Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1997, Qupperneq 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1997, Qupperneq 22
einum hjúkrunarnema hefðu æðahnútar á fótum komið í ljós eftir að hún hóf hjúkrunarnámið hér- lendis. I bréfi, sem hún skrifaði yfirlækni þessa hjúkrunarnema, mátti lesa eftirfarandi: „Það getur ekki komið til mála, að hún sigli ef nokkuð ber á æðahnútum hjá henni, því hún yrði þá samstundis endursend heim aftur, þar sem nákvæm læknisskoð- un fer fram á hjúkrunarnemunum og er sú skoðun framkvæmd af einhverjum af læknum þess spítala, er nemarnir eiga að vinna á.“ (Fjelag íslenskra hjúkr- unarkvenna, 1928a). Var yfirlæknirinn heðinn um að laga fætur stúlkunnar sem hann og gerði þannig að hún gat haldið áfram námi sínu (Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna, 1928b). TungumálaerfiAeikar Ekki verður annað séð en að íslensku hjúkrunarnem- arnir hafi verið vel undir það búnir að takast á við hjúkrunarstörf sem unnin voru á sjúkrahúsunum í Danmörku og Noregi en þeim svipaði mikið til þeirra verka sem voru unnin hér á landi. Þrátt fyrir það bárust kvartanir frá forráðamönnum sjúkrahúsa í Danmörku og Noregi þar sem íslensku hjúkrunar- nemarnir voru við störf (Erla Dóris Halldórsdóttir, 1996a, bls. 105). Kvartað var undan því hve sumir nemar voru illa að sér í tungumálum, dönsku og norsku. I bréfi, sem ein forstöðukona á sjúkrahúsi í Danmörku sem hafði íslenska hjúkrunarnema í lokanámi, sendi til frú Sigríðar Eiríksdóttur, formanns F.I.H., árið 1929 sagði meðal annars þetta: „Jeg har været ked af de store Vanskeligheder vi har haft, fordi de unge Elever ikke kan forstaa Sproget ...“ (Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna, 1929). Ilefur það að öllum líkind- um haft áhrif á samskipti íslensku hjúkrunar- nemanna við sjúklinga og starfsfólk spítalanna er- lendis. I pðru bréfi frá framkvæmdastjóra Ríkisspít- alans, er barst frú Sigríði um svipað leyti og bréf for- stöðukonunnar, kvartaði framkvæmdastjórinn und- an því hve íslensku hjúkrunarnemarnir ættu erfitt með skilja dönskuna (Fjelag íslenskra hjúkrunar- kvenna, 1928c). I svari Sigríðar til framkvæmda- stjórans má segja að hún hafi reynt að halda hlífi- skildi yfir hjúkrunarnemum félagsins og lagt áherslu á að hún hafi hvatt nemana til að æfa sig í dönsku áður en þær héldu utan. Að öllum líkindum hefur framkvæmdastjórinn orðið snortinn af örvænting- unni í orðum Sigríðar þegar hún skrifaði honum: „Det hele er virkelig fortvivlende, men De maa bære over med os i disse Aar Herr Direktor, Dette er jo den eneste Udvej for os.“ (Fjelag íslenskra hjúkrun- arkvenna, 1928d). Og þessi orð Sigríðar voru orð að sönnu því þetta voru einu úrræðin á þessum árum til að koma hjúkrunarnemum til náms. Þrátt fyrir þessa erfiðleika luku 32 konur hjúkrunarnámi á vegum Félags íslenskra hjúkrunarkvenna á árunum 1922 til 1933 (Erla Dóris Halldórsdóttir, 1996a, bls. 92-95). I þessari grein hefur verið stiklað á stóru um íslenskar hjúkrunarkonur sem öfluðu sér hjúkrun- armenntunar erlendis á fyrsta áratug þessarar aldar. Þar sem sjúkrahús hérlendis voru fá og lítil þurftu hjúkrunarnemar Félags íslenskar hjúkrunarkvenna að halda að loknu tveggja ára hjúkrunarnámi á Islandi til 18 mánaða lokanáms á sjúkrahúsum í Danmörku og síðar í Noregi til að ná enn frekari færni í að hjúkra sjúkum. Ekki verður dregið í efa að þessar konur höfðu mikla hjúkrunarmenntun að haki og gátu snúið heim stoltar eftir erfiðið. A íslandi reis upp vel menntuð fagstétt hjúkrunarkvenna. Heimildir: Alþingistídindi (1913). A, 1693. Alþingistíðindi (1923). A, 270, 468. Alþingistíðindi (1924). B, 766. Arni Arnason (1915). Hvernig getur hjúkrun komist í betra lag til sveita? Lœknablaðið, 1( 8), 122. Christophine Bjarnhjedinsson (1924). Sygepleje paa Island.Tidsskrift for Sygepleje 24(21), 477. Erla Dóris Halldórsdóttir (1996a). Koma yfirhjúkrunarkonu Holds- veikraspítalans. Tímarit hjúkrunarfrœðinga, 72(4), 190. Erla Dóris Halldórsdóttir (1996b). Upphaf hjúkrunarstéttar ú Islandi. B.A. ritgerð í sagnfræði við HI, 40-42. Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna (1919). Fundargerðabók stjórna aðal- og félagsfunda Félags íslenskra hjúkrunarkvenna 1919 til 8. nóvem- ber 1929. Odagsettur fundur. Skjalasafn Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga AA/1. Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna (1920). Fundargerðahók stjórnar aðal- og félagsfunda Félags íslenskra hjúkrunarkvenna 1919 til 8. nóvember 1929. Fundur haldinn 23. júlí 1920. Skjalasafn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga AA/1. Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna (1922). Bréfaskipti 1922-1928. Rigshospitalet, 17. maí 1922. Skjalasafn Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, B/l.l. Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna (1928a). Bréfaskipti 1922-1928. Reykjavík, 18. september 1928. Skjalasafn Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga, B/l.l. Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna (1928h). Bréfaskipti 1922-1928. Akur- eyri, 5. október 1928. Skjalasafn Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga. Nr. B/l.l. Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna (1928c). Bréfaskipti 1922-1928. Journal nr. 28.4/1928. Skjalasafn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, B/l.l. Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna (1928d). Bréfaskipti 1922-1928. Reykjavík, 26. októher 1928. Skjalasafn Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, B/l. 1. Fjelag íslenskra hjúkrunarkvenna (1929). Bréfaskipti 1929-1932. Den 10.6. 1929. Skjalasafn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, B/2.1. Hjúkrunarfélag Islands (1969). Hjúkrunarkvennatal. Reykjavík, Hjúkr- unarfélag Islands. Sigríður Eiríksdóttir (1944). Avarp á 25 ára afmæli Félags íslenkra hjúkrunarkvenna. Skjalasafn íslenskra hjúkrunarfræðinga. Þjóðskjalasafn Islands (1915). Einkaskjalasafn E. 45. Landsspítalasjóð- ur. Fjársöfnunarlistar. ^XStjörnu Apótek Hafnarstræti 91-95 Akureyri ' Sími: 463 0452 Fax: 462 3718 Opið alla virka daga kl. 9-18 214 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 4.TBL. 73.ÁRG. 1997

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.