíma frá hjúkruninni lJá tek ég hjúkrunina samt fram yfir. Það hefur styrkt mig sem hjúkr- unarforstjóra að kynnast því að taka áhyrgð á fjár- málum og vinnuferlinu öllu og upplifa aðstæðurnar sem oft hreyta fyrir fram gefnum forsendum. Mér hefur aldrei þótt eins vænt um golfið eins og á meðan á uppsögnum heilsugæslulækna stóð sl. sum- ar. Þá var vinnuálagið mikið og erfitt. Eina helgina var ég svo heppin að kornast á öldungamót á Hellu. Eg komst úr hænum, spilaði í 2 daga og vatt ofan af mér. Eg held að ég hafi aldrei spilað jafngott golf og þá. Eg naut mín virkilega. Allt var svo fallegt og ég kunni svo vel að meta náttúrufegurðina í kringum mig. Mér finnst það í raun forréttindi að geta leitað í golfið við slíkar aðstæður. Þ.R. TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2.TBL. 73.ÁRG. 1997 93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.