Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1997, Qupperneq 37

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1997, Qupperneq 37
Að þessu sinni er alþjóðadag- ur hjúkrunarfræðinga, 12. maí, helgaður heilbrigði ungs íólks. Með ungu fólki er, sam- kvæmt skilgreiningu Alþjóða- heilhrigðismálastofnunarinnar, átt við fólk á aldrinum 10 - 24 ára. A þessum árum þroskast lífsviðhorf og atferli einstaklinga sem munu hafa veruleg áhrif á heilbrigði þeirra á fullorðinsár- um og barna þeirra þegar til lengri tíma er litið. I aldurshópnum eru nú um 1,5 milljarðar ungmenna í heim- inum sem þurfa menntun, lieil- brigðisþjónustu og viðurværi við hæfi. Islendingar í aldurshópn- um eru nú um 62.700, sam- kvæint upplýsinguin Ilagstofu Islands, eða nærri fjórðungur íslensku þjóðarinnar. Breytingar á þjóðfélagsskipan, fólksflutn- ingar, aukin ferðamennska og fjölmiðlar hafa síaukin áhrif á líf ungs fólks en áhrif fjölskyklunnar fara dvínandi. Sumir líða fyrir fátækt, mennt- unarskort, atvinnuleysi, heimilis- leysi, núsnotkun og kynjamismun. Æ íleiri byrja að stunda kyn- líf á unglingsárum og því fylgja auknar líkur á ótímabærri þungun og kynsjúkdómum, m.a. alnæmi. Áhættuhegðun er fylgi- fiskur unglingsáranna og tæki- færin láta ekki á sér standa. Um Ieið er sífellt erfiðara að standa undir væntingum fullorð- insáranna og streita, sem fylgir því að komast til manns, eykst. Sunis staðar gætir vannæringar vegna þess að fæðu skortir en annars staðar sveltir ungt fólk sig til að ná ákveðnu útliti. Stundum leiða rangar matar- venjur til offitu, átgræðgi eða lystarstols. Það getur haft mikil áhrif á heilbrigði ungs fólks og vellíðan hvernig tekið er á þörfum þess og vandamálum á unglingsaldri. Að fjárfesta í heilbrigði þessa aldurshóps jafngildir því að fjárfesta í framtíð sem mun skila arði þegar til lengri tíma er litið. Hlutverk hjúkrunarfræðinga Hjúkrunarfræðingum ber skylda til að stuðla að heilbrigði ungs fólks og hjálpa því að átta sig á gildismati sínu. Hjúkrunarfræð- ingar þurfa að vera vakandi fyrir þörfum ungs fólks og efna til samvinnu við skóla, ungmennahópa, félagasamtök og aðra hópa sem snerta þennan aldurshóp. Til að árangur verði sem bestur þarf að virkja ung- mennin sjálf og aðstandendur þeirra til þátttöku. Traust tengsl byggð á trúnaði, viðurkenningu og skilningi á viðhorfum þeirra og þörfum eru ómetanleg í því sainbandi. Mikilvægt er að veita góðar upplýsingar um hvernig, hvar og hvenær þjónusta er fyrir hendi og hvað hún kostar. Heilbrigðisstarfsfólk þarf að gæta þess að gegna þjónustu sinni af næmum skilningi og trúnaði í fullri samvinnu við unga skjólstæðinga sína. Ef ungt fólk notar ekki heil- brigðisþjónustu getur það verið vegna þess að það: • gerir sér ekki grein fyrir eigin þörfum fyrir heilb rigðisþ j ónustu • þekkir ekki hvað stendur til boða og gagnsemi þess • vantar upplýsingar um að- gengi að þjónustu, kostnað og staðsetningu • óttast að Ijóstra upp leyndar- málum sínum fyrir frainan heilbrigðisstarfsfólk • óttast að bíða álitshnekki • telur hana vera of kostnaðar- sama • uppeldi þeirra kemur í veg fyrir að það tjái sig, t.d. um kynlíf og barneignir. Eins og undanfarin ár mun fræðslu- og menntainálanefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga standa fyrir dagskrá í Ráð- húsi Reykjavíkur mánudaginn 12. maí. Jafnframt er vonast eftir þátttöku hjúkrunar- fræðinga úti um allt land við að gera þennan dag eftirminnilegan og sýnilegan til gagns fyrir hjúkrun, hjúkrunarfræðinga og að þessu sinni ekki síst fyrir ungt fólk í landinu. Sérstaklega er mælst til þess að heilsugæslu- og skólahjúkrunarfræðingar taki höndum saman og nýti sér þennan dag stai'fi sínu til fram- dráttar. Fyrir þá sem hafa áhuga liggja frammi hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga gögn frá Alþjóðasambandi hjúkrunarfræðinga um málefni dagsins. Þangað er hægt að sækja hugmyndir að ýmsu sem hægt er að gera. Að lokum skal minnt á að auglýsing með dagskrá 12. maí verður að venju birt í dagblöðum. Þeir hjúkrunarfræðingar, sem vilja koma upplýsingum á framfæri í auglýsingunni, eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, Suðurlandsbraut 22, sími 5687575, eigi síðar en mánudaginn 5. maí. TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2. TBL. 73. ÁRG. 1997 101
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.