Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1997, Síða 34

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1997, Síða 34
Guðn'ni ásamt prófessor Boris Luban-Plozza, formanni dómnefhdar. GUÐRÚN EINARSDÓTTIR verðlauna- ritgerð Það var í desember 1995 setn ég sá auglýsingu í fagblaðinu okkar um Balint-ritgerðarsam- keppnina. Auglýsingin vakti strax huga minn. 1 henni stóð að skrifa œtti um samband hjúkrunar- frœðings og skjólstœðings, hvernig sambandið varð til, hvernig það þróaðist og hvað hjúkrunar- frœðingurinn lœrði afþví. Eg hafði nýlega fengið reynslu af erfiðu sambandi við einn skjólstæð- ing minn. Ég sá að það myndi vera gott að skrifa um það til að skilja enn betur hvað hafði gerst hjá okkur, mér og skjólstæðingnum. Þar sem ég er keppnismann- eskja og peningaverðlaun í hoði ákvað ég að spreyta mig og hyrj- aði strax að skrifa. Eg fékk síðan Ingigerði Guðbjörnsdóttur, hjúkr- unarfræðing, til að þýða ritgerðina á ensku og gerði hún það mjög vel. Eins og reglur keppninnar sögðu til um skilaði ég ritgerðinni í apríl 1996. í september fékk ég síðan bréf frá svissneska Rauða krossinum þar sem mér var til- kynnt að ég væri meðal vinnings- hafa. Mér var boðið að koma til Ascona í Sviss í október til að veita verðlaununum viðtöku á sérstöku þingi sem bar yfirskriftina Þung- lyndi vorra tíma. Þangað fór ég styrkt af ritgerðarsamkeppninni og vinnustaðnum mínum, heilsu- gæslustöðinni á Seltjarnarnesi. Er þess var farið á leit við mig að ritgerðin yrði birt í Tímariti bjúkrunarfræðinga varð ég að neita á forsendum þagnarskyld- unnar, vegna þess hve persónuleg ritgerðin er fyrir mig, skjól- stæðinginn og fjölskyldu hans. Þjóðfélagið okkar er svo lítið og allir þekkja alla, jafnvel þótt nöfnum sé breytt. I staðinn ætla ág að lýsa því hvernig ritgerðin var hyggð upp og hvað ég lærði af að vinna hana. I inngangi segi ég frá vanga- veltum mínum um hvað mér finnist hjúkrun vera, hvað það er að vera faglegur, geta sýnt kærleika og umhyggjusemi og hver sé munurinn á hluttekningu og meðvirkni. Hvers vegna gerð- ist ég hjúkrunarfræðingur? Var Jtað af hugsjón? Eða er eðlislægt eða lært að hugsa um og skynja Jtarfir annarra? Síðan greindi ég frá persónu- legum upplýsingum, náms- og starfsferli og lýsti núverandi vinnuskipulagi á heilsugæslustöð- inni á Seltjarnarnesi. Þar er einn þátturinn heimahjúkrun sem ég sinni einn eftirmiðdag í viku. Það er misjafnt hve mörgum ég Jtai f að sinna og hve lengi. Skjólstæð- ingnum, sem ég skrifaði um, hjúkraði ég í 4 ár. Ég rakti sögu sambands okkar, hvernig það byrjaði og lýsti fyrstu vitjuninni. Skjólstæðingurinn var fullorð- in kona sem var einmana, ein- ræn, kvíðin, Jninglynd og einnig missti hún mann sinn á tímabil- inu. Hún þurfti að glíma við alls kyns vandamál andleg, líkamleg og félagsleg. Mér fannst ég skipta miklu máli í lífi hennar, studdi hana af heilum hug og tengdist henni tilfinningahöndum. Vegna hennar jmrfti ég að hafa sam- band við fjölskyldu hennar, sem var fámenn, við samstarfsfólk mitt, starfsfólk sjúkrahúsa og vlð heimilishjálpina. Mér fannst ég leggja mikið á mig og hún ekki kunna að meta Jjað. Hjúkrunin skilaði ekki Jjeim árangri sein ég hafði vænst. „Hún gerði ekki eins og ég vildi.“ Smám saman rann Jjað upp fyrir mér að ég var orðin meðvirk með konunni. I ritgerðinni velti ég Jjví upp hvað lá að baki. Ég gerði mér grein fyrir að ég átti í erfiðleikum í einkalífi mínu og sá að ég var meðvirk með fleirum. Eg skrifaði um hugleiðingar mínar í Jiví sam- bandi og tilfinningalega líðan mína. Ég var lengi meðvituð um að ég væri orðin meðvirk en vissi ekki hvert ég átti að leita til að fá 226 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 4.TBL. 73.ÁRG. 1997

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.