Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1997, Blaðsíða 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.1997, Blaðsíða 22
ályktar að stefnan í heilbrigðismálum á íslandi fram til ársins 2000 skuli taka mið af heilbrigðisáætlun þeirri sem þar er sett fram í 32 liðum. Dusta þarf rykið af þessari ályktun og fylgja þeim þáttum markvisst eftir sem þar eru settir fram. Samræma þarf þjónustu heilsugæslustöðva þannig að sama þjónusta sé alls staðar í hoði. Hér áður minntist ég á að ég teldi að lögin um heilsuvernd væru úrelt. Oraunhæft er að gera ráð fyrir að allar stöðv- ar sinni öllum þáttum heilsuverndar sem taldir eru upp í lögunum. Heilsugæslan þarf bakhjarl, nokkurs konar heilsustofnun sem tekur að sér að sinna þess- um þáttum eða hluta af þeim í samvinnu eða tengsl- um við stöðvarnar því í raun er óeðlilegt í ekki stærra samfélagi en Island er að hver stöð sinni hverjum þætti fyrir sig. Það kostar einfaldlega of mikið. Breyta þarf lögunum í þá veru að heilsugæslu- stöðvar verði hverfishundnar og sinni fyrst og fremst „primary þjónustu“. Þá á ég við að skjólstæðingur- inn geti leitað með allan sinn vanda til heilsugæslunn- ar og hún síðan aðstoðað hann og vísað honum áfram ef þurfa þykir. Þetta þýðir að heilsugæslan verður að hysja upp um sig buxurnar og sýna hvað í henni býr. Það þýðir ekki fyrir hjúkrunarfræðinga og lækna í heilsugæslu að eyða orku og tíma í að ergja sig út í sérfræðinga í báðum stéttum. Betra er að sýna í verki hvers heilsugæslan er megnug með því að samræma þjónustuna, efla aðgengi, auka fagmennskuna og axla ábyrgðina. Koma þarf á gæðastjórnun og markvissu innra eftirliti með gæðum þeirrar þjónustu sem veitt er. Eg sé fyrir mér að heimahjúkrun (lytjist alfarið til heilsugæslustöðva þannig að morgun-, kvöld- og næturþjónustu verði sinnt frá stöðvunum. Eg tel að heilsugæslan eigi að sinna þeim sjúklingum, sem þarfnast mikillar sérhæfðrar þjónustu, eins lengi og þeir óska eftir og heilsugæslan treystir sér til. En jafnframt að hjúkrunarfræðingar í heilsugæslu eigi aðgang að Ejúkrunarfræðingum með sérfræðiþekk- ingu t.d. í krabbameinshjúkrun sem hægt er að kalla til ráðgjafar og aðstoða við að meta ástand og skipu- leggja meðferð sjúklingsins en ekki endilega til að taka við umönnuninni. Ilugsa mætti sér að krabba- meinsdeildir stóru sjiikrahúsanna hefðu á að skipa teymi hjúkrunarfræðinga og lækna sem sinntu slíkri ráðgjöf. Þegar að endalokunum kæmi yrði ákveðið í samráði við sjúklinginn og fjölskylduna hvort við- komandi legðist inn til að heyja sitt dauðastríð eða hvort honum væri sinnt heima með aðstoð heilsugæsl- unnar. Mikil umræða hefur átt sér stað um sjúkra- hústengda heimahjúkrun og sýnist sitt hverjum. I þeim tilvikum, sem við á, gæti Jiessi Jijónusta verið mjög markviss og mun betri en sú sem við höfum. Framkvæmd ungbarnaverndar og mæðraverndar á að fara fram á heilsugælustöðvum. Til þess að heilsugæslan geti sinnt þessu hlutverki sem skyldi er nauðsynlegt að komið verði á laggirnar fyrrnefndri heilsustofnun sem hefur það hlutverk að styðja við bakið á heilsugæslunni. Stofnunin yrði deildaskipt og veitti sérhæfða Jtjónustu og sinnti m.a. verkefnum í ungbarnavernd og mæðravernd sem heilsugæslan tel- ur |)iirfa, eins og skipulagningu, samræmingu og mót- un ungbarna- og mæðraverndar í landinu, sérfræði- ráðgjöf, fræðslu og útgáfustarfsemi, rannsóknum og þróunarstarfi svo eitthvað sé nefnt. Þessi stofnun yrði rekin á vegum heilsugæslunnar og kallaðir til sérfræðingar eftir |)örfum. Eíla þarf hlutverk heilsugæslunnar í annars konar forvörnum og má gera ráð fyrir að fyrrnefnd stofnun geti aðstoðað stöðvarnar við að sinna þáttum eins og heilbrigðisfræðslu í fyrirbyggjandi tilgangi varðandi vímuefni, atvinnusjúkdóma, hedsuvernd aldraðra og slysavarnir svo eitthvað sé nefnt. Hlutverk hjúkrunarfræðinga í móttöku á heilsu- gæslustöð beinist æ meira að fræðslu og ráðgjöf, bæði á stofu og eins í síma. Þessi þáttur hefur vaxið mjög undanfarin ár eftir |)ví sem hjúkrunarfræðingar hafa * lagt meiri rækt við Jjetta hlutverk sitt og má gera ráð fyrir að Jjessi þjónusta eigi enn frekar eftir að aukast í framtíðinni. Skjólstæðingar stöðvanna meta mjög aðgengið að þessari fagþjónustu og nýta sér hana Jjar sem þeim fjölgar sem leita upplýsinga heilsunnar vegna. Fólk er meðvitaðra um heilsu sína og ahnennt heilsufar en áður. Þær aðstæður, sem ríkja í heil- hrigðismálum Jjjóðarinnar, vegna sparnaðar og niðurskurðar liafa einnig haft áhrif. Legutíminn hefur styst umtalsvert síðustu ár, fleiri aðgerðir eru framkvæmdar á stofum og fólk hvatt til að sjá um sig og sína sjálft. Lokaorð I nánustu framtíð verður að leyfa heilsugæslunni að sýna þann metnað sem í henni býr og hvers hún er megnug. Um er að ræða heilbrigðisjjjónustu sem er markviss, ódýr og hagkvæm og veitt af hedbrigðis- starfsfólki sem er faglegt og tdbiiið að axla ábyrgð á Jjeirri Jjjónustu sem Jjað veitir. Eg sé aðeins eina leið til að gera Jijónustuna markvissari og koma í veg fyrir Jjá ringulreið sem oft ríkir Jjegar Jjjónustan í samfélaginu er ómarkviss og ósveigjanleg. Það er að allir Jjeir sérfræðingar, sem eru að fjalla uin hvort treysta eigi hedsugæslunni fyrir þessari eða hinni Jjjónustunni, gefi henni tækifæri til að sýna hvað í henni býr. Sem sagt geri hana ábyrga fyrir og geri henni kleift að sinna þeirri þjónustu sem henni hefur verið ætlað að sinna frá fyrstu uppbyggingu. Að í þessu tilskildu tel ég að hedsugæslunni og hjúkrun í samfélaginu sé vel borgið í framtíðinni. 86 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2. TBL. 73. ÁRG. 1997
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.