Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1997, Page 31
Blóðþrýstingsmœlingar í almenningshlanpnm.
bein áhrif á Islandi vegna EES samningsins. Formað-
ur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur tvívegis
verið fulltrúi SSN á fundum og ráðstefnum PCN.
Ekki hefur verið tekin formleg afstaða til aðildar að
PCN, komi það tækifæri.
Stofnl'undur Europecin Forum of Nurses var hald-
inn í Madrid á Spáni í nóvember 1996 en það er sam-
starfsvettvangur evrópskra félaga hjúkrunarfræð-
inga og evrópskra sérfræðisamtaka hjúkrunarfræð-
inga. Er stefnt að því að halda árlegt samráðsþing
þessara aðila. Asta Möller var fulltrúi félagsins á
undirbúningsfundi fyrir stofnun þessa vettvangs í
nóvember 1995, en Jóhanna Bernharðsdóttir var
fulltrúi félagsins á stofnfundi samtakanna í nóvember
1996. 1 tengslum við þann fund var undirrituð vilja-
yfirlýsing þessara aðila um að mynda Nursing/Mid-
wifery Forum, ráðgefandi vettvang um hjúkrunar- og
Ijósmæðramál. Þegar hefur verið starfandi slíkur
vettvangur læknafélaga og Evrópudeildar WHO um
nokkurra ára skeið.
Þá má nefna að fundur evrópskra embættishjúkr-
unarfræðinga var haldinn í Reykjavík í apríl 1996 í
boði íslenska heilbrigðisráðuneytisins. Formanni Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðing var boðið að sitja
fundinn, en jafnframt bauð félagið þátttakendum í
ferð til Þingvalla. Þá boðaði stjórn félagsins til opins
fundar í Háskólabíói með yfirinanni hjúkrunarmála
hjá WHO, dr. Miriam Hirschfeld og Galinu Perfil-
jeva frá Rússlandi til að gefa íslenskum hjúkrunar-
fræðingum tækifæri til að skoða hjúkrun í alþjóðlegu
samhengi.
Fagdeildir félagsins hafa í auknum mæli tekið þátt
í erlendu samstarfi systurfélaga sinna á Norðurlönd-
um, í Evrópu eða á alþjóðlegum vettvangi. Stjórn
félagsins styrkir þær fagdeildir sem eru í erlendu
samstarfi með sem nemur upphæð eins apex-fargjalds
til Kaupmannahafnar einu sinni á ári.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur tekið
töluverðan þátt í erlendu samstarfi til að meta hvert
félagið ætti að beina kröftum sínum á erlendum vett-
vangi. Þessi undirbúningsvinna mun væntanlega
skila sér á starfstímabili næstu stjórnar félagsins.
Þess má geta að stjórn félagsins ákvað að stofna utan-
ríkisnefnd félagsins, sem er stjórn félagsins til ráð-
gjafar um erlent samstarf.
Siðareglur íslenskra hjirknmarfræðinga
Stjórn Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga skipaði
nefnd til að endurskoða siðareglur hjúkrunarfræð-
inga haustið 1995. I nefndinni áttu sæti Anna Birna
Jensdóttir, Helga Jónsdóttii', Hildur Helgadóttir,
Lovísa Baldursdóttir, Ólöf Ásta Olafsdóttir og Sig-
þrúður Ingimundardóttir. Sesselja Guðmundsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og starfsmaður félagsins, starf-
aði auk þess með nefndinni. Nefndin skilaði af sér í
apríl 1997 drögum að nýjum siðareglum sem voru
samþykkt á fulltrúaþingi félagsins í maí.
Handbók (vaktabók) fyrir hjúkrunarfræðinga
Handbók hjúkrunarfræðinga var gefin út á árinu
1995 ásamt dagbók ársins 1996. Var hún sehl vægu
verði, en í handbókinni eru m.a. kjarasamningur fél-
agsins með skýringum, auk ýmissa annarra hagnýtra
upplýsinga m.a. um félagsmál hjúkrunarfræðinga.
Dagbók 1997 var síðan send hjiikrunarfræðingum að
Vaskt
heilsueflingarlið
aðstoðaði í
Jónsmessuhlaupi.
TlMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2.TBL. 73.ÁRG. 1997
167