Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1997, Side 35
hjálp. I umsögn dómnefndar um
ritgerðina var ég verðlaunuð fyrir
einlægni í frásögninni og að ég hafði
sýnt skjólstæðingnum virðingu og
vinnubrögð mín verið fagleg.
Eg velti því síðan fyrir mér
hvað meðvirkni er. Meðvirk um-
önnun er örvuð af röngum til-
finningum um samviskusemi og
því að taka ábyrgðina af öðrum
sem eiga réttinn á að bera hana
sjálfir. Petta á upptök sín í ótta
frekar en ást. Reynsla mín var
lærdómsrík, ég þurfti að
viðurkenna fyrir sjálfri mér að ég
yrði að hætta að sinna skjól-
stæðingnum og leita mér hjálpar.
Eg hef lært að það skiptir
miklu máli að vera meðvitaður
um sjálfan sig, þekkja styrk sinn,
veikleika og viðurkenna eigin
þarfir. Horfast í augu við að erf-
iðleikar í einkalífi geti bitnað á
vinnunni og öfugt. Með því að
þekkja sjálfan sig er minni hætta
á kulnun. Við verðum að hlúa að
okkur sjálfum og vera góð við
okkur sjálf. Pað er eðlilegt að við
getum þurft aðstoð vegna erfið-
leika sem við upplifum í starfi.
Svissneski Rauði krossinn
starfar eftir þeirri sannfæringu
að hlúa þurfi að starfsfólki sem
vinnur hjálparstörf til að það geti
starfað áfram, þroskast og miðlað
öðrum. Mjög gott dæmi um þetta
er súrefnisgríman í flugvélinni.
Þú þarft fyrst að setja súrefnis-
grímuna á þig til að geta sinnt
öðrum. Þess vegna er það Rauði
krossinn sem veitir peningaverð-
laun sem hvatningu og stuðning
við þennan þátt í hjálparstörfum.
Ritgerðarsamkeppnin er
kennd við Michael Ralint (1896-
1970), ungverskan geðlækni og
sálgreini sem starfaði í Englandi.
Hann setti fram þær kenningar
að við gætum notað okkur sjálf
meira þegar við hjálpum fólki.
Það er að greina hvað gerist í
okkur þegar skjólstæðingur hefur
mikil áhrif á okkur tifinninga-
lega. Til þess þurfum við að
þekkja okkur sjálf. Það gæti flýtt
fyrir greiningu og bata hjá þeim
sem við önnumst.
Balint -Y'i-t^eY’ðAY'keppnín
Baliut-ritgerðasamkeppnin hefur verið haldin árlega síðan 1991 til
minningar um Michael Ralint sem var frumkvöðull í samskipta-
miðaðri umönnun.
Verðlaunin eru veitt af svissneska Rauða krossinum og Foundation
for Psychosomatic and Social Medicine í Ascona í Sviss. Upphæðin,
sem um ræðir, er 8000 svissneskir frankar eða tæplega 400.000 kr.
Þátttaka miðast við fagfólk í heilsugæslu, s.s. hjúkrunarfræðinga, ljós-
mæður, iðju- og sjúkraþjálfara en ekki lækna og sálfræðinga.
Ritgerðirnar mega í mesta Iagi vera 20 síður (30 línur á síðu og 60
stafir í línu) og verða þær metnar út frá eftirtöldum forsendum:
1. Kynning þar sem gerð er grein fyrir persónulegri reynslu í starfi af
sambandi við sjúkling/skjólstæðing, þróun þess sambands og því
starfsumhverfi sem það á sér stað í.
2. Greining og hugleiðingar: Höfundur greinir aðstæðurnar með tilliti
til eigin hegðunar og hegðunar sjúklingsins/skjólstæðingsins. Leiða
þarf hugann að bældum tilfinningum, ímyndun og skilningi á
aðstæðum.
3. Alyktanir og þróun: Höfundur útskýrir hvað hann lærði af
reynslunni og hvernig það hefur nýst í daglegu starfi síðan.
Skilafrestur er tH
28. febrúar 1998.
Þrjú eintök af hverri i'itgerð á
þýsku, frönsku, ítölsku eða ensku
þarf að sendi til:
Tlie Swiss Red Cross
Department of Vocational
Education
Pro Balint
Werkstrasse 18
CH-3048 Wabern
Switzerland
Opidallan
sólar-
hrinqinn
7 daqa vikunnar
Æ\
HÁALEITIS
APÓTEK
Háaleitisbraut 68 • Sími 581 2101
f IAPÓTEK
tSSuNnuApcvítkf: ISUÐURNESJA
Verslunarm. Sunnuhlíð 12 Hringbraut 99, 230 Keflavík
Akureyri Alm. sími 421 6565, fax 421 6567
Sími: 463 0484 Fax: 463 0485 Opið mánud.-föstud. 9-19.
Opið alla virka daga kl. 9-19 Laugard. 10-13.
og laugardaga kl. 11-15 Alm. fríd. 10-12
TÍMARIT HIÚKRUNARFRÆÐINGA 4.TBL.73.ÁRG. 1997
227